Skinfaxi - 01.08.2009, Page 29
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 29
Ungmennafélag Selfoss tryggði sér 19.
september sl. sigur í 1. deild karla í knatt-
spyrnu og leikur í efstu deild karla í fyrsta
sinn í sögu félagsins á næsta tímabili.
Mikið uppbyggingarstarf hefur verið
unnið á síðustu árum á Selfossi sem er að
skila sér markvisst með sæti í efstu deild.
Þetta hefur verið langþráður draumur
knattspyrnumanna á Selfossi sem nú er
loksins orðinn að veruleika. Selfyssingar
fóru á kostum í sumar og eru vel að þess-
um glæsta áfanga komnir. Haukar fylgja
Selfyssingum upp í efstu deild.
„Þegar maður horfir til baka sést að
þessi árangur á nokkurn aðdraganda.
Markmiðið fyrir þetta tímabil var að
byggja ofan á það sem við höfum verið
Úr hreyfingunni
Umf. Selfoss komið í hóp þeirra bestu í knattspyrnunni:
Mikil lyftistöng fyrir bæjarfélagið
að gera með liðið undanfarin ár. Það má
því segja að við höfum farið aðeins fram
úr markmiðum okkar. Bættar aðstæður
hér á Selfossi eigan stóran þátt í þessum
árangri en við tókum í notkun gervigras
fyrir tveimur árum sem breytti öllu.
Tilkoma vallarins hafði geysilega mikla
þýðingu fyrir knattspyrnuna. Það er mjög
ánægjulegt við þennan árangur að liðið
er að mestu leyti skipað heimamönnum
og það er alveg ljóst að við munum þurfa
að styrkja okkur eitthvað fyrir átökin á
næsta tímabili. Það er gaman að taka
þátt í þessu starfi og árangur liðsins er
mikil lyftistöng fyrir bæjarfélagið í heild
sinni,“ sagði Óskar Sigurðsson, formaður
knattspyrnudeildar Umf. Selfoss.
Tveir af heiðursfélögum Umf. Selfoss,
þeir Kristján S. Jónsson og Hafsteinn Þor-
valdsson, styrktu knattspyrnudeild Umf.
Selfoss um 100.000 kr. hvor í tilefni frá-
bærs árangurs meistaraflokks karla í sumar.
Selfoss náði þeim glæsilega árangri að
vinna 1. deildina og um leið að komast
upp í úrvalsdeild. Sætið var þegar tryggt
þegar tvær umferðir voru eftir af deildinni.
Þegar ljóst var hvert stefndi var ákveðið
að láta framleiða sérstaka stuðnings-
mannaboli sem á stóð „Áfram Selfoss“ og
Styrkir frá heiðursfélögum
voru þeir seldir á síðasta heimaleiknum.
Bolirnir nýtast öllum deildum félagsins,
sem eru níu talsins, fimleikadeild, frjáls-
íþróttadeild, handknattleiksdeild, júdó-
deild, knattspyrnudeild, kraftlyftinga-
deild, mótokrossdeild, sunddeild og
taekwondodeild.
Óskar Sigurðsson, formaður knatt-
spyrnudeildar Umf. Selfoss, ásamt
Esther dóttur sinni og Hafsteini
Þorvaldssyni (til hægri). Ljósmynd: ÖG
Sævar Þór Gíslason og Hjörtur Júlíus Hjartarson
fagna úrvalsdeildarsætinu. Ljósm.: Sunnlenska.
Bikarinn á loft. Selfyssingar
fagna sigri í 1. deild karla.
Ljósmynd: Sunnlenska.