Ægir - 01.10.1985, Qupperneq 25
^veinn Jónsson,
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins:
Laxfiskafóður
gangur
Þótt fiskeldi hafi verið stundað
er á landi í um 35 ár hafa rann-
sóknir á fiskafóðri verið fremur
|akrnarkaðar. Meginhluti þess
lskafóðurs, sem hér er notað er
'nnflutt, en nokkrir aðilar nota
fóður, sem er að hluta til úr
's ensku hráefni, þ.e.a.s. votfóð-
uh sem gert er úr fiski eða fiskúr-
§an8i að viðbættu innfluttu bæti-
e na- 0g bindimjöli. Á meðan
lskeldi byggðist að mestu á eldi
la:
xaseiða, var um takmarkaða
fóð
t>að
urnotkun að ræða og skipti
lu frá þjóðhagslegu sjónar-
hvort fóðrið væri innflutt
f a ^amleitt hér á landi. Þó voru
afnar tilraunir með framleiðslu
Þurrfóðurs árið 1969 á vegum
. annsóknastofnunarfiskiðnaðar-
'ns í samvinnu við laxeldisstöð-
gna í Kollafirði, og stóð Jónas
larnason fyrir þeim tilraunum.
etta fóður var að mestu leyti
ramleitt úr íslensku hráefni,
'e-a-s. fiskmjöli, lýsi og mjólk-
Urdufti. Á árunum 1969-1972
oru ger5ar e|distiIraunir með
r' þessu bæði á laxa- og
pkjuseiðum. í samanburði við
r ent þurrfóður voru niðurstöð-
Urnar mjög jákvæðar, vöxtur mun
eiri 0g fóðurnotkun minni.
^'nnig er ta||5 ^5 fóðrið
l9.1 átt þátt í góðum endur-
e,mtum á hafbeitarlaxi í Kolla-
arðarstöðinni á þessum árum,
ve§na þess að seiðin, sem alin
ru á íslenska fóðrinu voru
fó^i en þau, sem fengu erlent
Að þessari reynslu fenginni var
stofnað fyrirtæki í Hveragerði til
framleiðslu á þurrfóðri fyrir lax og
silung og hófst sú framleiðsla í
ársbyrjun 1973. Ári síðar varð
vart sjúkdómseinkenna hjá smá-
laxi, sem alinn hafði verið á
íslenska fóðrinu og voru þau
rakin til fóðursins. Framleiðsl-
unni var þá að mestu hætt, en til-
raunum þó haldið áfram til þess
að reyna að skýra orsakir sjúk-
dómsins. Þessar tilraunir bentu til
þess, að sjúkdómurinn stafaði af
ákveðnu steinefnamisvægi ífóðr-
inu, sem aftur var rakið til fisk-
mjölsins. Bæði Bandaríkjamenn
og Japanir hafa orðið varir við til-
svarandi einkenni í smáfiski, sem
alinn var á þurrfóðri með miklu
beinamjöli. Með því að nota ein-
göngu mjöl úr heilum fiski t.d.
loðnu má sneiða hjá þessum erf-
iðleikum.
Þvíferfjarri aðég telji aðfóður-
málin séu stærsta vandamálið,
sem við höfum við að glíma í
fiskeldinu í dag og raunar má
segja að nægileg þekking sé nú
fyrir hendi til þess að framleiða
hér bæði viðunandi þurrfóðurog
votfóður. Einnig er að sjá, að fisk-
eldisstöðvar, sem byggja að
mestu eða öllu leyti á innfluttu
fóðri, geti staðið undir rekstri.
Engu að síður er það skoðun mín,
að ef við ætlum að gera fiskeldi
hér á landi að arðvænlegri stórat-
vinnugrein verðum við að byggja
það á innlendu fóðri að svo miklu
leyti sem mögulegt er og jafn-
framt að hefja að nýju rannsóknir
á þessu sviði, sem miða við inn-
lent hráefnisframboð og aðrar
séríslenskar aðstæður.
Hér á eftir verður fjallað um
næringarþörf fiska og þá fyrst og
fremst laxfiska, fiskafóður og fóð-
urgerð, innlend hráefni og mögu-
leika til fiskafóðurframleiðslu hér
á landi. Einnig mun ég reyna að
draga fram þau atriði sem ég álít
helst þurfa rannsókna við á þessu
sviði.
Næringarþörf laxfiska
Laxfiskar eru dýraætur, sem
þýðir að í náttúrlegu umhverfi fá
þeir mestan hluta þeirrar orku
sem þeir þarfnast úr próteinum og
fitu. í samanburði við jurtaætur
hafa laxfiskar mjög takmarkaða
hæfileika til þess að nýta kolvetni
sem orkugjafa.
Prótein
Öll dýr þurfa að fá prótein í
fæðunni til að byggja upp líkam-
ann. Ekki er þó sama af hvaða
uppruna próteinin eru. Sum
prótein eru næsta ómeltanleg og
nýtast því ekki, en þótt prótein
séu auðmeltanlegeru gæði þeirra
misjöfn. Fiskmjöl er einn besti
próteingjafi í fiskafóður, sem enn
hefur fundist, en próteineiningin
í fiskmjöli er dýrari en t.d. í
soyamjöli og þess vegna er
soyamjöl gjarnan notað að hluta
sem próteingjafi í fiskafóður.
ÆGIR-573