Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 10

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 10
224 Æ G I R ir. Þessi sérstaða er í því fólgin, að nafn- ið á landinu okkar er nákvæmlega eins og orð eitl í ensku, nefnilega „island“ (eyja). En hvort þessi tilviljun, ef svo mætti orða það, getur valdið nokkrum bagalegum misskilningi, skal látið ósagt. Þyki Norðmönnum aftur á móti nauð- sjrn að hverfa að því ráði, sem að fram- an er greint, er álitamál, hvort að ís- lendingar hafa ekki einnig ástæðu til þess. Gera má ráð fyrir, að það sem letrað er á skipin vegna stvrjaldarinnar máist smátt og smátt burt, eða óskírist að meira eða minna leyti, einkum t. d. á togurun- um. Verður að vænta þess, að menn gjaldi ekki sinnuleysis við þeirri kröfu, að táknin verði stöðugt endurnýjuð, svo að þau verði jafnan greinileg. Brezkum togurum sökkt. Miðvikudaginn 20. september var togarinn „Davara“ frá Fleetvvood á veiðum við norður- strönd írlands — norðvestur af eyjunni Tory. — Kom þar þýzkur kafbátur og byrjaði að skjóta á togarann, án þess að hafa nokkurt tal af þeim mönnum, sem á togaranum voru. Þótt slæmt væri i sjó tókst skipshöfn logar- ans að komast í björgunarbátana. Taldist henni svo til, að kafbáturinn hefði skotið 35 skotum á togarann, áður en hann sökk. Eftir 4 stunda róður í myrkri og sveijanda voru þeir teknir upp af flutningaskipi, sem var á leið til Liver- pool. Var þá orðið svo slæmt í sjó, að þeir höfðu ekki við að ausa bátana. -—■ Þetta var fyrsti togarinn, sem Englendingar misstu i stríðinu. Siðan liafa þýzkir kafbátar sökkt 5 togurum, þar á mcðal „Ruyard Kipling", „Lord Minto“ og „Arlita“, og voru tveir þeir síðastnefndu á veiðum, er þeim var sökkt. Mannbjörg hefir orðið á öllum þessum skipum. Þýzki fiskiflotinn er nú sagður eingöngu stunda veiðar í Eystrasalti, en annars er talið að mjög litill hluti hans sé við fiskveiðar. Bókafregn. Fiskifélaginu hefir nýlega borizl liefti nr. 2 af ritum Fiskeridirektorcitets, sem fjalla um technologiskar rannsóknir. Að þessu sinni fjallar ritið um frj'stingu fiskjar og lieitir það á norsku: „Virk- ningen ai> frysehastighet, lagrings- temperatur og rástoffets friskliet pá kvaliteten av frossen fisk.“ Höfundarnir eru Olav Notevarp og Eirik Ileen. I ritinu er ágætt yfirlit rannsókna seinni tíma á þcssu sviði, auk þess sem höfundarnir lýsa ítarlega eigin rann- sóknum. Niðurstöður ritsins eru mjög í samræmi við það, sem ameríkanskar og enskar rannsóknir hafa sýnt fram á undanfarin ár. Þannig komast liöfund- arnir að þeirri niðurstöðu, að hraðfryst- ing liafi ekki þá kosti fram yfir hæga frystingu eða loftfrvstingu, sem almennt hefir verið álitið. Við samanburð á hraðfrystum fiski og hægfrystum fiski, sem þó hafði ekki tekið meira en 8 tíma að frvsta, reynd- ist þeim að um mjög lítinn gæðamun væri að ræða, hvort lieldur fiskurinn hafði verið geymdur í 1 mánuð eða leng- ur við —9° C. eða —20° C. Höfundunum reyndist liitastigið, sem fiskurinn var geymdur við, eftir fryst- inguna, liafa mesta þýðingu fyrir gæði hans. Þannig hafði fiskur, sem geymdur var við —9° C., tapað talsverðu af gæð- um sínum eftir 1—2 mánuði, en fiskur, sem gevmdur var við —20° C., var ennþá í ágætu standi eftir 5 mánaða geymslu. Rit þetta mun ekki vera til sölu fyrir almenning utan Noregs og er það skaði, því að það á erindi til allra, sem fást við frvstingu fiskjar. Þ. Þ.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.