Ægir

Árgangur

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 12

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 12
Norðursjór. Barentsliaf. Eins og kunnugt er voru síldveiðar í Norð- ursjó bannaðar á tímabilinu 1. febr. til 15. júní s. 1. ár, að undanteknu lítilsháttar magni, sem leyft var að veiða til manneldis og beitu. Nam hlutur íslands á tímabilinu 2.500 lestum, svip- aðar reglur giltu á árinu 1972. Komið hefur í ljós að undangengnum ýtarlegum rannsóknum, að þessar aðgerðir hafa enganveginn reynzt nægar til að rétta við síldarstofnana. Eru þeir nú í bráðri hættu. Á fundi NA-Atlantshafsnefndarinnar, sem haldinn var í desember s. 1. var reynt að ná samkomulagi um frekari aðgerðir til að draga úr sókninni. Segja má, að fundarmenn hafi verið sammála um að setja heildaraflakvóta fyrir árið 1974. Hinsvegar eru enn skiptar skoðanir um skiptingu kvótans milli þeirra þjóða, er síldveiðar stunda í Norðursjó. Annar fundur verður haldinn um málið 11.- 13. marz n. k. Þar til niðurstöður þess fundar liggja fyrir, gilda sömu friðunarreglur og á s. 1. ári. Á s. 1. sumri máttu íslenzk síldveiði- skip ekki landa í dönskum höfnum afla, sem veiddur var austan línu, sem hugsaðist dregin úr Hanstholm í Líðandisnes. Islandssíld. Einhverjar vonir eru nú bundnar við, að þessi síldarstofn sé í vexti. Enn líða samt án efa allmörg ár þar til talið verður óhætt að heimila veiðar að einhverju ráði. Á s. 1. ári giltu reglur um takmörkun sóknar í þennan síldarstofn, sem settar voru á grund- velli samkomulags, sem náðist í þessu efni milli íslands, Noregs og Sovétríkjanna síðla árs 1970. Bannaðar voru allar veiðar á kynþroska síld af þessum stofni á hafsvæðinu milli ís- lands og Noregs, þó ekki á skýrslusvæði Va (íslandsmið). Norðmönnum voru hinsvegar heimilaðar veiðar á um 9 þús. lestum af feit- síld og smásíld. Á ársfundi NEAFC á s. 1. vori náðist sam- komulag um algjört veiðibann fyrir þessa síld á árinu 1974, nema á skýrslusvæði Va, þó með þeirri undanþágu, að aðildarríkjum væri heim- ilaðar veiðar á smásíld og feitsíld sem nemi 20% af afla þeirra á árinu 1969. í raun þýðir þetta, að Norðmenn mega veiða um 7 þús. lestir og Rússar um 1600 lestir. Þeir síðar- nefndu munu þó ekki notfæra sér þennan rétt. Eins og kunnugt er hefur ástand fiskstofna, sérstaklega þorsks og ýsu, á þessum slóðum farið mjög hrakandi undanfarin ár. Þær þjóð- ir, sem þarna hafa mestra hagsmuna að gæta, þ. e. Bretar, Norðmenn og Rússar, hafa und- anfarin ár gert ýtarlegar en jafnframt árang- urslausar tilraunir til að ná samkomulagi um verndun þessara fiskstofna. Nú virðist hins- vegar hilla undir samninga þessarra ríkja. NV.-Atlantshaf. Á s. 1. ári tóku gildi víðtækari og strangari reglur um takmörkun sóknar og verndun fisk- stofna á þessu svæði. Bættust við nýir fisk- stofnar og víðáttumeiri svæði. Er einkum um að ræða nýja kvóta og jafnframt lækkun nokk- urra, er þegar voru í gildi. Við upphaf þessa árs gekk í gildi kvóta- fyrirkomulag við Vestur Grænland. Þá náðist á s. 1. ári samkomulag með flest- um þeim þjóðum er veiðar stunda við Fær- eyjar um takmörkun heildarsóknar á þeim slóðum og nokkur forréttindi til handa fær- eyskum fiskimönnum. Hvaið er framundan? Þær ráðstafanir til friðunar og endurupp- byggingar fiskstofna á fjarlægum fiskislóðum, sem nefndar voru að framan, munu án efa verða í gildi nokkur næstu ár með litlum breytingum. Á íslandsmiðum verður að gera ráð fyrir áframhaldandi friðunaraðgerðum fyrir síld og humar. Sókninni í aðra ofveidda eða fullnýtta stofna mun minnka verulega á næstu árum, er erlend skip draga úr afla sínum hér við land. Má af þeim sökum gera ráð fyrir að hlutdeild okkar í heildarafla þessarra tegunda fari vax- andi. Sjálfsagt verðum við að fara að öllu með gát og notfæra okkur ekki að öllu leyti fyrst í stað það aukna svigrúm, sem myndast við brottför hinna erlendu veiðiskipa. Gert er ráð fyrir eitthvað minnkandi þorsk- gengd á þessu ári. Síðla þessa árs og á árunum 4 — ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.