Ægir - 01.04.1933, Page 16
110
ÆGIR
við hið mikla íiski við Island og verð-
fall muni stafa af því.
Samkvæmt upplýsingum, sem ég hef
fengið frá Sevilla, hefur innflutningur-
inn þangað numið 6.206 lestum á sið-
astliðnu ári. Hefur Trueba y Pardo flutt
ina tæplega 4000 lestir, en Lazo afgang-
inn. Skiptist innflutningurinn svo á lönd
að 2.127 lestir komu frá íslandi, 1544
frá Newfoundland, 890 frá Færeyjum,
788 frá spönsku útgerðinni í Pasajes,
341 frá Noregi, 257 frá Hamborg, og
mun þar af vera töluvert af grænlenzk-
um fiski, 160 lestir frá Frakklandi, en
afgangurinn, tæpar 100 lestir kom f'rá
Bretlandi.
ítaliumarkaðurinn hefur lagast mikið,
og er eftirspurn þaðan talin allgóð.
Hefur því verið selt þangað mikið af fiski
frá Newfoundlandi, aðallega lil Neapel,
en 340 lestir hafa einnig komið til Genúa.
Einnig hafa borist fréltir um að stjórnin
i Brasiliu sé farin að veita gjaldeyris-leyfi
til fiskkaupa, allt að £ 1000 í einu. Eru
Newfoundlandsmenn því mjög fegnir,
enda hafa þeir haft fá fagnaðarefni í
vetur. Portúgalsmarkaðurinn liefur verið'
þeim erfiður og sífeldar kvartanir um
vörugæðin, og í Grikklandi er islenzki
fiskurinn talinn svo mikið betri, að einn
af umboðsmönnum þeirra segir að varla
sé hægt að fá nokkurt verð fyrir fisk
þeirra, meðan íslenzkur fiskur sé fáan-
legur, því verkun okkar líki svo miklu
betur. Eiu því sterkar raddir um að
stofna til fiskimats í Newfoundland,
að dæmi lslendinga. lJar sem þær hafa
oft komið fram áður, er naumast við
því að búast að kostað verði til þess,
þegar fjárhagur ríkisins er sem hann
er nú.
1 Portúgal er talið að innflyténdur séu
búnir að byrgja sig svo vel upp, að
þeir hugsi naumasl lil að kaupa neitt af
fiski fyr en í maí. Hefur það og stapp-
að stálinu i innflytjendur að bíða með
kaup sín, að verðinu í Noregi hefur
hrakað nokkuð, því það mun hafa verið
sett heldur hátt, sérstaklega þar sem Is-
lendingar hækkuðu ekki sitt verð að
sama skapi, og kusu heldur að selja.
Til Oporto hafa fluzt rúmlega 1800
lestir af blautum fiski til þurkunar þar.
Hefur hann verið keyptur frá Frakk-
landi. Einnig hefur komið þangað nokk-
uð af grænlenzkum fiski, með skútum
Portúgals-manna, en ekki hefur hans
gætt á markaðinum.
Undanfarið hefur verið sú ró yfir op-
inberu lífi hér syðra, að ég hef ekki
minnst á það lengi. Vonandi helzt hún
áfram, og eru heldur líkur til að svo
verði, úr því að kosningarnar i Portú-
gal eru um garð gengnar. Hefur verið
einveldi þar i landi, undir stjórn Carm-
ona hershöfðingja. Vildi hann slaka svo
til, að kosið væri ráðgefandi þing, og
var gert stjórnarskrár-frumvarp, sem lagt
var fyrir þjóðina til atkvæðagreiðslu á
sunnudaginn var. Er þar gert ráð fyrir
að þing þjóðarinnar sé endurreist, en
það hefur litið vald, nema til að ræða
landsins gagn og nauðsynjar, í þrjá mán-
uði á ári. Ríkisstjórnin er því ekki háð,
meðlimir hennar eru skipaðir af forseta
•ríkisins.
Kosningarréttur var mjög takmarkað-
ur, því aðeins heimilisfeður, sem gjalda
skatt, höfðu kosningarrétt, og þeir gálu
aðeins sagt já eða nei við frumvarpinu.
Enþvívar lýstyfir fyrir kosningarnar, að
öll ónotuð atkvæði mundu vera talin
greidd með frumvarpinu. Þessa ákvæðis
var þó ekki þörf, því mörgum sinnum
fleiri atkvæði voru greidd með frum-
varpinu en móti því, og hefði það fengið
meiri hluta, jafnvel þó ónotuð atkvæði
væru talin greidd gegn frumvarpinu. I5ó