Ægir - 01.04.1933, Blaðsíða 25
ÆGIR
119
Að svo stöddu held ég, að ekki sé
fleira er gefi mér ástæðu til frekari um-
mæla, og læt ég því staðar numið að
þessu sinni,
Akureyri 7. april 1933.
Páll Halldórsson.
Vélbátur ferst.
Vélbáturinn Páll, frá Hnífsdal, hefur
farist í fiskiróðri 29. f. mán. Gerði þá
snarpa norðankviðu um kveldið, ’og var
stórsjór á lóðamiðum. — Á bátnum voru
fjórir menn:
Halldór Pálsson, formaður, eigandi
bátsins, 54 ára, kvæntur. Á mörgbörn,
flest uppkomin.
Jón Helgason, úr Hnífsdal, 20 ára.
Gunnar Guðmundsson, 19 ára og
Guðfinnur Einarsson, 20 ára, báðir úr
Grunnavíkurhreppi.
Jón, Gunnar og Guðfinnur voru allir
ókvæntir.
Halldór Pálsson var einn af fremstu
formönnum þar vestra, alkunnur dugn-
aðarmaður og sjósóknari. Hafði verið ó-
slitið formaður frá tvítugsaldri, og aldrei
hlekkst neitt á.
Að þessum bát hefur nú verið leitað
grandgæfilega auk þess sem Sljfsavarnar-
félag Islands sendi þegar skeyti til skipa
gegnum útvarpið og bað þau að hafa
gætur á bátnum, skyldi hann vera ofan-
sjávar, en leit og annað reyndist árang-
urslaust.
Áskrifendur „Ægis“ eru beðnir að
filkynna bústaðaskipti.
Hermann Þorsteinsson
kaupmaður á Seyðisfirði
andaðist að heimili sínu á Seyðisfirði,
hinn 8. marz s. 1., eftir langa vanheilsu.
Hermann heit. Þorsteinsson var meira
og minna riðinn við Fiskifélag íslands
frá árinu 1915, er hann sat Fiskiþing í
fyrsta sinni, þar til 1. desember 1931, að
hann lét af erindrekastarfi fyrir Aust-
firðingafjórðung, er hann hafði gengt frá
1. marz 1922.
Hann sat á öllum Fiskiþingum frá
1915 til þingsins 1926, sem fulltrúi Aust-
firðingafjórðungs, að undanteknu Fiski-
þingi 1919, er hann gat ekki mætt.
Hann var áhugamaður um sjávarút-
vegsmál og lét sig þau mjög skifta. Konu
sina Jakobínu Jakobsdóttur hafði Her-
mann heitinn misst, skömmu áður en
hann dó.
Vitar og sjómerki.
Auglýsing fyrir sjómenn 1933. Nr. 2.
2. Samkvæmt tilkynningu frá skipstjór-
anum á e/s Lagarfossi hefir orðið vart
við grunnbrot tæpa sjómilu í stefnu70°
frá ósílesi norður af Kögri við Hér-
aðsflóa. Gizkað er á 10—15 m. dýpi á
boðanum. Brotið var ekki stórt um sig.
3. Vegna viðgerðar verður í sumar
ekki látið loga á Gí-arösbtagfavit-
nnum lengur en til 15. mai (í síað
1. júní) og ekki kveikt fyr en 1. ágúst
(í stað 15. júlí).
4. Bæjarstjórinn í Vestmanna-
eyjum tilkynnir, að færeyisk skúta hafi
sokkið á leiðinni inn á höfnina milli garða-
hausa, nær norðurgarðshaus. Möstur og
lunning standa upp úr sjó, jafnvel um
flóð. Skútan hindrar örugga siglingu inn