Ægir

Árgangur

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 22

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 22
Gunnlaugur Þórðarson: Island og Alþjóða- dómstóllinn Þau átök, sem urðu í síðasta þorskastríði við Breta sýndu okkur greinilega vanmátt vopn- lausrar þjóðar, er reynir að etja kappi við vopnað stórveldi. Dvergurinn kann að sýnast hugdjarfur, er hann leggur til atlögu við ris- ann, en kapp er því aðeins réttlætanlegt, að því fylgi forsjá. Þar með er ekki verið að mæla bót fram- komu Breta, sem ekki er bót mælandi. Hún er ofbeldisfull og heimskuleg. En sú spumingin, verður allt að einu ekki umflúin: — Eru vopn- uð átök ekki síðasta úrræði vopnlausrar þjóð- ar? Var ekki allt reynandi fyrst? Það er mín persónulega skoðun og margra annarra, að til þessara átaka hefði aldrei þurft að koma. Bretar voru fúsir að leggja fiskveiðideiluna fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag. Þar vorum við meira en jafningjar Breta; þar gátu rök okkar og skýlaus réttur fært okkur fullan sigur, ef rétt var á haldið. Ekki var samstaða um það hér á íslandi að leggja fiskveiðideiluna fyrir Alþjóðadómstól- inn. Hver eru þá helztu rök þeirra, er því höfnuðu, og hver eru gagnrök hinna? Rök þeirra, sem andvígir voru því, að Al- þjóðadómstóllinn fjalli um málið voru fyrst og fremst þau, að um þetta mál ættum við einir lögsögu og öðrum þjóðum komi málið ekki við og að engin þjóð legði lífsafkomu sína undir Alþjóðadómstól. — sem sagt í fáum orðum mótast afstaða þeirra, sem and- vígir eru því að málið verði rekið fyrir Al- þjóðadómstólnum, eins og ég hef áður bent á, af ótta við að tapa málinu, — en einnig þeim hugsunarhætti, að eigi mætti á það reyna hvort samningurinn frá 1961 hafi verið sá smánar- og óhappasamningur, sem sumir hafa viljað vera láta. Þá er því stundum borið við að dómarar Alþjóðadómstólsins séu gamlir menn eða að þeir séu leppar stórveldanna eða ríkisstjórna sinna, skal vikið að því síðar. Því er ekki að neita að landhelgismál okkar snerta grannríki okkar beint eða óbeint. Grannþjóðirnar hafa sótt og hagnýtt sér okk- ar mið, þannig að þær telja sig eiga nokkurn rétt og því sjónarmiði þeirra verður ekki með öllu á móti mælt eins og nú er í pottinn búið. — Hitt er svo annað að líísafkoma okkar hef- ur byggst á því, að fá einir að búa að auðlind- um yfir landgrunninu og þar er kjami málsins. Það er vissa mín og fjölda annarra, að þeim rétti muni enginn alþjóðastofnun, hvað þá al- þjóðadómstóll neita okkur um; þróun mála gagnvart 200 sjómílna viðáttunni, er verulegt innlegg í það mál, hinsvegar er þyngst á met- unum fom og söguleg sérstaða okkar. Þegar til þess er hugsað, að svo langt sem það nær, eru Alþjóðadómstóllinn og alþjóða- ráðstefnur á vegum Sameinuðu þjóðanna hlið- stæður eins og Hæstiréttur og Alþingi, var það í mótsögn við sjálft sig að vilja fara með land- helgismálið fyrir alþjóðaróðstefnur, eins og Hafsbotnsráðstefnan er, en ekki fyrir Alþjóða- dómstól, sem er margra hluta vegna miklu vænlegri vettvangur til sigurs í landhelgis- málinu og þar með skýlausari grundvöllur. Allt er á huldu um hver verði niðurstaða Hafsbotnsráðstefnunnar, ef hún verður þá nokkur. Að þvi leyti kaupum við köttinn í sekknum með þátttöku okkar. Það hefði verið meir í samræmi við þá ákvörðun að hafa snið- gengið Alþjóðadómstólinn, að ríkisstjórn ís- lands hefði hafnað því að taka þátt í um- ræddri alþjóðaráðstefnu, þar eð hún gæti ekki samþykkt alþjóðalög, sem við teldum okkur ekki unnt að virða, — en ekki er það tillaga mín. Við megum ekki gleyma þvi að upphaf þeirra átaka, sem orðið hafa á hafinu í kring- um okkur stafa öðrum þræði af því að ríkis- stjóm íslands ákvað að sniðganga Alþjóða- dómstóllinn og að í skugga þeirra vanvirðu nota andstæðingar okkar tækifærið til víta- 14 — ÆGIR

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.