Skinfaxi - 01.08.2009, Side 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
26. Landsmót UMFÍ á Akureyri
26. Landsmót UMFÍ var haldið á Akur-
eyri dagana 9.–12. júlí sl. Mikil eftirvænt-
ing lá í loftinu. Undirbúningur fyrir mótið
hafði verið langur, en almennt séð geng-
ið ljómandi vel. Glæsilegri uppbyggingu
mannvirkja, til að taka við öllum þeim
fjölmörgu keppendum sem von var á til
Akureyrar til þess að taka þátt í mótinu,
var lokið. Skráðir þátttakendur í mótinu
voru hátt í tvö þúsund og af því leiddi að
þetta mót var eitt það stærsta, ef ekki það
stærsta, í hundrað ára sögu Landsmótanna.
Akureyri skartaði öllu sínu besta alla
mótsdagana. Klukkan hálf sjö að morgni
fimmtudagsins 9. júlí var kominn fjórtán
stiga hiti og glampandi sól og ekki ský-
hnoðri á himni.
Dagskráin var viðamikil þannig að allir
áttu að finna eitthvað við sitt hæfi, full-
orðnir jafnt sem börn. Ókeypis var á
íþróttakeppnina og alla aðra viðburði
sem Landsmót UMFÍ stóð fyrir.
Erfitt er að meta hversu margir tóku
þátt í Landsmóti UMFÍ. Beinir þátttakend-
ur í mótinu voru um tvö þúsund og þátt-
takendunum fylgdu fjölmargir. Þar fyrir
utan kom mikill fjöldi fólks í bæinn. Sam-
kvæmt áætlunum lögreglu er því ekki
óvarlegt að áætla að gestir hafi verið ein-
hvers staðar á milli 10 og 15 þúsund.
Gestir dreifðust að vonum um bæinn.
Margir voru í keppendatjaldbúðunum á
Rangárvöllum, einnig á tjaldsvæðum við
Þórunnarstræti og á Hömrum, auk þess
sem gistirými var meira eða minna allt
fullt. Þá er vitað um fjölda íbúða í bæn-
um sem voru leigðar út í tengslum við
mótið.
Aðsóknin að öllum viðburðum sem
Landsmótið stóð fyrir – hvort sem var
keppni eða aðrir viðburðir – var afar góð
og fór fram úr björtustu vonum móts-
haldara. Þetta átti við um starfsíþróttirn-
ar og fjölda annarra greina. Nefna má
frjálsíþróttir, boltagreinar og ýmsar fleiri
greinar. Það er ekki á hverjum degi sem
um þúsund manns horfa á starfshlaup á
Landsmóti. Og heldur ekki á hverjum degi
sem um þúsund manns fylgjast með frjáls-
íþróttakeppni hér á landi.
Allir geta verið sammála um að Lands-
mótið var mjög vel heppnað og vel skipu-
lagt. Einstakt veður átti vissulega stóran
þátt í því.
Akureyri skartaði sínu fegursta