Ægir - 01.10.1939, Page 16
230
Æ G I R
Erlendar fréttir.
Italski fiskiflotinn.
ítalir eiga.nú 105 gufuskip, sem stunda fisk-
veiðar, 126 vélskip, 108 seglskip með stórum
vélum og 998 seglskip með hjálparvélum. Auk
jiess eiga þeir ógrynni af litlum bátum, bæði
með vélum og vélalausum. Alls er talið að
75 574 menn hafi atvinnu beint og óbeint við
fiskveiðarnar, og eru þar af 25 837 reglulegir
fiskimenn.
Piskniðursuðuiðnaðurinn í Þýzkatandi 1938.
Um síðustu áramót voru í Þýzkalandi 784
stórar og smáar niðursuðuverksmiðjur fyrir
fiskafurðir. í þeim voru 4 722 reykingarofnar
og 1 359 ofnar til að steikja í. Hafði fjölgað
um 78 verksmiðjur á árinu og 300 reykingar-
ofna. 1 fiskniðnrsuðniðnaðinum unnu 19 588
manns, þegar flest var, og voru þar af 4 147
karlmenn og 15 441 kona. En þegar minnst var
að gera, sem var í lok mai, var alls í þcssum
iðnaði 14 086 manns. 1 vinnulaun voru greidd
yfir árið 25,3 milljónir ríkismarka, og er það
2 milljónum rikismarka meira en 1937. Á
þessu má marka glöggt, að fiskniðursuðuiðn-
aðurinn í Þýzkalandi liefir ekki verið orðinn
neitt smáræði.
brezki togaraflotinn.
í byrjun þessa árs áttu Bretar 1 679 togara
og var áhöfn þeirra alls talin 20 500 manns.
Undanfarin ár hefir togaraflotinn brezki not-
að að meðaltali 3 500 þús. smál. af kolum ár-
lega. Árstekjur allra togaramanna i Bretlandi
hafa verið að meðaltali um 4 milljónir £, eða
106 milljónir isl. krónur, miðað við núver-
andi gengi.
Gömul skip.
í norska blaðinu „Fiskaren“ er sagt frá þvi,
að kosin liafi verið nefnd í Færeyjum, til þess
að athuga möguleika fyrir þvi að A'átryggja
alla opna fiskibáta. Þessi nefnd á að liafa
sagt, að Færeyingum væri hin mesta nauð-
syn á að endurnýja flota sinn, þvi að helm-
ingurinn af honum er þegar 50 ára gamall.
Góð veiði við Grænland.
Við Grænland var ágætisveiði í sumar, og
telja Færeyingar að þeir hafi ekki aflað að
meðaltali á skip jafn mikið síðan 1925, eða
fyrsta sumarið, sem þeir stunduðu veiðar þar
norður frá.
Þýzkt blað hættir að koma út.
Siðastliðin tvö ár hafa Þjóðverjar gefið út
stórt og mikið hlað, er þeir nefna „Deutsche
Fischerei Rundschau“. Blað þetta er nú hætt
að koma út. Hefir verið tilkynnt, að það verði
lálið liggja niðri þangað til stríðinu sé lokið.
Stór hákarl.
Nokkrir fiskimenn, er voru á veiðum í
Adríuhafi, fengu nýlega hákarl í netið sitt,
sem vóg 3 smálestir. Urðu þeir að fá upp undir
100 manns, til þess að hjálpa sér við að ráða
niðurlögum á þessu ferliki. Hákarlinn var
sendur á náttúrugripasafnið í Belgrad.
I’ólsku síldveiðiskipin,
er voru á veiðum þegar striðið brauzt út,
leituðu öll hafnar í Hollandi. Heyrzt hefir að
komið hafi til mála að flytja þau til Englands
og sameina þau brezka fiskiflotanum.
Boðskapur Iíretakonungs til farmanna og
fiskimanna.
Skömmu eflir að stríðið skall á sendi Breta-
konungur fiski- og farmannastétt Bretlands
eftirfarandi hoðskap:
,,Á þessum alvarlegu tímum leyfi ég mér
að láta i ljós traust mitt á öllum yfirmönnum
sem óbreyttum liðsmönnum á hrezka kaup-
skipaflotanum og hrezka fiskiflotanum, fyrir
að hafa ótrauðir tekið þá ákvörðun að eiga
veigamikinn þátt í vörn landsins.
Ég vildi mega segja við sérhvern ykkar:
Starf ykkar er ekki þýðingarminna fyrir til-
veru þjóðarinnar heldur en það, sem sjóhcr
og lofther hefir verið falið að inna af hönd-
um. Þjóðin treystir nær einfarið á ykkur, hvað
snertir öflun matvæla og hráefna og einnig
livað við kemur flulningum herliðsins yfir
hafið.
Þið eigið langa og dásamlega sögu, og ég
er hreykinn af að bera titilinn „Verndari
kaupskipa- og fiskiflotans". — Ég veit, að þið
munuð gera skyldu ykkar með einbeitttni og
hugprýði og hið riddaralega starf, sem þið
eruð kallaðir lil að inna af höndum, er ör-
uggt í ykkar forsjá.
Guð styrki ykkur og verndi i hinu mikil-
væga starfi ykkar,“