Ægir - 01.07.1951, Page 19
Æ G I R
167
afli Björns Jónssonar talinn lagður á land
1 Reykjavík, sem ekki er rétt, þar sem
hann landaði megninu af honum í Þor-
lákshöfn. Vertíðarafli báta i Reykjavík
6efur því að þessu sinni orðið um 7000
smál., og er það um 1700 smál. minna en
í fyrra.
Heimildarmenn: Útgerðarmenn i Reykjavik.
Akranes.
Fimmtán bátar voru gerðir út frá Akra-
nesi, og í þeirra hópi var einn viðlegubát-
ur, sem ekki var alla vertíðina. Allir veiddu
bátarnir með linu.
Vertíð hófst almennt 30. janúar og lauk
19. maí. Mest alla vertíðina var norðaust-
unátt. Mest voru farnir 69 (70) róðrar, er
skiptust þannig eftir mánuðum: Janúar 2
14), febrúar 18 (21), marz 19 (19), apríl
18 (20) og 12 í maí (6).
Aflatregða var alla vertíðina. Bezt veidd-
lst i marz, en lakast í apríl. Meðalafli í
roðri eftir mánuðum var sem liér segir:
Janúar 4512 kg, febrúar 5150 kg, marz
6768 kg, apríl 3928 kg og í maí um 5 smál.
Meðalafli í róðri yfir vertíðina var 5 smál.,
°S er það rösklega hálfri smálest minna
en árið áður. Mestan afla í róðri fékk m/b
Svanur 9. marz, 18 200 kg. V/b Sigurfari.
61 rúml. að stærð, eign Bergþórs Guðjóns-
sonar o. fl., varð aflahæstur, fékk 430
smál. af fiski og um 30 þús. 1. af lifur í
68 róðrum. Meðalafli hans í róðri varð
6323 kg, en það er 55 kg minna en varð
kjá aflahæsta bátnum í fyrra. Skipstjóri á
^igurfara er Ragnar Fiáðriksson.
Heildaraflinn í verstöðinni var 4424 smál.,
en það er 1465 smál. minna en á vertíðinni
1950. Aflinn var hagnýttur þannig: Fryst
•1262 smál. og saltað 1162 smál. Saltfisk-
unnn nemur nú tæplega þriðjungi af því,
sem var árið áður.
Feita var næg alla vertíðina. Sild var
Seld á kr. 1.70 kg, en loðnan 180 krónur
ninnan. — Útgerðarmenn keyptu gotuna
yi ir kr. 1.30 lítrann. Veiðarfæratap var
uieð minnsta móti. Hæsti hásetahlutur
Ragnar Friðriksson,
Akranesi.
varð um 17 þús. kr. Tveir bátar öfluðu
eltki fyrir tryggingu, en hún var 9870
krónur.
Hcimildarmaður: Sigurður Björnsson, fiskimats-
maður, Akranesi.
Hjallasandur.
Þaðan gengu 9 bátar að þessu sinni, en
tveir þeirra þó einungis stuttan tíma. Allt
eru þetta litlir bátar og flestir opnir. Tveir
stærstu bátarnir eru um 15 rúml. Bátarnir
veiddu allir með línu.
Vertíð hófst fyrri hluta janúar og lauk
25. maí. Mest voru farnir 48 róðrar, en 70
árið áður. Mismunurinn á róðrafjöldanum
þessar tvær vertíðir orsakast ekki af því,
að tíðarfar væri verra nú en árið áður,
lieldur þvi, að fiskur gekk ekki á venjuleg
Sandamið, eða svonefndar Brúnir. Aflann
varð að sækja út á Fláka, en þangað verð-
ur aimennt ekki komist á jafnsmáum bát-
um og Sandarar róa á nema í beztu vcðr-
um.
Aflahæsti báturinn var Sædís (leigð frá
ísafirði), fékk 191 smál. í 48 róðrum. Með-
alafli hennar í róðri varð því 4 smálestir.
Lifrarfengur þessa báts varð 7745 lítrar.
Hásetahlutur á Sædísi varð um 6500 kr.
Afli v/b Baldurs var mjög svipaður, en
hann fékk mestan afla í róðri um 10 smál.
Vertíðarafli Sandabáta varð alls 627
smálestir og var hann allur frystur. —