Ægir - 01.04.1933, Side 21
ÆGIR
115
Lifrarbræðslufélag Norðfirðinga
tuttugu og fimm ára.
Hinn 6. apríl s. 1. voru liðin 25 ár síð-
an Lifrarbræðslufélag Norðíirðinga var
lormlega stofnað. Hefur félagið jafnan
starfað síðan og hagur þess oftast verið
góður og viðgangur þess aukist.
Tildrög félagsstofnunarinnar eru þau,
að árið 1906 höfðu allflestir útgerðar-
menn hér á Norðfirði, samtök með sér
og keyptu ófullkomin áhöld til lifrar-
hræðslu. Gafst tilraun þessi vel og var
starfað með sama fyrirkomulagi árið
1907. Um veturinn 1908 var svo félagið
stofnað og voru gefin út 242 hlutabréf á
5 kr. — fimm krónur — hvert, og var
það stofnfé félagsins.
Þeir sem fremstir stóðu um stofnun
félagsins voru útvegsmennirnir Lúðvík
S. Sigurðsson og Ingvar Pálmason og
Gísli Hjálmarsson kaupm.; var þátttakan
i félaginu svo almenn að heita mátti að
allir útgerðarmenn væru meðlimir þess,
og hefur það jafnan verið svo síðan.
Félagið tók til vinnslu alla lifur fé-
lagsmanna, en af þeim fáu sem ekki
voru í félaginu, keypti félagið lifrina, fyr-
ir ákveðið verð.
Hlutabréf félagsins urðu brált eftir-
spurð og stigu þau í verði eftir því sem
útgerðin stækkaði og munu jafnvel dæmi
til að einstök bréf hafi verið seld á kr.
240.
En þar sem ekki var fjölgað hlutum í
félaginu að sama skapi og útgerðin óx,
var erfitt fyrir þá er byrja vildu útgerð
að eignast hluti í félaginu, og verða að-
njótandi þeirra hlunninda er félagið veitti.
1922 var því ákveðið að breyta félaginu
úr hlulafélagi í samvinnufélag og starf-
aði það nú sem hlutafélag með sam-
vinnusniði um nokkurra ára skeið, eða
til 1930. Þá er félaginu formlega breytt
í samvinnufélag, með takmarkaðri á-
hyrgð. Pá um haustið byrjaði félagið á
byggingu hinnar nýju bræðslustöðvar
sinnar, og var þeirri byggingu lokið um
vorið 1931.
Bræðsluhúsið er steinhús vandað að
öllum frágangi og haganlega fyrirkomið.
Er það stórt og bjart og nægilega rúm-
gott til að fjölga megi áhöldum, enda er
tilætlun félagsins að eignast nýjustu tæki
til vinnslu á lýsi. Félagið getur nú tekið
á móti og unnið úr allt að 5000 lítrum
af lifur á dag, og má auka' það með
auknum úthúnaði. Ársframleiðsla félags-
ins fer eftir útgerð og afla og hefur því
verið nokkuð misjöfn. Síðastliðið ár nam
framleiðsla um níutíu smálestum af lýsi
samtals, þar af var þó langmestur hluti
meðalalýsi nr. 1.
Skuldlausar eignir félagsins nema nú
um tuttugu þúsundum króna; þar af er
varasjóður tæplega sex þúsundir.
Auk þessara eigna á félagið í spari-
sjóðsinnstæðum rúmlega fimmtán þús-
undir króna. Eru það sjóðir, er félagið
lagði til hliðar á árunum 1917—18 og
19, í því augnamiði að verja því, á sín-
um tíma, til byggingar samkomuhúss og
sjúkraskýlis hér í hænum. Nema sjóðir
þessir nú samtals með vöxtum um 15
þúsundum króna og mun þessu fé inn-
an skamms verða ráðstafað í sínu upp-
haílega augnamiði.
Lifrarhræðslufélag Norðfirðinga er jafn-
gamalt bátaútveginum hér á Norðfirði
og hefur verið einn þáttur í sjálfbjarg-
arviðleitni útgerðarmanna og sjómanna
og jafnan tryggt þeim sannvirði fyrir
þessa framleiðslu þeirra og er það von
mín, að það megi vaxa og stækka verk-
svið sitt til heilla fyrir þetta byggðarlag.
Norðfirði, 26. febr. 1933.
Níels Ingvarsson,