Ægir - 15.01.1974, Page 28
NÝ FISKISKIP
Fjölnir ÍS 177
30. oktober s. 1. afhenti
Slippstöðin h.f. nýbyggingu
nr. 51, Fjölnir ÍS 177, sem er
eign Sæbjargar h.f., Þingeyri.
í 10. tbl. Ægis 1973 er m/s
Bjarnarey VE 501 lýst, sem
var nýbygging nr. 45 hjá
Slippstöðinni. M/s Fjölnir er
byggður eftir sömu teikningu
og m/s Bjarnarey, nema hvað
breyting hefur verið gerð á
skut skipsins, sem er gafllaga.
Skipið er byggt úr stáli, 142
brl. að stærð og mesta lengd
31,15 m. Að öðru leyti vísast
í mál og stærðir fyrir m/s
Bjarnarey í 10. tbl. þó eru
brennsluolíugeymar heldur
stærri, eða um 30 m3. Undir
þilfari eru fimm vatnsþétt þil
sem skipta skipinu í eftirtalin
rúm: Stafnhylki (neyzlu-
vatn); íbúðir framskips; fiski-
lest; vélarúm; íbúðir aftur-
skips og skuthylki fyrir
brennsluolíu. Undir íbúðum
framskips eru ferskvatns-
geymar, en milli íbúða og
fiskilestar eru asdikklefi,
keðjukassar og brennsluolíu-
geymar. í vélarúmi eru tveir
síðugeymar fyrir brennsluolíu.
Tveir 3ja manna klefar eru
í framskipi, en í afturskipi
eru einn 3ja manna og tveir
einsmanns klefar.
Fremst á aðalþilfari er lok-
aður hvalbakur, þar sem er
snyrtiklefi og geymsla fyrir
veiðafæri. Að aftan er þilfars-
hús. Út við síðu, bakborðsmeg-
in í þilfarshúsi, er gangur fyr-
ir beitningaraðstöðu, en aftast
í þilfarshúsi er ca. 16 ms beitu-
frystir (línubalakælir) og auk
þess lítill affrystiklefi fyrir
beitu. Til hliðar við gang og
framan við beitufrysti eru
vistarverur áhafnar, þ. e. borð-
salur, eldhús, matvælageymsl-
ur, snyrting og vélareisn.
Á bátaþilfari er stýrishús,
kortaklefi og skipstjóraklefi.
Aðalvél skipsins er MWM,
gerð TBD 440-6, 765 hö. við
850 sn/mín. Vélin tengist
gegnum niðurfærslugír (2:1)
Liaaen skiptiskrúfuútbúnaði,
gerð ACG 45/355. Skrúfa
skipsins er 3ja blaða með
1600 mm þvermáli. Utan um
skrúfu er skrúfuhringur.
Hjálparvélar eru tvær Cater-
pillar D 330 NA, 67 hö. við
1500 sn/mín. Hvor vél knýr
Newag-Stanford rafal 45 KVA,
3x220 V, 50 rið. Stýrisvél er
rafstýrð vökvaknúin af gerð-
inni Tenfjord L 115. í skip-
inu er hydroforkerfi, bæði sjó-
og ferskvatns-, frá Bryne Mek.
Verksted. íbúðir eru hitaðar
upp með rafmagnsofnum.
Vindubúnaður skipsins er
vökvaknúinn (lágþrýst kerfi)
frá Vélaverkstæði Sig. Svein-
björnssonar h.f. Togvinda er
af svonefndri 16 tonna gerð.
Vindan hefur tvær togtromlur,
sem hvor um sig tekur um
600 faðma af 2 vír, tromlu
fyrir bómuvír, 2 keðjuskífur
og 2 spilkoppa. Togátak vind-
unnar á miðja tromlu (630
mm^) er 6,8 t. og vírahraði
60 m/mín. Línuvinda hefur
2,5 t. togátak og bómuvinda
0,7 t. Framan á aðalvél er afl-
úttak fyrir vindudælu, sem er
Allweiler SNH 2200. Á ann-
arri hjálparvélinni er vara-
dæla fyrir vindukerfi, Allweil-
er SNH 440. Skipið er búið
toggálgum fyrir skuttog.
f skipið var sett norsk línu-
vélasamstæða frá Trio-Must-
ad. Línuvélasamstæða af þess-
ari gerð var reynd um borð í
Ásþór RE 395 sumarið 1972
(sjá Ægi 1972, 16. tbl.). Sam-
kvæmt upplýsingum eigenda
Fjölnis ÍS var vélasamstæðan
aðeins örfáa daga um borð,
þar sem árangur var að þeirra
áliti óviðunandi. Fiskilest er
einangruð með polyurethan og
klædd með 4-ra mm stálplöt-
um. Lestarstoðir eru úr stáli,
en uppstilling úr áli.
Lest skipsins er kæld og eru
kælileiðslur i lofti lestar. Kæli-
vél fyrir lest er Bitzer IV W.
Fyrir beitufrysti (línubala-
kæli) er Bitzer IV W kæli-
þjappa og Kuba blástursele-
ment. Fyrir matvælakæli,
matvælafrysti og affrystiklefi
er Bitzer n W kæliþjappa.
Kuba blásturselement eru í
matvælaaffrysti og affrysti-
klefa, en kælileiðslur í mat-
vælakæli. Kælimiðill er Freon
12.
Af siglinga-, fiskleitar- og
fjarskiptatækjum eru þau
helztu:
Ratsjár: 2 stk. Decca, RM
926 (60 sml.) og RM 916
(48 sml.)
Miðunarstöð: Koden KS 500.
Loran: Mieco, gerð 6805.
Sjálfstýring: Sharp Helsman.
Dýptarmælir: Simrad EQ 38.
Fisksjá: Simrad C I.
Asdik: Simrad SL
Talstöð: Sailor T 122/R 105,
400 W, S. S. B.
Örbylgjustöð: Sailor RT 141.
Skipstjóri á Fjölni ÍS er
Trausti Egilsson og 1. vél-
stjóri Matthías Bjarnason.
Framkvæmdastjóri útgerðar-
innar er Magnús Amlín.
*
Ægir óskar eigendum og
áhöfn til hamingju með þetta
glæsilega fiskiskip.
20 — ÆGIR