Skinfaxi - 01.08.2009, Page 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 3. tbl. 2009
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson, Sigurður Guð-
mundsson, Sunnlenska fréttablaðið,
Pedrómyndir o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Prentmet.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Björg Jakobsdóttir, formaður, Anna R.
Möller og Sigurður Guðmundsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Laugavegi 170–172, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Alda Pálsdóttir, skrifstofustjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Guðrún Snorradóttir, landsfulltrúi og
verkefnisstjóri forvarna,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Björg Jakobsdóttir, varaformaður,
Björn Ármann Ólafsson, gjaldkeri,
Örn Guðnason, ritari,
Einar Haraldsson, meðstjórnandi,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, meðstjórnandi,
Garðar Svansson, meðstjórnandi,
Ragnhildur Einarsdóttir, varastjórn,
Haraldur Þór Jóhannsson, varastjórn,
Gunnar Gunnarsson, varastjórn,
Einar Kristján Jónsson, varastjórn.
Forsíða:
Stóra myndin: Körfuknattleikur naut
mikilla vinsælda á Unglingalandsmótinu
á Sauðárkróki í sumar. Stúlkurnar í
Breiðabliki stóðu sig vel og skemmtu
sér hið besta.
Neðri mynd til vinstri: Frá verðlauna-
afhendingu á Landsmótinu á Akureyri.
Neðri mynd til hægri: Hressir strákar á
Unglingalandsmótinu á Sauðárkróki.
Sumarið var viðburðaríkt í ung-
mennafélagshreyfingunni. Hald-
in voru tvö stórmót, annars veg-
ar 26. Landsmót UMFÍ og hins
vegar 12. Unglingalandsmót
UMFÍ. Atburðir sem þessir krefj-
ast mikils undirbúnings. Að slíku
verkefni þurfa að koma vaskar
hendur og allt skipulag þarf að
vera í sem bestu lagi.
Þegar menn horfa um öxl er
það samdóma álit að vel hafi tek-
ist til og að hreyfingin megi vera
stolt af verki sínu. Það er ekki
hrist fram úr erminni að halda
tvö mót af þessari stærð með
þriggja vikna millibili, en þegar
upp er staðið geta allir verið
sáttir.
Landsmótið á Akureyri þótti
sérlega vel heppnað og var fram-
kvæmdaaðilum til sóma. Góð
undirbúningsvinna og frábær
skipulagning skilaði sér alla leið.
Það lagðist allt á eitt með mótinu
á Akureyri og til að gera mótið
enn ljúfara í minningunni var
veðrið með eindæmum gott alla
dagana. Sól skein í heiði, kepp-
endur nutu aðstæðna fram í
fingurgóma og gestir nutu þess
sem í boði var á mótinu. Þetta
mót verður lengi í minnum haft,
þarna nutu sín allir og minnast
mótsins með hlýjum hug. Það er
óhætt fyrir okkur að fara að hlakka
til Landsmótsins á Selfossi 2013.
Glæsileg umgjörð var í kring-
um Unglingalandsmótið á Sauð-
árkróki, íþróttamannvirkin fyrsta
flokks og aðstaðan fyrir áhorf-
endur og gesti til fyrirmyndar.
Eins og flestum er kunnugt tóku
Sauðkrækingar að sér framkvæmd
mótsins með frekar skömmum
fyrirvara en skiluðu því af sér með
sóma. Mótið heppnaðist afburða-
vel og keppendur hafa aldrei
verið fleiri.
Unglingalandsmótin hafa
skapað sér ákveðna virðingu í
íþróttaflóru landsins. Þar stíga
margir sín fyrstu skref á íþrótta-
ferlinum og minnast þátttöku í
mótunum með hlýjum hug.
Ástæða er til að hlakka til næsta
Unglingalandsmóts sem verður
haldið í Grundarfirði 2010.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var hald-
inn í annað sinn í sumar og er
alveg ljóst að þörf var fyrir skóla
af þessu tagi. Mikil fjölgun var í
skólanum á milli ára, en frjálsar
íþróttir njóta meðbyrs um þess-
ar mundir. Kannski er það því að
þakka að mikil uppbygging
frjálsíþróttavalla hefur orðið á
síðustu árum vítt og breitt um
landið í tengslum við Unglinga-
landsmót UMFÍ.
Jón Kristján Sigurðsson
ritstjóri
Viðburðaríkt sumar – hreyfi ngin
getur verið stolt af verki sínu
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formað-
ur UMFÍ, upplýsti í ávarpi sínu við setn-
ingu Unglingalandsmótsins á Sauðárkróki
að stjórn UMFÍ hefði samþykkt að Ungl-
ingalandsmót UMFÍ 2011 verði haldið á
Egilsstöðum.
Auk Austfirðinga sótti Ungmenna-
og íþróttasamband Fjallabyggðar um að
halda mótið á Siglufirði og í Ólafsfirði.
Einnig sótti HSÞ um að halda mótið á
Þórshöfn á Langanesi.
Unglingalandsmótið á næsta ári verður
haldið í Grundarfirði um verslunarmanna-
helgina. Til stóð að mótið yrði haldið þar
á þessu ári, en Grundfirðingar óskuðu sl.
vetur eftir að fresta mótshaldinu um eitt ár
og því var mótið fært til Sauðárkróks í ár.
Unglingalandsmótið 2011
verður haldið á Egilsstöðum