Ægir - 01.04.1974, Blaðsíða 11
Mynd U. Á myndinni sést flotbúr, þar sem alinn
er gulfiskur. Búrið er H metrar í þvermál og 7
metra djúpt.
Þessi nýja tækni hafði þó þá annmarka, að
°ft varð að endurnýja hlekkina (eða liðamót-
in). Hins vegar hefur komið í ljós að vinna
°g viðhald við þessi nýju búr er margfalt minni
en við hin gömlu.
I Fisliing International í ágúst 1972 var
sagt frá fiskibúri, sem hannað hafði verið af
Taiyo Gyogyo og Niigata Engineering Com-
pany með styrk frá ríkinu og miðað var við
að prófa það við strendur Japan. Búr þetta
en þannig gert að unnt er að sökkva þvi þegar
veður eru slæm.
Lax.
Lax er aðallega alinn í Norður-Japan (við
LAKE Saroma). Búrin, sem notuð eru við
laxeldið eru mjög stór, allt að 55 metrum í
þvermál, og 25 metra djúp. Að visu er laxinn
alinn í minni búrum, meðan hann er smár, en
fluttur í þessi stóru búr, þegar hann hefur
náð 500 gr. stærð. Vegna þess, að sjórinn við
Norður-Japan er kaldari en t. d. Seto-sjórinn,
eru ekki eins mikil óþægindi af gróðri þar.
Regnbogasilungur.
A síðasta áratug hafa farið fram umfangs-
miklar athuganir á hvernig rækta megi regn-
bogasilung í söltu vatni (þ. e. a. s. venja sil-
unginn á að þrífast í söltu vatni, en regnboga-
silungur lifir annars í fersku vatni). Vegna
þessara rannsókna hefur framleiðsla regn-
bogasilungs tífaldast á síðasta áratug, og er
nú um 15000 lestir árlega. Fyrstu tilraunirnar
voru gerðar 1966 við Miyagi Prefectural Fish-
eries Experimental Station á Norður-Honshu
°g þóttu takast mjög vel. Þetta varð til þess
að farið var að rækta regnbogasilung við Okai-
chiflóa og gengur sú starfsemi mjög vel. Má
geta þess að tilraunastöðin við Okaichiflóa
kostaði 76.000 sterlingspund á sínum tíma.
Þar sem ekki er unnt að setja regnbogasil-
ungsseiði beint í salt vatn, þá eru þau fyrst
alin í þróm uppi á landi, þar sem þau eru
höfð í blöndu af sjó og vatni, meðan þau venj-
ast seltunni, en síðan þegar seiðin hafa vanizt
seltunni, eru þau flutt út á sjó í flotbúrin og
alin þar.
Bækjurækt.
Á síðustu árum hefur rækjurækt færzt nokk-
uð í aukana í Japan og er heildarframleiðslan
nú um 270 tonn árlega. Áhugi manna á rækju-
rækt hefur aukizt mjög á síðustu árum og má
því búast við að framleiðslan vaxi verulega á
næstu árum.
Þetta stutta yfirlit um fiskirækt sýnir að
þróun fiskiræktar hefur gengið mjög vel á síð-
ustu áratugum, enda hefur miklum fjármun-
um verið varið til þessara hluta. Búast má
við að framleiðslugota fiskiræktarinnar vaxi
mjög á næstu árum í Japan, því áætlað er að
auka mjög fjárframlög til eflingar þessara
mála á næstu árum.
Nótaviðgerðir
í Noregi
Við yfirförum og gerum við
hvers kyns nætur og troll.
Ennfremur set.jum við upp ný
veiðarfæri og höfum troll- og
snurpuvír á lager, ásamt öllum
gerðum af tógi.
Við tökum að okltur að geyma
varanætur. Höfum einnig til leigu
tvær hringnætur í fyrsta flokks
ástandi.
Þjónusta állan sólarhringinn.
EGERSUND TRAWLVERKSTED
Verkstæðissími 91-695 og 91-520.
Heimasími Kaare Mong 91-681.
Skrifstofan sími 91-219.
Egersund, Noregi.
ÆGIR — 107