Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 35
 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35 Vinnum saman Græðum Ísland Landgræðslufræ Ef þú þarft að græða mela og rofabörð eða rækta fallega grasflöt eigum við fræið handa þér. Ráðgjöf um val á fræi við mismunandi aðstæður. Landgræðsla ríkisins Gunnarsholti, 851 Hellu Sími 488-3000, símbréf 488-3010, land@land.is, www.land.is Helga Margrét Þorsteinsdóttir gat sér snemma gott orð í frjálsum íþróttum og sáu margir fyrir sér mikið efni sem myndi ná langt. Það hefur gengið eftir því að Helga Margrét setti í sumar sem leið nýtt Íslandsmet í sjöþraut og varð Norður- landameistari í sínum aldursflokki. Hún varð í þriðja sæti á alþjóðlegu móti í Tékk- landi þar sem hún atti kappi við sjálfan Ólympíumeistarann sem sigraði að lok- um. Á Evrópumeistaramótinu leiddi Helga Margrét lengi vel en meiddist og varð að hætta keppni. Nýliðið tímabil hjá henni var að öllu leyti framúrskarandi og gefur fyrirheit um eitthvað enn meira í fram- tíðinni. „Ég hef alltaf verið íþróttum og man ekki eftir mér nema á hlaupum út um allt. Í byrjun var ég aðeins í körfubolta og fim- leikum til að verða betri í frjálsum. Ég var fyrst í Reykjaskóla, síðan á Hvammstanga og loks á Laugabakka. – Hvernig sérðu þú framtíðina fyrir þér? „Það er bara að halda áfram á sömu braut eins og staðan er í dag. Ég verð í þessu meðan ég hef gaman af því. Líf mitt snýst að mestu um íþróttir og þær hafa gefið mér mikið. Ég hef ferðast um allan heim og kynnst ótrúlega góðu fólki. Í dag kemst ekkert annað að en íþróttirnar og námið og ég er í Reykjavík til þess. Það hefur gengið vel fram að þessu að skipu- leggja námið og íþróttirnar, en til þess þarf maður að vera mjög vel agaður og skipuleggja hlutina rétt. Það er þýðir ekkert að eyða tímanum í eitthvað bull,“ sagði Helga Margrét. – Hvaða ráðleggingar hefur þú til unglinga sem eru að byrja að æfa í dag? „Það er að hafa gaman af því sem þeir taka sér fyrir hendur. Vera líka meðvituð um hvað þarf að gera aukalega til að ná árangri. Það skiptir höfuðmáli að borða hollan mat og fara að sofa snemma á kvöldin. Þetta er ekki bara æfingin held- ur líka heilbrigt líferni.“ – Hvað borðarðu sjálf yfir daginn? „Ég er bara í hollustunni. Ég byrja daginn á hafragraut, salat og léttur matur í hádeginu og fyrir æfingar seinni partinn fær maður sér músli og ávexti. Eftir æfing- ar, þegar heim er komið, fær maður sér eitthvað hollt. Svona eru allir dagar,“ sagði Helga Margrét. Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona á framtíðina fyrir sér: Þetta er ekki bara æfingin – heldur líka heilbrigt líferni

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.