Ægir - 01.07.1976, Page 10
nota má í súpur á sama hátt og kjötkraft.
Búið er að senda sýni af þessum krafti til
ýmissa súpuframleiðenda erlendis, en við-
brögðin hafa enn ekki orðið eins jákvæð og
vonast var til. Þó er vitað að fiskkraftur er
framleiddur bæði í Japan og Noregi en til-
tölulega fáir, sterkir aðilar virðast hafa mikil
völd á þessum markaði. Það er líklegt að hér
þurfi að koma til verulegt áhættufjármagn í
sölustarfsemi og markaðsleit. Þó að tilrauna-
framleiðslan hafi tekist í tækjum Hvalstöðv-
arinnar þarf að athuga betur nokkur tækni-
leg atriði í þessu sambandi, auk þess sem
hönnun verksmiðju og arðsemisútreikningar
eru óunnin. Að þessu verkefni mun Rann-
sóknastofnun fiskiðnaðarins vinna áfram.
Niðursoðinn og lieilfrystur spærlingur.
Þá er rétt að minnast á nokkrar afurðir úr
þessum tegundum, sérstaklega spærlingi, sem
enn hafa ekki komizt nema á „rannsókna-
stofustig" vöruþróunar. Heilfrystur (IQF),
slægður og hausaður spærlingur hefur verið
sendur til fulltrúa sölusamtakanna í Evrópu,
en umsagnir þeirra um sölumöguleika hafa
ekki borizt enn. Vitað er að ýmsar Suður-
Evrópuþjóðir borða allmikið af heilsteiktum
smáfiski og hundruð þúsunda verkamanna
frá Miðjarðarhafslöndunum stunda vinnu í
Norður-Evrópu. Hugmyndin er að reyna að
ná til þessa fólks hvernig sem til tekst. Að-
gerð og sérfrysting á smáfiski eins og spærl-
ingi er nokkuð dýr. Frekari tilraunir með vél-
vinnslu, markaðsleit í samvinnu við sölusam-
tökin svo og arðsemisútreikningar eru á verk-
efnaskrá Rannsóknastofnunar fiskiðaðarins,
þegar tími vinnst til.
Niðursoðinn spærlingur er mjög ljúffengur
hvort sem hann er í eigin safa, olíu eða ýms-
um sósum. Hingað til hefur hann aðeins ver-
ið soðinn niður í nokkrar dósir, en Rann-
sóknastofnunin ætlar í sumar í samvinnu við
Sölustofnun lagmetis, að sjóða niður á ýmsa
vegu nokkurt magn af spærlingi sem Sölu-
stofnunin mun svo nota til markaðsleitar.
Hér verða að sjálfsögðu að fylgja arðsemis-
útreikningar og athuganir á vélbúnaði og
vinnslutilhögun. Þessar frumtilraunir munu
kosta nokkurt fé, en þó varla meira en
svo að Rannsóknastofnunin og Sölustofnunin
220 — ÆGIR
muni ekki ráða við þær í sameiningu. Ef við-
brögð markaðsins verða jákvæð og gera þarf
framleiðslutilraunir í stórum stíl og hefja
söluherferð, þá er hætt við að nokkurt áhættu-
f jármagn þurfi til að koma.
Ýmsar hliðarrannsóknir.
Nákvæmar efnagreiningar og næringar-
fræðilegar mælingar á báðum þessum fiskteg-
undum hafa verið á verkefnaskrá stofnunar-
innar um skeið og verður haldið áfram. Slík-
ar mælingar eru að vísu oftast ein af fyrstu
athugunum sem gerðar eru í hverju vöruþro-
unarverkefni, enda var það einnig gert her
að því er varðar helstu efnaflokka. Það sem
eftir er að mæla eru vítamín, ýmis steinefm.
eggjahvítusamsetning o. fl.
Fleiri hugmyndir hafa fæðst um mögu-
legar afurðir úr þessum fisktegundum og at'
huganir sem gera þarf, en ekki unnist tími til
að sinna eða prófa, ekki einu sinni á ranm
sóknastofunni. Hvað þarf t. d. miklar fjar'
festingar í fiskmjölsiðnaðinum til þess a^
það borgi sig að veiða kolmunna og spærling
til bræðslu hér og hver er arðsemi slíkra fjar'
festinga t. d. miðað við Borgarfjarðarbrú •
Hvernig litist Japönum t. d. á hrognafullarJ
spærling og er hægt að vélflokka spærling 1
hæng og hrygnu? Er hægt að sjóða niður
kolmunnalifur, fyrst það þarf að vélslægj3
fiskinn hvort sem er? Hvernig er með geria'
innihald afurðanna? Eru sníklar (ormam
áberandi? O. m. fl.
Það má ljóst vera af framansögðu að Þet
verkefnasvið mun yfirgnæfa aðra starfse
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins á nae
unni. Stofnunin er lítil og fámenn. Hún ós ^
aði eftir heimild til að ráða sér einn tækn^
fræðing, en því var synjað. Hagfræðinga1 n
og stjórnmálamennirnir sem það gerðu n ^
örugglega metið það þannig að arðsemi
gagnsemi í vega- og brúabyggingu væri me
en í nýjungum í fiskiðnaði, því að gert va1 r ^
fyrir upp undir tuttugu manna aukningu
tæknilegu starfsliði Vegamálaskrifstofunnar
Framhald á bls. '