Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 15

Ægir - 01.10.1939, Blaðsíða 15
Æ G I R 229 lagða áhættufé. Á þetta einnig við trygginga- félög þau, sem taka að sér sinn hluta af hverri einstakri tryggingu. Stjórn félagsins skal skipuð þrem mönnum. Tilnefnir ríkisstjórnin einn þeirra, og er hann formaður stjórnarinnar, annar er tilnefndur af eigendum skipa þeirra, sem eru í félaginu, en sá þriðji er tilnefndur af vátryggingafélögum þeim, sem taka þátt í tryggingunni, eða hafa lagt félaginu áhættufé. Komi skipaeigendur eða vátryggingafélögin sér ekki saman um tilnefn- ingu manna í stjórnina, skipar rikisstjórnin þá. Stjórnin skiptir að öðru leyti sjálf með sér verkuni og ákveður starfstilhögun félags- ins. — Stjórnin ákveður sjálf laun sín, en þó skulu þau samþykkt af ríkisstjórninni. Félagið má ekki taka i eigin áhyrgð dánar- tryggingu fyrir hærri upphæð en kr. 225 000.00 alls á skipi í einni og sömu ferð. Ef þessi upp- hæð nægir ekki til fyrirskipaðrar eða umsam- innar tryggingar á skipshöfninni, má félagið þó taka það, sem á vantar, með því að endur- tryggja það. Útgerðarmenn allra islenzkra skipa, sem samkvæmt samningum eru skyldir til að tryggja skipshafnir sinar gegn dauða og ör- orku af völdum striðsslysa, skulu tryggja þessa áliættu sína hjá félaginu, að svo miklu leyti sem félagið getur tekið hana að sér. Ef út- gerðarmaður slíks skips hefir ekki verið með skipsliöfn þess í tryggingu hjá félaginu og lagt fram áhættufé fyrir það, er félaginu heimilt að taka allt að 20% hærra iðgjald fyrir trygg- inguna en ella. Nú lætur tryggingarskyldur útgerðarmaður farast fyrir að tryggja skipshöfn sína, og skal hún þá eigi að siður talin tryggð, og á stríðs- tryggingafélagið sömu kröfu á iðgjaldinu og trygging hefði farið fram samkvæmt lögum þessum. Vanræksla útgerðarmanns á því að tryggja skipshöfn sína varðar sektum allt að 100 000 krónum, og skal með mál út af slíku farið sem almenn lögreglumál. Iðgjöld ákveðast af stjórn félagsins í hvert sinn eftir áhættunni eins og hún er á hverjum tíma, þó ekki yfir 50% af iðgjöldum samkv. iðgjaldaskrá þeirri, sem gildir fyrir ófriðar- tryggingu hlutaðeigandi skips á sama tíma. Iðgjöldin hafa lögtaksrétt. Nú hefir félagið á einhverjum tíma orðið fyrir svo miklu tjóni, að heliningur af áhættu- fé þess er tapaður, og getur stjórn félagsias þá ákveðið, að hækka iðgjöldin, eftir þvi sem nauðsyn krefur, þangað til jöfnuði er aftur náð. Tekjuafgangi þeim, sem kann að verða, þegar eignir og skuldbindingar félagsins hafa verið gerðar endanlega upp, skal skipt milli þeirra, sem lagt hafa fram áhættuféð, i sömu hlutföllum og áhættufjárframlag þeirra nema. Skirteini og önníir skjöl varðandi trygging- ar félagsins eru stimpilfrjáls. Ennfremur skal félagið undanþegið sköttum og útsvörum til ríkis og bæjarfélags“. Saltfisksalan. Eftir að stríðið skall á vaknaði nokk- ur kvíði meðal útvegsmanna út af því, að lítt mögulegt mundi að selja eða koma frá sér nokkru af saltfiski. Þetta hefir þó farið á annan veg en menn iiugðu og hefir fisksalan gengið mjög greiðlega undanfarið. Hefir fiskurinn verið seldur til Portúgal, Ítalíu, Grikklands og Bret- lands. Auk þess liefir nokkuð verið selt til Ameríku. Þótt eftirspurn eftir fiski liafi verið nokkuð ör undánfarið, hefir fiskmark- aðurinn þó ekkert aukizt. Spánn er lok- aður sem fyrr og allt í óvissu með, hvort unnt verður að selja þangað fisk í ná- inni framtíð. En það sem mestan þátl hefir átt i að örva saltfisksöluna, er ótti neyzluþjóðanna við að aðflutningur kunni að teppast eða jafnvel að fram- leiðslan kunni að stöðvast vegna stríðs- ins. Þetta mun fvrst og fremst Iiafa ráðið því, að hægt Iiefir verið að selja allmikið af saltfiski undanfarið og að tekizt hefir að ná dálítilli verðhækkun, þótl ekki sé hún mikil, er fyrst og fremst stafar af hinum miklu fiskbirgðum i framleiðslu- löndunum, einkum Noregi.

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.