Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 17

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 17
Æ G I R 231 Fiskveiðabærinn, sem harðast verður úti vegna stríðsins. Tvímælalaust hefir enginn fiskveiðabær á NorSurlöndum orSiS eins átakanlega fyrir af- leiðingum stríSsins eins og Esbjerg. Vegna sprengjusvæSa ÞjóSverja og Englendinga í Englandshafi hafa fiskveiSar frá Esbjerg svo aS segja alveg lagst niSur. Afkoma bæjarins byggist fyrst og fremst á hinu iSandi slarfi í höfninni, en nú er þar gjörbreytt, ekkert líf, sárafá skip, svo aS nefna mætti hana „hina sofandi höfn“. TalsverSur hluti fiskiflotans hefir flutt sig yfir til Thyborön, en þar hefir lítiS aflazt, vegna þess hve mikill fjöldi báta er þar viS veiSar. Samband fiskveiSimanna i Esbjerg hefir sótt um (>0 þús. kr. styrk til ríkisins, til þess aS geta staSiS straum af þeim kostnaSi, aS halda bátunum úti frá öSrum verstöSvum. Þessi styrkur hefir veriS veittur. Til þess aS menn iai nokkra hugmynd um hvaSa þýSingu þaS hefir fyrir Esbjerg, ef fisk- veiSarnar þurfa aS leggjast niSur, má geta þess, aS verzlunarvelta bæjarins mundi árlega minnka um 15 milljónir krónur. — SíSastliS- inn mánuS jókst atvinnuleysiS í Esbjerg um 96%. Alll þykir benda til þess, aS ríkiS verSi aS veita Esbjerg fjárhagslega aSstoS, ef slíkt ástand, sem þar er nú, varir lengi. Þorskveiðar Norðmanna við Grænland. NorSmenn liafa lialdiS óvenjulega lengi út viS Grænland í ár. í vikunni frá 15.—21. okt. komu 0 bátar frá Grænlandi, og höfSu flestir góSan afla, eSa frá 75—108 smál. af fullstöSn- um þorski. Flestir þessir bátar höfSu selt fisk- inn fyrirfram, og fengu þeir aS meSaltali 29 aura fyrir kg, en 1 þeirra fékk 30 aura fyrir kg. Fyrir lýsistunnuíia var þeim greitt 210 kr. Tvö norsk vélskip voru enn á veiSum, þegar þessi fregn var send, og búist var við aS þau kæmu ekki heim fyrr en um mánaSarmótin okt.—nóv. Fiskimennirnir eru yfirleitt ánægSir meS aflann viS Grænland i ár, en kvarta undan, að veSriS hafi veriS heldur óhagstætt. Undir lok- in var sérlega góS veiSi þar norSur frá. Þó veiddu ]>eir HtiS, er höfðu eingöngu smásíld til beilu, en hinir ágætlega, sem gátu náS i islandssild. Fréttir úr verstöðvunum. 31. október. Þorskveiðarnar. VíSasthvar þar sem þorskveiSar hafa veriS stundaSar í haust, hefir aflazt mjög sæmilega. ViS IsafjarSardjúp hefir veriS góSur afli, einkum úti í Djúpmynni. ÞaS sem af er hausti hefir veriS óvenjulega góS vertiS i Bolungar- vík. Seint í þessum mánuði var taliS aS hlutir háseta væru orSnir um 300 krónur. í öSrum verstöðvum viS Djúp hafa menn þegar fengiS sæmilegan hlut, þótt hann jafnist ekki á viS þaS, sem orSið er i Bolungarvík. — Annars staðar á VestfjörSum hefir aflazt sæmilega, þar sem þorskveiSar hafa veriS stundaðar, einkum á Patreksfirði. Undir Jökli hefir einnig aflazt vel og einnig á Suðurlandi, en þar hafa þorskveiSar mjög lítið verið stundaðar. Isfiskveiðin. Nokkrir togarar hafa stundaS isfiskveiðar í þessum mánuði, en aðrir keypt bátafisk víðs- vegar í verstöðvunum. Hafa togararnir siglt til Englands meS aflann, en sala hefir veriS held- ur bágborin fram tii þessa. TaliS er aS tog- ararnir þurfi nú að selja fyrir 2 700—3 000 sterlingspund í hverri ferS, lil þess að rekstur þeirra borgi sig. Dragnótaveiðin. Telja má, að dragnótaveiðin hafi verið ó- venjugóð í allt haust, og svo hefir einnig verið þennan mánuð. Menn voru farnir aS óttast, að þessi veiði mundi stöðvast, vegna þess að hraðfrystihúsin gætu ekki tekið á móti meiri afla. En nú hafa húsin losnað við nokkuð af fiskbirgðunum og ætti þvi veiðin að geta haldið áfram þeirra hluta vegna. Síldveiðin í Faxaflóa. Margir bátar stunda ennþá síldveiði í Faxa- flóa, en þó eru nokkrir hættir. Hefir veiðin gengið misjafnlega. Hefir aðallega aflazt á Hafnarleir, nú upp á síðkastiS. Þess er dæmi að bátur hafi fengið þar 220 tn. í lögn.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.