Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 25

Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 25
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25 Úr hreyfingunni Fimmtudaginn 13. ágúst síðastliðinn bauð Hafsteinn Þorvaldsson til veislu í Tíbrá, félagheimili Umf. Selfoss. Tilefnið var að þann dag hefði kona hans, Ragn- hildur Ingvarsdóttir, orðið 80 ára, hefði hún lifað, en hún lést árið 2006. Til að minnast Ragnhildar gaf Haf- steinn eina milljón króna til íþrótta- og ungmennafélagsstarfa á Suðurlandi. Sjö deildir innan Umf. Selfoss fengu hver 100.000 kr., Umf. Biskupstungna og Umf. Vaka fengu hvort 100.000 kr. og Héraðs- sambandið Skarphéðinn fékk 100.000 kr. og skal sú upphæð renna til undirbún- ings og þátttöku HSK í Unglingalandsmóti á næsta ári sem haldið verður í Grundar- firði. Nú stendur yfir ritun sögu Héraðssam- bandsins Skarphéðins og Hafsteinn gaf til þess verkefnis í fyrra 50.000 kr. „Kveikjan að þessari gjöf er nákvæm- lega sú að 13. ágúst 2009 hefði konan mín orðið 80 ára gömul ef hún hefði lifað. Ég fór að hugleiða með hvaða hætti væri hugsanlegt að minnast hennar. Allur sá tími sem fór hjá mér í íþrótta- og ung- mennafélagsstarf í gegnum áratugi var ekki síður hennar. Ég er mjög þakklátur fyrir það hvernig UMFÍ, Skarphéðinn og Ungmennafélag Selfoss hafa tekið á því að minnast hennar sérstaklega eftir að hún féll frá. Ég bar þetta undir börnin mín og fékk samþykki þeirra að gefa milljón og skipta upphæðinni á tíu aðila,“ sagði Hafsteinn Þorvaldsson. Þess má geta að fyrir tveimur árum gaf Hafsteinn eina milljón kr. til nýrrar deildar á sjúkrahúsinu sem heitir Fossheimar. Þessi gjöf átti að vera deildinni til ráðstöf- unar og létta því fólki byrðarnar sem væri þar. Ákveðið var að kaupa píanó fyrir þessa höfðinglegu gjöf frá Hafsteini. Forseti Íslands sæmdi tíu Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við athöfn á Bessastöðum á þjóðarhátíð- ardaginn, 17. júní sl. Hafsteinn Þorvaldsson, fyrrverandi for- maður Ungmennafélags Íslands, fékk riddarakross fyrir framlag til félags- og íþróttamála. Hafsteinn var formaður UMFÍ á árunum 1969 – 1979. Ungmennafélagshreyfingin óskar Hafsteini Þorvaldssyni innilega til hamingju með orðuveitinguna. Hafsteinn sæmdur riddarakrossi Höfðinglegar gjafir frá Hafsteini Þorvaldssyni Fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, ásamt formönn- um Umf. Vöku, Umf. Biskups- tungna og HSK, ásamt Hafsteini. Mynd til hægri: Hafsteinn Þor- valdsson ásamt Ragnheiði Ingu dóttur sinni. Ársfundur Íslenskra getrauna var haldinn 4. september sl. í Íþróttamið- stöðinni í Laugardal en fyrirtækið á um þessar mundir 40 ára starfsafmæli. Það kom fram í máli Hafsteins Páls- sonar, stjórnarformanns Íslenskra get- rauna, að fyrirtækið hefði haldið sjó í erfiðu árferði 2008. Hann sagði enn- fremur spennandi tíma fram undan en jafnframt erfiða fyrir starfsfólk og Spennandi tímar fram undan hjá Íslenskum getraunum stjórn Íslenskra getrauna. Hafsteinn þakk- aði stjórn, öflugum framkvæmdastjóra og starfsfólki fyrir vel unnin störf og gott samstarf. Stjórn Íslenskra getrauna er skipuð sem hér segir: Hafsteinn Pálsson, ÍSÍ, formaður, Geir Þorsteinsson, KSÍ, Ásthildur Helga- dóttir, íþróttanefnd ríkisins, Sæmundur Runólfsson, UMFÍ, og Örn Andrésson, ÍBR. Framkvæmdastjóri er Stefán Konráðsson. Fulltrúar UMFÍ á ársfundi Íslenskra getrauna: Helgi Gunnarsson, Björg Jakobsdóttir, Helga Guðrún Guðjónsdóttir og Einar Haraldsson.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.