Ægir

Volume

Ægir - 01.06.1936, Page 12

Ægir - 01.06.1936, Page 12
130 Æ G I R fengnu samþykki ráðherrafundar. Þessi tollhækkun gildir jafnt um allar vörur, hváðan sem þær koma, og verður því að teljast líklegt að tollurinn falli á neytend- ur hér, en auðvitað er ætlast til þess um leið, að neyzla innflutts varnings minnki. Þessi tollhækkun nemur 51,20 gullpe- setum á lest af saltfisld, svo tollurinn kemst upp í 731 pappírspeseta, eða um 460 ísl. kr. Tekjurnar af þessari tollliækk- un verða um 31,5 millj. peseta, fvrir þá sjö mánuði, sem eftir eru ársins, og á að nota það fé til að styrkja gengi pesetans. Svo sem ég gat um i aprílskýrslu minni, var ákveðið, að kaupfélögin iiér skyldu fá 25% af saltfiskinnflutningnum, og átli sú ráðstöfun að draga úr verðhækkuninni á þessari nauðsynjavöru almennings. Á Norður-Spáni eru kaupfélögin all-styrk, en hér á suðurströndinni og i Kataloníu gætir þeirra lítið. Þetta ákvæði hefði því orðið til þess, að innflutningurinn til Kata- lóníu hefði minnkað um f jórðung, en auk- ist að sama skapi fyrir aðra landshluta. Þar sem leyst hefir verið upp hlutafélag hér í Barcelona, sem hafði innflutning á um 3.000 smálestum, liefði þessi takmörk- un leitt til þess, að í viðhót við aðrar tak- markanir, hefði innflutningurinn hingað fallið niður í 40% af því, sem hann var áður . Hér í Kataloníu er talið, að 1000—1400 fjölskyldur, eða allt að því 7.000 manna, byggi afkomu sína á verzlun með saltfisk. Sá þvi mikill fjöldi manna afkomu sína í liættu og ákváðu þeir, að taka sér ferð á hendur til Madrid til að ræða mál sín við stjórnina og verzlunarmálaráðherrann. Tóku nær 300 manns þátt í þeirri för, og voru þar fulltrúar fvrir innflytjendur og smásala, verkamenn í kælihúsum og við höfnina, skrifstofnmenn og afgreiðslu- menn. Tók ráðherrann allvel í mál þeirra og lofaði, að innflutningur Kataloníu skyldi elcki skertur frekar, hvað fisk snerti, svo innflytjendur í Kataloníu skyldu fá að skipta þessurn 25% milli sín. Enn vita menn ekkert livernig salt- fiskinnflutningnum i ár muni reiða af, því aðeins Frakkland og Þýzkaland, liafa fengið innflutningsskammt sinn, sem er 500 lestir fyrir Þýzkaland og 9.000 lestir fyrir Frakkland. Samningarnir við önnur lönd ganga mjög seint. Það fréttist ekk- ert um samningana við Bretland, en talið er líklegt, að hæði Danmörk og Noregur verði að ganga að jafnaðarkaupum. Hafa Danir sem stendur miklar smíðar á hendi fyrir Spánverja, þar sem eru hæði togar- arnir til Pysbe og einnig járnbrautar- mótorar. Hafa þingmenn frá Norður- Spáni, þar sem Pysbe hefir aðsetur sitt, kvartað undan þvi við stjórnina, að gjald- eyrisnefndin yfirfærði ekki fé til að greiða togarana og tefði það fvrir afhendingu þeirra, og yki atvinnuleysi. Norðmenn standa þó öllu ver að vígi, því Spánverjar vilja taka flutningsgjöld þau, er norsk skip liafa fyrir flutninga til Spánar og frá, inn i jafnaðarkaupin, en ef Norðmenn ganga að því, að einhverju leyti, munu þeir naumast geta keypt fyrir svo mikið, að þeir geti selt sama magn og áður af sallfiski. Virðingarfyllst, Helgi P. Briem. ý Guðmundur Bjarnason, kénndur við Bjarnabæ, andaðist á Landakotsspítala, hinn 12. júní þ. ár. Hann var orðlagður fiskimaður stundaði veiðar á skútum heztan hluta æfinnar. Banameinið var krahbi í lifrinni.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.