Ægir - 01.06.1982, Blaðsíða 22
ríkjunum og V-Evrópu, aðallega á Norðurlönd-
unum. Sérstaklega kynntu þeir sér þróun sem hafði
orðið í byggingarmálum aldraðra meðal nágranna
okkar hvað viðkom búnaði, fyrirkomulagi og
starfi slíkra heimila. Auk þess var rekstrarhliðin
sérstaklega könnuð með tilliti til stærðar og nýt-
ingar vinnuafls og búnaðar.
Var allur undirbúningur mjög ýtarlegur áður en
teikningar hófust og voru fullgerðar.
Fyrsti áfangi, sem er þegar risinn er 1176 m2 að
stærð auk svala og er um 22.000 rúmmetrar.
Byggingarsamningur að 1. áfanga af þrem var
undirritaður þ. 12. maí 1975.
Byggingaframkvæmdir hófust í september 1975.
Byggingin var vígð i júní á Sjómannadaginn 1977.
Fyrsta íbúðarhæðin var tekin í notkun þann 11.
nóvember 1977, og þriðja íbúðarhæð og efsta
þann 12. janúar 1978.
Rými á hverri visthæð er fyrir 29 vistmenn, en
þar eru 11 eins manns íbúðir u.þ.b. 24 m2 með sér
W.C. og baði og 9 tveggja manna íbúðir u.þ.b. 48
m2 einnig með W.C. og baði. Tvær setustofur eru
á hverri íbúðarhæð. Svalahurð á öllum íbúðarher-
bergjum. Tómstunda-, samkomu- og borðsalir
voru tilbúnir í nóvember ásamt eldhúsi, kalda eld-
húsi, frysti og kæligeymslum og matarvinnslu.
Ennfremur hvíldaraðstaða dagheimilis og heilsu-
gæsluaðstaða á jarðhæð i febrúar 1978. Þar eru
læknastofa, skoðunarstofa, skrifstofa, skrifstofa
hjúkrunarkonu, lyfjabúr, æfingasalur með nudd-
og ljósaaðstöðu, hydrocollator, göngubrú, triss-
um, rimlum, þrekhjóli, baði og sjúkrabaði. Enn-
fremur hár- og fótsnyrting í sérsal.
Fyrsti vinnusalur á jarðhæð var tilbúinn í byrjun
mars 1978.
Heildarkostnaður við byggingu þessa 1. áfanga í
ársbyrjun 1978 ásamt öllum búnaði til byrjunar-
starfs var rúmlega 500 milljón krónur við úttekt og
brunabótamat tæpar 800 milljónir.
Á jarðhæð og fyrstu hæð er aðstaða dagheimilis
og skammtímavistunar (þ. á m. sumarvistun). Þá
koma þessar hœðir að fullum notum fyrir næsta
áfanga, sem verður hjúkrunardeild fyrir u.þ.b. 75
vistmenn ásamt margháttaðri þjónustuaðstöðu.
Hefur þegar verið gerður samningur um uppsteypu
jarðhæðar á árinu 1980, en samtals verður húsið 4
hæðir og þakhæð auk jarðhæðar. Meginhluti
þjónustuaðstöðu þ. á m. sundlaug og læknastofur
verða á 1. hæð.
Hrafnista í Hafnarfirði er rekin sem sjálfstætt
fyrirtæki með sjálfstæðu bókhaldi. Margsko113
samskipti eru þó á milli heimilanna, svo sem snrn
eiginleg yfirstjórn. Öll stærri innkaup sameigi0 '
þvottur allur unninn á Hrafnistu í Reykjavík
hluti matarvinnslu fyrirhugaður sameiginlegur-
eru vistmenn á Hrafnistu í Hafnarfirði með sa
hliða forgangsrétt að hjúkrunardeildunum
Reykjavik ásamt heimilisfólki þar uns hjúkrun
deildin í Hafnarfirði kemst í notkun. ,{
Næsti áfangi Hrafnistu í Hafnarfirði er svo s ^
og kostnaðarsamur að útlokað er fyrir Sjóman ,,
dagssamtökin að standa ein undir þeim kostna
næstu árum.
Þvi er nú unnið að samvinnu ýmissa félagas
taka og sveitarfélaga um fjármögnun ÞesS
framkvæmda. jf
Yrði ráðstöfunarhluti rýma til vistunar >
þessa aðila í samræmi við kostnaðarfra n,^_
þeirra, en lágmarksframlag kostnaður eins
rýmis- a hrjáf
Hafa þegar verið gerðir samningar vio v ^
stúkur Oddfellowreglunnar þessa efnis og
sveitarfélög, Grindavík og BessastaðahrepP
Hrafnista í Hafnarfirði.
302 — ÆGIR