Ægir

Árgangur

Ægir - 01.10.1985, Blaðsíða 22

Ægir - 01.10.1985, Blaðsíða 22
Vélskóli íslands settur Vélskóli íslands var settur 2. sept. sl. í upphafi skólasetningarræðu sinnar minntist Andrés Guðjóns- son, skólameistari, Hreins Har- aldssonar kennara en hann er ný látinn. Nú á haustönn stunda um 250 nemendur vélstjórnarnám, þar af 216 nemendur í áfanga- kerfi skólans, en 30-35 nem- endur réttindanám vélstjóra, en það eru þeir vélstjórar sem siglt hafa á undanþágu sem svo oft hefur verið nefnt. Samkvæmt ákvæðum til bráða- birgða í lögum um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og véla- varða á ísl. skipum gilda eftirfar- andi ákvæði: Þeim vélstjórnarmönnum, er starfað hafa á undanþágu í a.m.k. 24 mánuði hinn 1. jan. 1985, skal boðið upp á vél- stjórnarnámskeið sem haldin verða í öllum landshlutum skólaárin 1984-1985 og 1985—1986 til öflunar tak- markaðra vélstjórnarréttinda. Námskeið þessi veita réttindi til yfirvélstjórastarfa á skipum með vélarstærð allt að 750 kw (1020 hö). Námið tekur 13 vikur að við- bættum 2 vikum í próf eða sam- tals 15 vikur. Eftirfarandi náms- greinar eru kenndar: Rafmagns- fræði bókl. og verkl., smíðar, málmsuða, vélstjórn bókl. og verkl., vélfræði verkl., kælitækni bókl. og verkl., stýritækni bókl., og verkl., rafeindatækni bókl., enska, skyndihjálp, ogeldvarnir. Vélstjóranám fyrir vélstjóra sem ekki fullnægja ákvæðum laga um menntun verður sem her segir nú á haustönn: Reykjavík 35 nemendur, Kefla- vfk 20 nem., Vestrnannaeyjum 10 nem. Akureyri 10 nem-, Húsavík 8 nem., og Stykkishólmi 12 nemendur eða alls um 95 nemendur. Þetta nám hefur verið haldið 1 Reykjavík í þrjú skipti og útskrif- aðir 36 nemendur, í Keflavík og útsk. 22 nem., Hornafirði og út- skrifaðir 15 nem. og nýlokið 1 Ólafsvík og útsk. 17 nemendur eða alls 185 nemendur. Boðið verður upp á þetta nám í síðasta sinn á vorönn 1986. Ny lög voru samþykkt á Alþingi um atvinnuréttindi vélfræðinga vél- stjóra og vélavarða í des. 1984 og lög um vélstjóranám hafa verið endurskoðuð í samræmi við rétt- indalögin og voru samþykkt a Alþingi í apríl 1985. Iðnfræðsluráð hefur gengið fra mati á vélstjóranámi með tilliti tu þess að vélstjóri getur farið í raf' virkjanám. LÖG OG REGLUGERÐIR REGLUGERÐ nr. 311 um sérstök togveiðisvæði samkvæmt lögum nr. 118 31. desember 1984. 1. gr. Þráttfyrirákvæði B. F. ogG. liðar3. gr. laganr. 81 31. maí 1976, er öllum skipum heimilt að stunda veiðar með botn- vörpu á eftirgreindum veiðisvæðum og tímum. A. í Héraðsflóa, frá 15. ágúst 1985 til 31. desember 1985, frá línu réttvísandi aust-norðaustur af Bjarnareyjarvita að línu réttvísandi aust-norðaustur af Ósfles (65°37'8 N, 13°55'3 V) utan línu, sem dregin er í einnar sjómílu fjar- lægð frá fjörumarki meginlandsins. B. Utan Breiðarfjarðar, frá 1. september 1985 til 31. des- ember 1985, norðan 65° og utan fjögurra sjómílna frá línu, sem dregin er úr Öndverðarnesvita í Bjargtanga (65°30'2 N, 24°32'1 V). Að norðan markastsvæðiðaf línu dreginni réttvísandi ívesturfrá Bjargtöngum. C. Fyrir Vestfjörðum, frá 1. september 1985 til 31. desember 1985, utan línu, sem dregin er 8 sjómílur utan viðmiðu11 arlínu samkvæmt lögum 81/1976, frá línu, sem dregio e< 317° réttvísandi frá Óshólavita í ísafjarðardjúpi. Norðau línu, sem er dregin 317° frá Óshólavita norður um 3 22°44'0 V, eru togveiðar með botnvörpu heimilaðar utan fjögurra sjómílna frá viðmiðunarlínu. 2- gr. ( Brot gegn reglugerð þessari varðar refsingu samkvaen ákvæðum laga nr. 81 31. maí 1976, um veiðar í fiskveið' landhelgi Islands með síðari breytingum. 3- 8r- -g Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 1 , 31. desember 1984, um breytingar á lögum nr. 81 31- nial 1976, um veiðar í fiskveiðilandhelgi fslands til þess að öðlasl þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Sjávarútvegsráðuneytið, 6. ágúst 1985. F. h. r. Árni Kolbeinsson. )ón B. )ónasson. 570-ÆGIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.