Ægir - 01.06.1936, Page 23
Æ G I R
141
Síldarverð í Skotlandi
í júní 1936.
Síldarsölunefndin hefur ákveðið verð
á síld, sem sett er á land í skozkum
höfnum, í júnimánuði, sem hér fer á
eftir:
I. Lágmarksverð á nýrri síld frá skipi,
annari en þeirri, sem veidd er í botn-
vörpur og þeirri, sem matsmenn fyrir-
skipa að hreistra, er á öllum afgreiðslu-
stöðum á Skotlandsströnd, milli Brims
Ness og Girdle Ness og þar með taldar
Orkneyjar og Shetland, eins og hér seg-
ir: Frá 1.—13. júní 1936, að báðum dög-
um meðtöldum, 16 shillings fyrir Cran;
frá 15.—30. júni 1936, að báðum dögum
ineðtöldum 18 shillings fyrir Cran.
II. Lágmarksverð á nýrri sild frá skipi,
annari en þeirri, sem veidd er i hotn-
vörpur, og þeirri sem matsmenn fyrir-
skipa að hreistra, er á sérhverjum af-
greiðslustað á Skotlandsströnd, milli
Brims Ness og Mull of Cantyre, þar með
taldar Hebrideseyjar, sem hér segir: Frá
L—30. júní, að háðum dögum meðtöld-
um, 20 shillings fyrir Cran. [1 Cran er
37^2 gallon, gallon = 41/* liter].
Þetta er lægra verð, en síldveiðamenn
höfðu áætlað, en hærra heldur en sild-
arsaltendur höfðu stungið upp á.
Fiskimenn höfðu farið þess á leit við
sildarsölunefnd, að lnin setti lágmarks-
verðið 17lli shilling fyrir Cran, fyrir njr-
veidda síld úr skipi, við austurströnd
Skotlands, að meðtöldum Orkneyjum og
Shetlandseyjum; átti það verð, að gilda
fvrir fyrri helming júnímánaðar, en 20
shillings fyrir Cran síðari helming mán-
arins, og lágmarksverð við vesturströnd-
ina, 25 shillings fyrir Cran, allan júní-
niánuð.
Síldarsaltendur liöfðu stungið upp á,
að lágmarksverð væri 15 shillings fyrir
fyrri helming júnímánaðar og 17 shill-
ings fyrir hinn síðari.
Fiskimönnum var bent á, þegar þeir
stungu upp á lágmarksverðinu, að síld-
arsölnnefndin hefði ákveðið lágmarks-
verð, eftir að hafa reiknað út hvað þeir
þyrftu að fá fyrir síldina til þess að hlut-
ur þeirra yrði svo, að þeir og þeirra
gætu haft sæmilega útkomu.
Síldarsölunefndin hefur ákveðið háta-
tölu, sem stunda má sildveiðar frá Norð-
ur-írlandi, á tímahilinu 29. maí til 11.
júlí 1936, að háðum dögum meðtöldum;
er svo ákveðið, að aðeins 47 bátar megi
þar stunda síldveiðar. Bátar, sem leyfi fá lil
að veiða sild, eru valdir, sem þar til
hæfir, af sildarsölunefndinni, sem starf-
ar á Norður-írlandi og sækja verður um
leyfi, áður en nefndin velur úr bátum.
Sala úr skipum (fyrsta afhending) sem
veiða með hring- eða dragnót, er hönn-
uð á Norður-írlandi frá 28. maí til 11.
júlí 1936, að háðum dögum meðtöldum.
Laugardaginn 6. júní, var 2 miljónum
sílda fleygt í sjóinn frá Lerwick og 300
þúsundnm frá Peterhead; var orsökin
þessi: 160 bátar fóru á veiðar föstudaginn
5. júní og komu að í Lerwick og Peter-
head morguninn 6. júní með sildarafla,
sem var að meðaltali 33 Crans á hát,
eða alls 5280 crans.
Síldarsaltendum var ómögulegt að verka
meira en 2500 crans, 700 voru látin í
reykhús, og eflir varð 2000 crans, eða 2
milljónir silda, sem ekki var auðið að
hirða. Yerð á síld var þá, 16—25 shill-
ings. Hefði verið annar dagur en laug-
ardagur, hefði mátt hjarga meiru, en
helgin fór í hönd og þá er ekki nnnið.