Ægir

Árgangur

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 17

Ægir - 15.01.1974, Blaðsíða 17
það séu áhrif kjötframleiðenda, sem er þáttur í því að stjórnvöld Nigeríu vilja ekki fallast á lágmarksverð okkar á skreið. Enn eru önnur öfl að verki í Nigeríu sem eru á móti skreiðarinnflutningi. Það eru þeir aðilar, sem hafa á undanförnum árum verið að byggja frystigeymslur í aðalhafnarborgum Nigeríu, í Lagos og Port Harcourt, til þess að geta keypt fisk af togurum marga þjóða, sem veiða í Atlantshafinu vestur af Nigeríu og í kringum Kanaríeyjar. Þessar þjóðir eru Pólverjar, Austur-Þjóðverjar, Rússar, Japanir, Spánverjar og ef til vill einhverjir fleiri. Útflutningur Norðmanna. Það hefur komið fram í FISKETS GANG að til 30. september 1973 fluttu Norðmenn út 3.500 tonn til Nigeríu. Þar af voru flutt út um 2.000 tonn út á inn- flutningsleyfi frá árinu 1972, sem giltu til 31. marz 1973. Um 1500 tonn hefur norska ríkis- stjórnin keypt af framleiðendum og notað það magn sem greiðslu á tillagi Noregs til Mat- vælastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem á vegum FAO í Róm er dreift til Nígeríu og þannig er flutt skreið til Nigeríu og tel ég að það meðal annars hindri að beinar sölur séu gerðar á skreið til Nigeríu. ERLENDAR FRÉTTIR Veiðarnar í hættu Eftirfarandi grein er endursögð úr Fiskets Gang, en þangað komin úr Svenska Vástkust- fiskaren og þangað komin úr Gautaborgar Handels- och Sjöfarts Tidning svo að það er búið að vera all-mikið ferðalag á þessari grein ekki veigameiri en hún er. Það er kannski ekki ófróðlegt fyrir lesendur Ægis að kynnast þessu sænska sjónarmiði. „Norsk sjálfsbjarg- arviðleitni hefur alltaf verið mikil og nú lýsir hún sér meðal annars í því, að norskir fiski- menn krefjast fiskveiðilögsögu jafnri auð- lindalögsögu á hafinu úti fyrir ströndum Nor- egs, en það þýðir 200 sjóm. fiskveiðilögsaga. Norska stjómin hlustar með mikilli virðingu á þessar útþensluáætlanir fiskimanna. Samt er stjómin svo kurteis að benda á, að til mála komi gagnvart sænskum fiskimönnum að veita þeim einhverjar ívilnanir. þá höfum við þetta: Fyrst taka þeir sér sjálfdæmi og réttinn í sínar hendur og brjóta alþjóðareglur, en næst bjóða þeir sænskum fiskimönnum af mikilli náð að veiða á alþjóðafiskislóð, sem hinn norski sjó- og hnefaréttur ætlar að leggja und- ir Ólaf konung. Það getur því farið svo, að sænska stjórnin og sænskir fiskimenn lendi í þeirri niðurlægj- andi aðstöðu, að verða að semja um rétt til að veiða á þessu alþjóðasvæði. Það hefði hörmulegar afleiðingar fyrir veið- ar fiskimannanna á vesturströnd Sviþjóðar, ef Norðmenn gera alvöru úr hótunum sínum. Helmingur fiskiflota vesturstrandarmann- anna yrði þá verkefnalaus og önnur strandríki þá gripin mjög líklega sama útfærsluæðinu. Danmörk og England færu að dæmi Noregs. Þar sem íslendingar eiga meira undir sínum fiskveiðum en Norðmenn, þá myndu þeir enn taka upp málið og telja sig þurfa að færa meira út en Norðmenn, og segðust ekki komast af með minna en suður-amerísku mörkin, það er 500 sjóm. fiskveiðilögsögu. Heath má þá vænta þess, að Temsárósar lendi annað hvort innan lögsögu íslendinga eða Norðmanna. Það væri nú sennilega réttast fyrir Norðmenn að byrja á því að krefjast alls Idefjarðarins og um leið réttarins til að kosta hreinsun hans.“ ÆGIR — 9

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.