Ægir

Árgangur

Ægir - 01.11.1984, Blaðsíða 21

Ægir - 01.11.1984, Blaðsíða 21
ýmiss konar, stefnir aflamarkið nú í 257 þús. tonn. Vegna hugsanlegra gangna þorsks á s.l. vetrarvertíð fór fram endurmat á þorskstofninum fyrstu dagana í apríl á þessu ári. Það endurmat staðfesti fyrra stofnmat og benti ekkert til þess að göngur fisks frá Grænlandi v*ru komnar á miðin í mars. Afla- hrota á Breiðafjarðarmiðum í mars svo og hlýindi í sjónum, auk vaxandi ætis sem leiðir til aukins vaxtar, gaf nokkuð tilefni til bjart- sýni, en aprílmánuður, sem venjulega er besti aflamánuður ársins brást nú algjörlega, og hefur a.m.k. ekki síðastliðin 37 ár verið jafn lítill afli í þeim mánuði. Sú úttektá stærð stofnsins, sem nú liggur fyrir og byggir á niður- stöðum hefðbundinnar og tölfræði- ^grar V.P. greiningar, bendir til bess að stofninn sé minni en áður var ætlað, sérstaklega ár- gangarnir frá 1977 cg 1978, þar sem þeir hafa ekki komið fram í veiðinni á þessu ári í þeim mæli sem búist var við. Þrátt fyrir að borskur hafi þyngst um 10-15% a þessu ári vegur það ekki að öllu leyti upp þann mismun sem að framan greinir. Núverandi stofnmat gerir ráð fyrir að heildarstærð þorskstofns- ins hafi í ársbyrjun 1983 verið 970 þús. tonn og í ársbyrjun 1984 1010 þús. tonn. Stærð hrygning- arstofns 1983 var 280 þús. tonn og 1984 aðeins 260 þús. tonn. Það skal tekið fram að ofan- greint mat byggir eingöngu á afla- og sóknartölum, en vegna verk- falls BSRB liggja niðurstöður úr stofnmælingaleiðöngrum með botnvörpu, sem farnir voru ísept- ember s.l. enn ekki fyrir. 1.2. Sókn, afliogárgangaskipan 1984 Reglur um takmörkun þorsk- veiða á þessu ári eru nú með allt öðrum hætti en áður. Skrapdaga- kerfi togara var alfarið lagt niður, en í staðinn var tekið upp nýtt kerfi, aflamark á skip, byggt á meðaltali áranna 1981-1983. Úthlutað heildarþorskaflamagn árið 1984 er 257 þús. tonn, en í stofnstærðarútreikningum er gert ráð fyrir að þetta aflamark verði ekki nýtt að fullu og þroskaflinn 1984 er áætlaður 250 þús. tonn. Þær nýju takmarkanir á þorsk- veiðum, sem teknar voru upp á þessu ári virðast hafa leitt til þess að sóknin í þorsk hafi minnkað um 10%. Úttektátogaraskýrslum tímabilið janúar-ágúst í ár miðað við sama tímabil árið 1983 leiðir til þessarar niðurstöðu. Sókn togaranna hefurá þessu ári beinst meir að karfa og ufsa, en árið 1983. Vetrarvertíð SV-lands var nú ennþá lakari en árið 1983, og er sú allra lélegasta í áratugi, að undantekinni aflahrotu sem gerði á Breiðafirði í mars. Kemur þar einkum tvennttil, gæftirvoru yfir- leitt stirðar, en ördeyða á miðun- um, sérstaklega í apríl, átti þó mestan hlut að máli. Engar úthaldstölur um bátaflotann eru tiltækar, en talið er, að vegna kvótakerfisins, hafi menn lagt meira upp úr gæðum aflans og meðalfjöldi neta í sjó verið minni en áður. Er þetta metið til 10% minnkunar í sókn bátaflotans. Aflinn á vetrarvertíð SV-lands byggðist mest á 1976 árgang- inum þ.e. 8 ára þorski bæði hvað snertir fjölda og þyngd. Alls var landað 20 þús. tonnum af þessum árgangi. Afli annarra ár- ganga var tregari. Af 1975 árganginum (9 ára) var landað 13 þús. tonnum og svipað af 1978 árganginum (6 ára), en 1977 árgangurinn (7 ára þorskur) skilaði ívið meiri afla, 13 500 tonnum. Til samanburðar má geta þess að á vetrarvertíð SV- lands 1983 komu á land 23 þús. tonn af 7 ára þorski og 25 þús. tonn af 8 ára þorski og þótti þá engin ósköp. Á vestur-, norður- og austur- miðum byggðust veiðarnar tíma- bilið janúar til maí á 4, 5 og 6 ára þorski. Að fjölda til var mest landað af 4 og 5 ára þorski enn- fremur bar nokkuð á 6 ára þorski, ÆGIR-533
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.