Ægir

Árgangur

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 24

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 24
bóndann. Hér er átt við Dani, og þó sá hefði haft hag af samskiptum við smábóndann, hirti hann lítt um að gæta réttar hans á stund- um. Þó var bjargálnabóndanum ljóst, að eyjar- höfðinginn átti alls ekki þann rétt, sem hann tók sér í skjóli aflsmunar. Að því kom þó að eyjarhöfðinginn þvingaði bjargálnabóndann til að gera samning við sig um upprekstrarrétt hjá smábóndanum, granna hans. Að vísu var samningurinn gerður að smábóndanum for- spurðum, en kostur var að hann var uppsegj- anlegur og þar með var réttur smábóndans ekki með öllu fyrir borð borinn og engu glatað að því leyti, þar eð samningurinn skapaði ekki meira en í honum fólst. Smábóndinn sagði samningnum upp fyrir um 20 árum og setti sínar reglur um not eyjarhöfðingjans og ann- arra af upprekstrarlandinu og hugðist nú nota það meira sjálfur en áður. 6 árum síðar sá hann að lífsafkoma sín byggðist á því að land- ið yrði ekki of beitt og þrengdi nú frekar kost eyjarhöfðingjans með nýjum reglum. Nú fyrir ári varð honum ljóst að ekki kæmi til mála að aðrir en hann og hans fjölskylda nytjuðu landið og gerði hann því viðeigandi ráðstaf- anir. Eyjarhöfðinginn vildi ekki sætta sig við þær aðgerðir og kærði málið til dómstóla. Er málið skyldi tekið fyrir, neitaði smábóndinn að mæta á þeirri forsendu að krafa eyjarhöfð- ingjans væri löglaus og hann væri ekkert upp á það kominn að láta dómstól dæma um lífs- bjargarrétt sinn. Enda þótt fjöldi manna sýndu smábóndanum fram á, að hann væri öruggur um að vinna málið fyrir dómstólnum, sat hann við sinn keip og í stað þess að málið væri rekið á eðlilegan hátt fyrir dómstólnum, hófust illindi milli þeirra bændanna, sem eng- inn sér fyrir endann á, né veit hvað kunni að kosta og er þar kapp eyjarhöfðingjans svo blint, að það jaðrar við glæp. Samskipti okkar og Breta eru að ýmsu leyti lík þessu, en það sorglega í því sambandi er það, að upphafið má að nokkru rekja til þess að við höfum hundsað Alþjóðadómstólinn, sem getur orðið hróðri okkar sem þjóðar til ævar- andi hnekkis. Nú hallast óhjákvæmilega á smábóndann í dæminu, okkur Islendinga, og gátu þó flestir séð það fyrir, enda allógæfuleg leið valin. Enginn neitar því nú, að framkoma Breta var svívirðileg, en íslendingar sjálfir gætu hins vegar gengið svo langt í viðbrögðum og gripið til aðgerða, sem naumast sæma í sam- skiptum siðaðra þjóða, sem og gætu leitt til þess, að aðrar þjóðir yrðu með öllu ónæmar fyrir ofbeldisaðgerðum Breta gagnvart okkur. Væri þá síðasta hálmstráið fokið, því þrátt fyrir allt geta íslendingar aldrei sigrað í vopnaviðskiptum, og einustu vopn okkar hljóta að vera lög og réttur, en að þeim frágengnum hlýtur það að vera samvizka heimsins. Sljóvg- ist hún gagnvart okkur er illa farið og því miður er hætt við að þannig gætu málin skip- ast, svo sem aðeins skal vikið að hér á eftir. Dæmi um þetta var ákvörðun ríkisstjórnar- innar um skilyrðisbundna viðtöku á slösuðum sjómönnum og sjúkum af brezkum togurum. Um 10 ára skeið vann ég sem framkv.stjóri R.K.Í., auk þess sem ég átti sæti í stjórn hans og er mér fullkomlega ljóst að umrædd ákvörðun ríkisstjómarinnar var brot á Al- þjóðasamþykktum Rauða Krossins og að þá- verandi stjórn Rauða Kross íslands hefði ekki verið lengi að mótmæla slíkri samþykkt og hér er um rætt. Hefði svo farið, að til þess hefði komið að fyrirmælum þessum væri framfylgt, hefði það getað orðið hneyksli á alþjóðavísu. Fleiri atriði mætti benda á, sem orkað gætu tvímælis, þegar málið er skoðað í framan- greindu ljósi, en skal ekki gert. Þess skal þó getið, að óvist er með öllu að stjómmálaslitin við Breta hefðu á neinn hátt bætt málstað okkar gagnvart öðrum þjóðum, en að eiga vel- vilja og samúð heimsins er höfuðatriði fyrir okkur. Þá er hins að gæta, að hefði stjórnmála- sambandinu verið slitið, þá var fremur hætt við að háskinn á hafinu hefði aukizt og það hefði verið illt og málið alvarlegra en áður. Manni gæti flogið í hug að ekki séu allir jafn spenntir fyrir því að við sigmm fyrir Alþjóða- dómstólnum og vera má að einmitt það atriði hafi valdið því, að sumir sem em þess sinnis hafa fengið menn í lið með sér til að hvetja til þess að gerðar væm nú þegar kröfur til 200 sjóm. landhelgi, þvi þá mætti með nokkmm sanni halda þvi fram að málarekstur um 50 sjóm. þjónaði engum tilgangi og þar með væru þau málaferli úr sögunni. í framhaldi af þess- ari áskorun hefur stærsti stjómmálaflokkur þjóðarinnar sett fram eins konar yfirboð um að landhelgin verði færð út í 200 sjóm. fyrir 16 — Æ GIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.