Ægir

Árgangur

Ægir - 01.07.1947, Síða 36

Ægir - 01.07.1947, Síða 36
218 Æ G I R Ski/Hililraimastöd Svia í Gautabnrt). A öðruin degi ráðstefnunnar flutti Ragn- ar Rödström, framkvæmdarverkfræðingur skipatilraunastöðvarinnar í Gautaborg, er- indi um teknisk grundvallaratriði varðandi tilraunir með skipslíkön. En að erindinu loknu var mönnum sýnd tilraunastöðin. — Þar starfa að staðaldri 40 menn. Yfirfor- stjóri þessarar stofnunar er H. F. Nord- ström prófessor. í forsal byggingarinnar er mjög hátt og vítt lil veggja. Þar er verk- sla>ði og eru þar smiðuð vaxlíkön. ÁTið hlið- ina á forsalnum eru teiknistofur, skrif- stofur o. fl. Afasl við líkanaverkstæðið er 2(50 m. löng bygging. Eftir henni endilangri er tjörn eða skurður, 10 métra breiður og ö m djúpur. Meðfram skurðinum beggja vegna eru járnteinar, sem skipsvagninn rcnnur eftir, en líkönin eru tengd við þenn- an vagn, þegar þau eru dregin eflir endi- löngum skurðinum í tilraunaskyni. Ávagni þessum eru mælitæki. Nákvæmni í allri smíði, er snertir tilraunastöðina, er með fágætum. Má í því sambandi geta þess, að bugða á teinunum er jafn mikil og bugð- an á yfirborði jarðarinnar. Húsakynnin eru það stór, að fundarmenn, sem voru um 270, sýndust hverfa, þegar inn var komið. Meðan fundarmenn voru sladdir þarna voru gerðar tilraunir með likön af tveim bátagerðum. Var annað af v/b Böðvari frá Akranesi. Þungi þess báts er 115 smálestir. Þegar hraðinn var 9 sjómilur, þurfti 170 hestöfl. 10 — — 280 — 11 — — 500 — Þá var gerð tilraun með likan af bát dr. I'rederiks Ljungströms. Skipsþunginn var liinn sami, en þegar hraðinn var 10 sjó- mílur, þurfti ekki nema 150 hestöfl. Bárður telur, að ísíendingarnir hafi ekk- ert séð jaln merkilegt í Svíþjóðarförinni og þessa tilraunastöð, enda hafi þar allt verið nýlt fyrir þeim. Því að þótt Englend- ingar byrjuðu á slíkum tilraunum árið 1871, þá sé það alveg nýtt að nota vísindin í þágu þeirra, sem smíða fiskiskip. Þessar tilraunir hafa orðið lil ómetanlegs gagns í sambandi við smíði stórskipa, svo að vænta íúá þess sama að því er snertir sma- skip. Einn daginn flutti K. J. Boxström, verk- fræðingur við Wedaverken í Söderlálja, ei'indi um létlmálma (aluminium) í fiskx- báta, aðallega í yfirbyggingar. Hann taldi litlar líkur til ])ess, að skipsskrokkar yrðu fyrst um sinn búnir til úr aluminum, en liins vcgar sennilegt, að litlir skemmtibát- . ar yrði smíðaðir úr þessu efni. Hann laldi, að enn þá væri ekki öruggt að sjóða saman aluminiumj)lölur, og erfiðleikar væru með hnoðun.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.