Ægir - 01.08.1981, Page 32
1. mynd. Sumargotssíldin og sjávarhiti á 10 metra dýpi á SJ0-
veturstöðvunum í desember 1976. Myndin sýnir að síldartorfan
náðifrá Jökulsárósum á Breiðamerkursandi ncerri því vestur undir
2. mynd. Sumargotssíldin og sjávarhiti á 10 metra dýpi á vetursetu-
stöðvunum í desember 1977. Myndin sýnir, að í Meðallandsbug var
síldin í fjögurra til ftmm stiga heitum sjó en austan Ingólfshöfða
var sjávarhiti þrjú til fjögur stig þar sem síldin hélt sig. Þess skal
getið að um 85 af hundraði síldarinnar hélt sig i Meðallandsbug
þegar stofnstœrðarmœlingarnar voru gerðar í desember 1977.
4. mynd. Sumargotssíldin og sjávarhiti á 10 metra dýpi á vetursetu-
stöðvunum í desember 1979. Myndin sýnir, að sjávarhitinn er að-
eins þrjú til fjögur stig þar sem síldin hélt sig. Eftir áramót kom ‘
Ijós að sjávarhitinn á þessum vetursetustöðvum hafði lækkað um
eitt til tvö stig.
sambandi verður að hafa í huga að vegna ætisleysis
í sjónum að vetrarlagi verður síldin yfirleitt að
fasta frá því síðla hausts og fram á næsta vor.
Mikilvægt atriði er þvi að spara orku yfir vetrar-
mánuðina eins og mögulegt er. í köldum sjó dreg-
ur úr orkuneyslu dýra eða fiska, sem eru að
sjálfsögðu með misheitt blóð. Það má því segja, að
uppátæki síldarinnar haustið 1979 hafi verið i sam-
ræmi við tillögur um orkusparnað í landinu. Sum-
arið og haustið 1980 var árferði gott og milt að því
er varðar átu og sjávarhita við norður- og austur-
ströndina. Því verður að teljast líklegt, að síldin
hafi fundið svipað hitastig í fjörðunum haustið
1980 og hún hafði vanist á vetursetustöðvunum 1
Lónsbug árið áður.
Farnir voru tveir rannsóknarleiðangrar á Arna
Friðrikssyni til Austfjarða fyrrihluta vetrar 1980 til
1981. Fyrri leiðangurinn var farinn á tímabilinn
12. til 17. nóvember, en hinn síðari 5. til 16. des-
ember. Aðaltilgangur leiðangranna var að reyna
að mæla stærð sumargotssíldarstofnsins með svo-
kallaðri bergmálsaðferð, en hún hefur reynst vel
við þessar mælingar undanfarin sex til sjö ár. F>a
voru einnig gerðar ítarlegar sjórannsóknir í þesS'
440 — ÆGIR