Ægir

Árgangur

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 13

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 13
1975 og síðar ætti hinsvegar vænlegs þorsk- árgangs frá 1970 að fara að gæta í aflanum. Hrygning og klak virðist og hafa heppnast vel hjá ýmsum mikilvægum fisktegundum á s. 1. ári. Kemur sá árgangur af þorski væntan- lega í gagnið á árinu 1978 og um 1976 af loðnu. Spáð er góðri loðnuvertíð á þessu ári, svo og á árinu 1975 að öðru óbreyttu. Stefnumótun. Þetta svigrúm, sem að ofan getur, og þann tíma, sem fyrir hendi er verðum við hinsvegar að nota til að endurmeta ástand stofnanna, stærð þeirra og veiðiþol. Þá verðum við og að móta þá stefnu, sem við ætlum að fylgja við hagnýtingu þeirra í framtíðinni. Markmiðið hlýtur að vera að nýta stofnana á þann hátt, að ná fram sem hæstri meðalnýtingu yfir langt tímabil og forðast sveiflur í aflabrögðum, sem stafa af of miklu tímabundnu álagi, eftir mætti. í þessu sambandi er og nauðsynlegt að hyggja að stærð þess flota og samsetningu, sem við ætlum að beita við veiðarnar. Ef sú staðreynd er höfð í huga, að magn það, sem veiða á, er náttúrulega takmörkunum háð, leiðir af sjálfu sér, að miða á afkastagetu fiskiskipastólsins við langtímaafrakstursgetu fiskstofnanna. Mörg vandamál blasa hér við — hagræns, pólitsks og félagslegs eðlis. Þótt vandamálin séu mörg, afsakar það ekki athafnaleysi eða að láta reka á reiðanum. Um fiskveiðihagsmuni okkar á fjarlægum miðum hafa skammtíma sjónarmið um of ver- ið látin ráða ferðinni. 1 þessu efni þarf að sjálfsögðu einnig að móta stefnuna með hlið- sjón af langtímahagsmunum. Vitað er að fisk- veiðimörk flestra eða allra strandríkja munu breytast í náinni framtíð. Áhrif þeirra breyt- inga, sem hér um ræðir munu einkum snerta núverandi hagsmuni okkar í Norðursjó og við A.-Grænland. Eðlilegt er einnig að hafa í huga að áður fyrr höfðum við hagsmuna að gæta á öðrum hafsvæðum. Sumir hafa viljað gera lítið úr þýðingu síld- veiðanna í Norðursjó fyrir útgerðina og þjóð- arbúskapinn. Þessu er hinsvegar öfugt farið. Landað aflaverðmæti íslenzkra síldveiðiskipa í Norðursjávarhöfnum nemur allverulegum hluta útflutningsverðmætis sjávarafurða. Tekjur útgerðar og sjómanna síldveiðiskip- anna eru að jafnaði meiri en í flestum öðrum veiðiskap. Ótalið er þá, að sá floti, sem síld- veiðarnar stundar á um sinn ekki hægt um vik að snúa sér að öðru yfir sumar- og haust- mánuði. Mikilvægt verður að telja, að hinir stærri togarar okkar og línuveiðarar fái aðstöðu til að athafna sig við Grænland og víðar. Markaðsmál. Segja má, að þýðingarmikill þáttur í stefnu okkar í markaðsmálum hafi verið mótaður með aðild okkar að EFTA á sínum tíma og síðar með viðskiptasamningum við EBE, sem undirritaður var á miðju ári 1972. Sá samn- ingur gengur hinsvegar ekki í gildi, að því er sjávarafurðir snertir, fyrr en deilan, sem upp- hófst með útfærslu fiskveiðimarkanna í 50 mílur, hefur verið leyst. Er þessi dráttur á gildistöku samningsins þegar farinn að valda tjóni. Kemur hvorttveggja til frestun á lækk- un tolla í hinum eldri EBE löndum og hækk- andi tollar í Bretlandi frá EFTa samningnum. Er þessa ekki sízt farið að gæta á löndunum ísfisks í evrópskum höfnum. Vonandi verður unnt að leysa deiluna við V.-Þjóðverja, sem virðist síðasti þröskuldur í veginum, á viðunandi hátt. Skortur á mannskap við veiðar og vinnslu. Ekki er það nýlunda hin síðari ár, að erfið- lega hafi gengið að manna fiskiskipaflotann og vinnslustöðvar. Á hinn bóginn má segja, að koma hinna fullkomnu skuttogara til landsins og dreifing þeirra um landsbyggðina hafi fært þessa erfiðleika á annað stig. Verði útgerð þeirra að þeim vonum, sem við þá eru bundnar, munu þeir að því leyti flýta þróun, sem þegar var byrjuð. Draga mun úr tímabundnu atvinnuleysi í mörgum sjávarplássum víðsvegar um land, eða flutningi manna þaðan til vertíðarsvæðisins í leit að atvinnu. Hinsvegar munu og skapast auknir erfiðleik- ar í hinum hefðbundnu vertíðarplássum, þar sem framboð vinnuafls mun minnka að öðru óbreyttu. Voru þó oft á tíðum ærnir erfiðleik- ar þar fyrir að manna báta og vinnslustöðvar yfir há-annatímann. ÆGIR — 5

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.