Ægir - 01.07.1951, Síða 12
160
Æ G I R
son á Bergi í Vestmannaeyjum verið skip-
stjóri á honum.
Annar aflahæsti báturinn var Baldur, er
fékk 560 smál. af fiski og 54 smál. af lifur
í 38 róðrum. Meðalafli þessa báts í róðri
varð því um 14.7 smál. Skipstjóri á Baldri
er Haraldur Hannesson í Fagurlvst.
Erlingur II var þriðji aflahæsti bátur-
inn, en hann fékk 540 smál. af fiski og
51.5 smál. af lifur í 49 róðrum.
Þessir bátar allir fengu meiri hluta afl-
ans í net.
Af togbátum var Von II aflahæst, féklc
497 smál. af fiski og 39 smál. af lifur.
Skipstjóri á Von II er Guðmundur Vigfús-
son.
Aflahæsti dragnótabáturinn var Skuldin
II, féklc 205,6 smál. af fiski og 11.5 smál.
af lifur í 48 sjóferðum. Skipstjóri á þess-
um bát er Guðjón Jónsson.
Heildaraflinn i Vestmannaeyjum á ver-
tíðinni varð 17 510 smál. miðað við sl. fislc
með haus, og er það 3637 smál. minna en
árið áður. Aflinn var hagnýttur á þennan
hátt: Saltað 9180 smál., fryst 7730 smál.,
flutt út ísvarið 480 smál. og flutt út saltað
(Stjarnan) 120 smálestir. Lifrarfengurinn
reyndist 1505 smál., og er það 105 smál.
minna en 1950. Úr lifrinni fengust 900
smál. af lýsi.
Lifrarverð 1950 var kr. 2.10 pr. kg, en
fyrir hrogn var greitt kr. 1.02. Á vertíð-
inni 1951 var verð á síld til beitu kr. 1.70
kg. Frystihúsin sátu uppi með óseldar
birgðir af síld sökum þess, hve línuver-
tíðin stóð stutt.
Heimildarmaður: Helgi Benónýsson, útgerðar-
maður i Vestmannaeyjum.
Stokkseyri.
Fimm bátar stunduðu veiðar þaðan og
öfluðu þeir allir með línu og netjuni.
Vertíð hófst 26. janúar og slóð til 9. xnaí.
Tið var einmunagóð til sjávarins allan
veturinn, alltaf norðan- og norðaustanátt,
fremur vindhæg, en oft töluverð frost. Nú-
lifandi menn muna eklti aðra eins gæfta-
vertíð á Stokkseyri, því að segja má að
varla tæki úr dag frá róðrum og þá ekki
nema einn í senn.
Byrjað var að róa með nct 3. marz, og
voru þau notuð úr því það sem eftir var
vertíðar. Afli var yfirleitt lieldur tregur
hæði á línu og í net, 3—5 smál. í róðri.
Einstöku sinnum fékkst þó góður afli, Ú*
—20 smál., en sjaldan náðist slíkur afli
nema 1—2 daga í senn. Um 19. apríl skipti
þó um til hins betra, því að þá kom afla-
hrota, er hélzt þar til vertíð lauk. Aflaðist
þá jafnan 10—14 smál. i róðri. — Þótt
talið sé, að veiði hafi yfirleitt verið heldur
treg, reyndist vertíðin þó ágæt, ein ineð
þeiin beztu, er þar hafa komið, og er það
einkum því að þakka, hve gæftir voru
góðar.
Vélbáturinn Ægir varð aflahæstur, fékk
um 294 smál. af fiski og 25 189 1. af lifur.
Mest fékk hann í róðri 29 smál. Háseta-
hlutur á Ægi varð um 13 þús. kr. Bátur þessi
er 15 rúml. að stærð, eign Jóns Magnús-
sonar og Karls Karlssonar og er Karl for-
maður á honum.
Afli hinna bátanna var 182—229 smál.
Heildarafli í verstöðinni varð 1131 smál.
Af honum voru saltaðar um 600 smál., en
hitt fryst.
Óskar Halldórsson keypti gotuna fyrir
kr. 0.80—1.20 lítrann.
Heimildarmaður: Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri, Stokkseyri.