Skinfaxi - 01.08.2009, Blaðsíða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Nýsköpun og sköpunargáfa eru
umræðuefni sem skjóta ekki oft upp koll-
inum í daglegu lífi fólks. Námskeiðið, sem
við fórum á í Litháen, fjallaði um þessi efni
og var það bæði gagnlegt, skemmtilegt
og opnaði þar að auki nýja sýn á sköpun
og hvernig hún nýtist okkur í daglegu lífi.
Við lentum á flugvellinum í Vilnius
klukkan hálftíu að staðartíma. Fljótlega
mætti þar maður sem fór með okkur að
langferðabílnum sem keyrði okkur í bæinn
Aukštadvaris þar sem námskeiðið var
haldið. Fyrsta kvöldið fórum við í nafna-
leiki og reyndum að læra nöfnin á fólkinu
sem við mundum verja næstu viku með.
Á námskeiðinu voru 6 Litháar, 5 Eistlend-
ingar, 5 Pólverjar, 5 Tyrkir og við þrír frá
Íslandi.
Í þessari viku komu þó nokkrir fyrirles-
arar og héldu ágæta fyrirlestra um hinar
ýmsu hliðar nýsköpunar og sköpunargáfu.
En við gerðum fleira en að sitja undir fyrir-
lestrum. Á miðvikudeginum komu 45
krakkar á aldrinum 17–18 ára úr
Aukštadvaris og verkefni okkar var að
skipuleggja tveggja og hálfs tíma dag-
skrá fyrir þau. Við höfðum aðeins tvær
kvöldstundir og nokkrar lausar mínútur í
dagskrá okkar til að skipuleggja viðburð-
inn svo að tíminn var knappur.
Margar hendur úr hinum ýmsu krókum
Evrópu lögðust á eitt og hefði þetta senni-
lega ekki tekist ef ekki hefði verið fyrir
hversu ótrúlega öflugt fólk var þarna
samankomið á einum stað. En út úr þessu
kom hin prýðilegasta skemmtun sem inni-
hélt meðal annars undarlega útgáfu af
fótbolta, dans, söng, trumbuslátt með
eldhúsverkfærum og fleira. Krakkarnir
skemmtu sér mjög vel og var viðburður-
inn talinn afar vel heppnaður.
Meðal þess sem við fengum að kynn-
ast í Litháen var nokkuð sem heitir Contact
Improvisation (gæti útlagst sem snerting-
arspuni á íslensku). Það er eins konar dans
sem byggir á snertingu við aðra, að halda
„ballans“ og að treysta á hlutverk annarra.
Við höfðum mjög gaman af þessu og
skemmtilegt var að prófa svona hluti sem
vinna svolítið gegn snertifælni nútímans.
Á þriðjudagskvöldinu var svokallað
Toastmasters–kvöld. Toastmasters
International eru alþjóðleg samtök fólks
sem hefur áhuga á að bæta sig í að flytja
ræður eða tala fyrir framan annað fólk.
Fyrir kvöldið voru nokkrir einstaklingar
valdir til að flytja undirbúna ræðu og
aðrir áttu svo að meta frammistöðu þeirra.
Sumir þurftu þar að auki að flytja óundir-
búna ræðu. Kvöldið hristi hópinn ræki-
lega saman og voru menn sammála um
að eftir það fóru vinaböndin að myndast
fyrir alvöru.
Snemma á fimmtudagsmorgun lögðum
við svo af stað til Vilnius þar sem til stóð
að eyða síðasta degi ferðarinnar. Við byrj-
Fulltrúar frá ungmennaráði UMFÍ sóttu námskeið í Litháen:
Góð reynsla og
vel heppnað
í alla
staði
uðum á því að heimsækja líftæknifyrir-
tæki þar í bæ sem kallast Teva og stend-
ur framarlega á sviði líftæknirannsókna
í heiminum. Þar fengum við fræðslu um
starfsemi fyrirtækisins og fengum svo að
ganga um rannsóknastofur sem eru
venjulega lokaðar almenningi.
Næst fengum við að heimsækja lithá-
íska þingið, Seimas. Við skoðuðum fund-
arsalina sem þar eru og alls konar minnis-
varða og menjar. Í einum salnum var svo
innrömmuð þingsályktunartillaga frá
Alþingi Íslands þess efnis að Ísland stað-
festi sjálfstæðisyfirlýsingu Litháen frá
1991. Fyrir þennan verknað telja Litháar
okkur vera hugrökkustu þjóð í heimi og
hafa þeir skýrt götu í Vilnius Íslandsgötu,
okkur til heiðurs.
Það var samdóma álit allra, sem á þetta
námskeið fóru, að það hefði verið ein-
staklega vel heppnað í alla staði og tóku
allir góða reynslu og skemmtilegar minn-
ingar með sér heim.
Gunnar Sigfússon, Andri Mar Jónsson og
Eyjólfur Darri Runólfsson
Íslendingarnir
þrír sem fóru
á námskeiðið í
Litháen. Frá
vinstri: Eyjólfur
Darri Runólfsson,
Andri Mar Jónsson
og Gunnar Sigfús-
son.
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Garðabær
Samhentir–Kassagerð ehf.,
Suðurhrauni 4
Vistor hf., Hörgatúni 2
Hafnarfjörður
Hagtak hf., Fjarðargötu 13-15
Rafal ehf., Hringhellu 9
Sæli ehf., Smyrlahrauni 17
Verkalýðsfélagið Hlíf,
Reykjavíkurvegi 64
Álftanes
GP – arkitektar ehf., Litlubæjarvör 4
Reykjanesbær
ÍAV þjónusta ehf., Klettatröð
bygging 2314
Reykjanesbær, Tjarnargötu 12
Tannlæknastofa Einars Magnússonar
ehf., Skólavegi 10
Grindavík
Grindavíkurkirkja
Þorbjörn hf., Hafnargötu 12
Reykjanesbær
Ásmundur Sigurðsson, vélsmiðja
Grænási 2
Slakki ehf., Stekkjargötu 51
Toyota, Reykjanesbæ, Njarðarbraut 19
Mosfellsbær
Álafossbúðin, Álafossvegi 23
Garðyrkjustöðin Gróandi, Grásteinum
Ísfugl ehf., Reykjavegi 36
Rögn ehf., Súluhöfða 29
Akranes
Ehf, Álmskógum 1, Álmskógum 1
Íþróttabandalag Akraness, Jaðarbökkum
Smurstöð Akraness sf., Smiðjuvöllum 2
Straumnes rafverktakar,
Krókatúni 22–24
GT Tækni ehf., Grundartanga
Borgarnes
Bókhalds- og tölvuþjónustan sf.,
Böðvarsgötu 11
Samtök sveitarfélaga í Vesturlandskjör-
dæmi, Bjarnarbraut 8
Sæmundur Sigmundsson ehf., Brákarey
Eyja- og Miklaholtshreppur, Hofstaðir
Stykkishólmur
Grunnskólinn í Stykkishólmi, Skólastíg 11
Narfeyrarstofa, Aðalgötu 3
Rauði kross Íslands Stykkishólmsdeild,
Sundabakka 1
Tindur ehf., Hjallatanga 10
Grundarfjörður
Hótel Framnes
Kaffi 59, Grundargötu 59
Ragnar og Ásgeir ehf., Sólvöllum 7
Ólafsvík
Fiskiðjan Bylgja hf., Bankastræti 1
Steinunn ehf., Bankastræti 3
Snæfellsbær
Hótel Búðir
Hellissandur
KG Fiskverkun ehf., Melnesi 1
Sjávariðjan Rifi hf., Hafnargötu 8