Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Ungmennafélag Íslands starfsrækti í
sumar frjálsíþróttaskóla á nokkrum stöðum
á landinu. Framan af sumri voru skólar
starfræktir í Borgarnesi og á Laugum í
Þingeyjarsýslu og síðan í Þorlákshöfn, á
Sauðárkróki, Egilsstöðum og á Höfn í
Hornafirði. Aðsókn að skólunum var mjög
góð og sóttu t.d. um 40 krakkar frjáls-
íþróttaskólann í Borgarnesi.
Þetta var annað sumarið í röð sem
frjálsíþróttaskólinn starfar, en hann er
starfræktur í samvinnu við Frjálsíþrótta-
samband Íslands. Skólinn hóf göngu sína
í fyrra og fékk strax góðar undirtektir.
Hann er fyrir ungmenni 11–18 ára.
Þórey Edda Elísdóttir stangarstökkvari
heimsótti skólana í sumar og segir það
heiður fyrir sig og frábært tækifæri að fá
að hitta krakkana og miðla þeim af
reynslu sinni. Litið er á frjálsíþróttaskól-
ann sem góðan undirbúning fyrir þátt-
töku á Unglingalandsmóti.
Hinn kunni frjálsíþróttamaður og þjálf-
ari, Ólafur Guðmundsson, var leiðbein-
andi í skólanum í Þorlákshöfn, en þar
voru alls 15 krakkar sem komu víða að.
Fimm krakkar komu úr Árbænum í Reykja-
vík og sami fjöldi úr Grímsnesinu.
„Þetta gekk alveg ljómandi vel, krakk-
arnir voru mjög áhugasamir og sýndu
miklar framfarir. Ég er viss um að skólinn
á bara eftir að stækka og eflast í framtíð-
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ
– á bara eftir að eflast og stækka í framtíðinni
inni. Þetta er alveg frábært framtak af
hálfu UMFÍ. Vikan er búin að vera mjög
skemmtileg hjá krökkunum, en veðrið
hefur verið einstaklega gott,“ sagði
Ólafur Guðmundsson.
Efst: Krakkar í frjálsíþróttaskólanum
í Borgarnesi.
Miðja: Hreinn Halldórsson kúluvarpari
leiðbeinir krökkum á Egilsstöðum.
Neðst: Krakkar í frjálsíþróttaskólanum
í Þorlákshöfn ásamt Ólafi Guðmundssyni
þjálfara.