Ægir - 01.04.1982, Side 56
NÝ FISKISKIP
Núpur BA-4
28. maí á sl. ári kom fiskiskipið Núpur BA-4 til
hafnar í Reykjavík, en skip þetta var keypt notað
frá Fœreyjum. Skipið sem áður bar sama nafn, er
smíðað hjá skipasmíðastöðinni Szczecinska Stoc-
znia Remontowa í Stettin í Póllandi árið 1976 og er
smíðanúmer OR 30/6, en er hannað í Noregi hjá
Normaritim A/S.
Skipið, sem er tveggja þilfara og sérstaklega
byggt til línu- og netaveiða, er fyrsta sérbyggða
fiskiskipið til slíkra veiða eingöngu, sem íslend-
ingar eignast. Fœreyingar létu raðsmíða níu slík
skip í Póllandi á árunum 1976 og 1977 og var þetta
skip númer 6 í þeirri raðsmíði.
Eftir að Núpur kom til landsins var sett í hann
Mustad línuvélasamstæða, en fyrir í skipinu var
aðstaða til að handbeita línu. Samstœðan var
aðeins notuð sl. sumar og síðan sett í land þar sem
hún þótti ekki reynast sem skyldi.
Núpur BA var keyptur af Skildi h/f á Patreks-
firði (kom þangað fyrst 30. maí sl.) en er nú í eigu
Þórsbergs h/f á Tálknafirði. Skipstjóri á Núp BA er
Guðjón Indriðason og 1. vélstjóri Arnór Guð-
mundsson. Framkvæmdastjóri Þórsbergs h/f er
Magnús Kr. Guðmundsson.
Almenn lýsing:
Skipið er smíðað úr stáli samkvæmt reglum og
undir eftirliti Det Norske Veritas í flokki flð 1A1,
Deep Sea Fishing, Ice C,^< MV. Skipið er tveggja
þilfara fiskiskip búið til línu- og netaveiða, með
perustefni og gafllaga skut, og brú aftantil á efra
þilfari, sem hvílir á reisn.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir ferskvatn; íbúðir
framskips (lúkar) ásamt botngeymum fyrir
brennsluolíu; fiskilest með botngeymum fyrir
brennsluolíu; vélarúm með ferskvatnsgeymum í
síðum; beitufrystir; og aftast skutgeymar fyrir
Mestalengd ........................ 32.69
Lengd milli lóðlína................ 28.10
Breidd ....;........................ 7.60 01
Dýpt að efra þilfari ............... 5.70
Dýpt að neðra þilfari............... 3.55 ”’
Eiginþyngd .......................... 303 }
Lestarrými .......................... 185 '”3
Brennsluolíugeymar ................... 55 '”3
Ferskvatnsgeymar ...................... U ”’
Rúmlestatala ........................ 182 br •
Skipaskrárnúmer..................... 1591
brennsluolíu ásamt stýrisvélarrými. Brennsl”0
geyma undir íbúðum og fiskilest er jafnframt
að nota sem sjókjölfestugeyma. „t
Fremst á neðra þilfari er íbúðarými, fralTI .,
með íbúðagangi meðfram b.b. -síðu, en a^tanf ,rjr
milliþilfarsrými (vinnuþilfar) með aðstöðu
línuveiðar og fiskaðgerð. í síðum vinnuþilfarS
vélarreisn, verkstæði og geymslur. ^
Á efra þilfari, rétt aftan við skipsmiðju, er fll\
skipsins, sem hvílir á 1.0 m reisn. í aft”r
brúar eru sambyggð skorsteinshús báðum t” ^
Framarlega á efra þilfari er mastur með bóm”
aftast á þilfarinu er bipodmastur.
440-6’
Vélabúnaður:
Aðalvél skipsins er frá MWM, gerð TBD
sex strokka fjórgengisvél með forþjöppu °8 ^
kælingu, sem skilar 810 hö við 750 sn/mím
tengist niðurfærslugír, með innbyggðri kuP ^
frá Reintjes af gerð WAL 1050, niður \
2.953:1, og skiptiskrúfubúnaði frá Seffle a
HUB 53/3. Skrúfa er 3ja blaða, þvermál 210 , ^
Hjálparvélar eru tvær MWM af gerð TD
p «»* liM i ** 1
jlf
Núpur BA—4. Ljósm.: Snorri Snorrason.
224 — ÆGIR