Ægir - 01.10.1939, Page 18
232
Æ G I R
Löndunartæki hjá síldarverk-
smiðjum ríkisins á Sigluíirði
og’ Raufarhöfn.
Stjórn Síldarverksmiðja ríkisins hefir
á undanförnum tveimur árum margsinn-
is sótt um leyfi til þess að setja upp lönd-
unartæki við verksmiðjurnar á Siglu-
firði, en ekkert orðið ágengt, fyrr en nú-
verandi atvinnumálaráðherra, Ólafur
Tliors, tók skörulega undir þessa heiðni.
Síðastliðið sumar var rejmt nýtt lönd-
unartæki hjá Síldarverksmiðjum ríkisins
á Siglufirði, og hlaut tæki þetta nafnið
síldarbítur. Tækið er af nákvæmlega
sömu gerð og tæki það, sem Sigurður
Kristjánsson, alþm. lýsti í grein i 8. tölu-
hl. Ægis þ. á. I grein Sig. Kr. kom fram,
að hann taldi að tæki sem þetta hefði
ekki verið reynt annarsstaðar hér á landi,
en s. 1. sumar á Dagverðareyri, en svo var
ekki, og leiðrétlist það hér með. Síldar-
bíturinn hjá S.R. á Siglufirði reynd-
ist ágætlega, eins og sá á Dagverðareyri.
Löndun með síldarbítnum gekk lielmingi
fljótar en með gömlu síldarmálunum,
hjá þeim skipum, sem liöfðu nógu víð
lestarop fyrir liið nýja áliald. Leit svo út,
að með síldarbítnum mætti ná allt að
þreföldum löndunarhraða frá því sem
áður var, ef móttakan á hryggjunni gengi
eins greiðlega og austurinn lijá bítnum
myndi ganga, ef hábryggjurnar væru
teknar burtu og losað á neðri hryggj-
unum.
Síldarbítur S.R. var að lengd 1,60 m
og breidd 1 m. Lestarop skips þarf að
vera 1,5 X 2 m, til þess að löndun geti
gengið greiðlega. Þyngd bítsins sjálfs er
350 kg og rúmar hann 450 til 500 kg
síldar.
Nú hefir verið ákveðið að setja upp
liina nýju síldarbíta fyrir næstu síldar-
vertíð í 8 af 12 löndunarplássum S.R. á
Siglufirði. Ennfremur að setja flutnings-
bönd á allar bryggjur, er flytji síldina
framan af bryggjunum og upp í þrærnar.
Akveðið hefir verið að setja upp flutn-
ingsbönd á hryggjur hinnar nýju síldar-
verksmiðju á Raufarhöfn, en ekki hefir
ennþá verið afráðið, livort þar verða
settir upp löndunarkranar eins og á
Djúpavík og Hjaltevri, eða samskonar
síldarbítar og á Siglufirði.
Nú eru því allar liorfur á, ef ekki
steðja að óvænt óhöpp, að sjómenn losni
næsta sumar, að mjög verulegu leyti, við
hina erfiðu og sóðalegu vinnu við löndun
bræðslusíldarinnar, sem verið hefir sann-
kölluð þrælavinna. Löndunin mun auk
])ess ganga miklu greiðar en áður.
Þessar umbætur á löndunartækjunum
draga talsvert úr afgreiðslutöfum síld-
veiðiflotans, sérstaklega vegna þess, að
afköst Síldarverksmiðja ríkisins á Siglu-
firði og Raufarhöfn verða samtimis
aukin um 7 500 mál á sólarhring.
Sveinn Benediktsson.
Vitar og' sjómerki.
Nýr viti. Við Hornafjarðarós, þar sem neðra
dagsmerkið fyrir innsiglinguna inn ósinn stóð
áður, hefir verið reistur lítill innsiglingarviti.
Nbr. 64° 14', vl. 15° 12'. Vitahúsið er grár si-
valur turn 4 m hár. Upp úr toppi hússins er
stöng 0,8 m liá með þverslá, eins og innsigl-
ingarmerkið var áður. Vitinn lýsir rautt yfir
Hornafjörð fyrir vestan 206°, hvítt inn með
Austurfjörntanga að norðan i 206° stefnu,
grænt yfir Austurfjörutanga og Þinganessker,
hvítt inn ósinn í stefnu 267° og rautt yfir
Hvanney. Vitinn sýnir eitt leiftur 3. hverja
sek. Sjónarlengd fyrir hvíta ljósið 6,4 sm.,
rauða 4,8 sm. og græna 3,7 sm. Hæð logans
yfir sjó ca. 6 m. Logtimi 15. júlí til 1. júní.
Vitahúsið, ásamt efra innsiglingarmerkinu,
sem er óbreytt, er dagmerki fyrir innsigling-
una inn ósinn.