Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 15

Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 15
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 15 Íþróttabandalag Akureyrar, ÍBA, sigraði heildarstigakeppni 26. Landsmóts UMFÍ. Verðlaunin voru veitt á mótsslitum á nýja leikvanginum um hádegisbilið á sunnu- deginum 12. júlí. ÍBA hlaut 1819 stig, en í öðru sæti varð HSK með 1557,5 stig. Í þriðja sæti varð UMSK með 1366,5 stig og UMSE/UFA varð í fjórða sætinu með 1155,5 stig, ÍBR í fimmta sæti með 1087,5 stig og ÍBH í sjötta sæti með 768 stig. ÍBA sigraði í heildarstigakeppni Landsmótsins á Akureyri Að verðlaunaafhendingu lokinni sleit Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, Landsmótinu og þakkaði fram- kvæmdaaðilum og þátttakendum fyrir frábært og vel heppnað mót. Mjög góð- ur árangur náðist í mörgum greinum og margir keppendur bættu árangur sinn verulega. Næsta Landsmót verður haldið á Selfossi 2013 og er undirbúningur fyrir mótið þegar hafinn. Hluti keppnis- liðs ÍBA með verðlauna- gripinn.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.