Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 7

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 7
Æ G I R 221 þakka lionuin liinn snilldarlega frágang, seni meðal annars á sinn þátt í að hún er einhver hreinlegasta verksmiðja á öllu landinu. En auk þess hafa vinnslu-afköst verksmiðjunnar orðið miklu meiri en samið var um i uppliafi. Þannig var sa.mið um að verksmiðjan gæti hrætt úr 500 málum síldar pr. sólarliring, en nú eru bræ,ðslu-afköst liennar orðin 800 mál pr. sólarhring. Samið var um vinnslu á 35 smál. af blautum beinum á sólarliring', en eru nú orðin 65—70 smál. Og af þorskalifur hræðir verksmiðjan 5000 lítrum meira en um var samið, eða alls 25 þús. lítra á sólarhring. Þess her jafnframt að gela, að verkliafi krafðist engrar hækkunar fyrir verkið, þó að afköst verksmiðjunnar yrðu svo mikl- um mun meiri en skriflega var samið um i uppliafi. Um það verður ekki deilt, að Akranes- ingum er liin mesta liagsbót að þessari verksmiðju, og mundu mikil verðmæti, er þar koma á land, fara forgörðum, ef liún væri ekki. Það horfir einnig nokkuð öðru- vísi við með að stunda síldveiðar i Faxa- flóa eftir að hún kom. Mundu vafalaust liafa orðið miklu færri hátar á reknetum liér í flóanum í haust, ef ekki hefði verið hægt að hræða þá síld, sem ekki er sölt- unarhæf. Það er ástæða til að óska hinni vax- andi verstöð á Skipaskaga til hamingju með þessa verksmiðju, og að hún megi í framtíð verða fiski- og útvegsmönnunum þar sú Grótta, er mali þeim ærið gull á ári hverju. Spanskir togarar á veiðum. Spánverjar eru nú byrjaðir að stunda þorsk- veiðar á ný. Síðan styrjöldin á Spáni brauzt út, en síðan eru liðin rösk þrjú ár, hafa engir togarar stundað veiðar þaðan fyrr en nú. Þrír eða fjórir spanskir togarar eru nú á veiðum á Grand Bank. Samningar fiskimanna og farmanna við togaraeigendur og' skipafélög. Það var öllum ljóst, svo að segja i sömu andránni og stríðið brauzt út, að tryggingar þeirra sjómanna, er sigla um stríðshættusvæði, yrðu að stórhækka og að þeir fengju áhætlu- þóknun þegar í stað. — Laust fyrir miðjan þennan mánuð hafði náðst samkonuilag um þessi atriði, bæði milli farmanna og skipa- félaga og fiskimanna og útgerðarmanna. Samningurinn milli farmannafélaganna og skipafélaganna var undirritaður 7. okt. Sam- kvæmt honum er áhættusvæðinu skipt i tvennt, áhættusvæði hið meira og áhættusvæði hið minna. Hið meira áhættusvæði er á siglinga- leiðum milli íslands og Englands, eða megin- Iands Evrópu, en hið minna áhættusvæði er milli íslands og Ameríku. Yfirmenn á skipum, er sigla um hið meira áhættusvæði, fá 200% áhættuþóknun til við- bótar við laun sín, en hinir, sem hafa lægri laun, fá áhættuþóknun, er neniur 250% við laun sín. En meðan skipin eru á siglingu um hið minna áhæltusvæði fá þeir, sem hafa hin hærri laun, 100% áhættuþóknun við launin, en hinir 125%. Áhættuþóknunin miðast við þá daga, sem skipin eru á siglingu, en fellur niður, þegar skipin liggja í hlutlausri höfn, eða eru á sigl- ingu hér með ströndum fram. í samningnum er auk þessa ákvæði um tryggingarupphæðir skipshafnanna, en eins og kunnugt er, eru það skipafélögin, sem sjá skip- verjum fyrir líftryggingu og örorkutryggingu. Samningurinn milli togaraeigenda og sjó- manna var undirritaður 10. okt. og er hann svohljóðandi: „1. gr. Áhættuþóknun reiknasl út frá því, að skip siglir fram lijá Reykjanesi eða Langa- nesi á útleið. Fari skipið til útlanda af svæð- inu sunnan nefndra staða, reiknast áhættu- þóknun frá þvi skipið leggur á stað. Áhættu- þóknun reiknast til þess tíma, er skipið siglir fram hjá nefndum stöðum á uppleið eða byrj- ar veiðar eða kemur i höfn sunnan Reykja- ness eða Langaness. Meira en hálfur sólarhringur á áhættu- svæðinu reiknast sem heill, en minni hluti úr sólarhring sem hálfur.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.