Ægir

Volume

Ægir - 01.10.1985, Page 57

Ægir - 01.10.1985, Page 57
15. gr. Reglur þessar, sem settar eru samkvæmt lögum nr. 52/1970, Urn eftirlit með skipum, staðfestast hér með til að öðlast gildi 1 • janúar 1986 og birtast til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut e'ga að máli. Samgönguráöuneytid, 3. apríl / 985. Matthhías Bjarnason. Ragnhildur Hjaltadóttir. V|ÐAUKI. ALMENNT. Tæki og búnaður til notkunar við hávaðamælingar í skipum skal vera af viðurkenndri gerð og uppfylla kröfur IEC* R 179 ogR225. ' -2- Áðuren mælingar hefjast, skal þessgætt, aðtækjabún- aður sé ætlaður til þeirra hljóðmælinga sem hér um ræðir, og að hann sé rétt stilltur. 2- FRAMKVÆMD HÁVAÐAMÆLINGA. 2-1 • Tilgangur með hávaðamælingum er að kanna hávaða í skipum með það fyrir augum að draga úr hávaða, sé ástæða til að ætla, að hann geti valdið vanlíðan eða haft skaðvænleg áhrif á heyrn áhafnar. 2-2. Leitast skal við að framkvæma mælingar við þau tilvik, sem ætla má að valdi mestum hávaða í vistarverum og á starfsvettvangi áhafnar. Skulu mælingar fram- kvæmdar við þær aðstæður, sem eðlilegar teljast hverju sinni. 2-3- Þegar ekki er Ijóst við hvaða tilvik hávaði er mestur á þeim stöðum, þar sem hávaðamælingar skal fram- kvæma samkv. grein 2.4., skulu mælingar gerðar við eftirtalin tilvik: 2.3.1. Skip á siglingu með minnst 80% álag á aðalvél, og hjálparvél í gangi. 2.3.2. Sama og 2.3.1. með allan tiltækan vélbúnað samtímis í notkun. 2.3.3. Við lestun og losun flutningaskipa í hötn. 2.3.4. Þegar fiskiskip eru við veiðar og fiskveiðibún- aður er í notkun. í skipum búnum dælum, spilkerfum, hliðarskrúfum eða öðrum búnaði, sem notaður er reglulega, skulu mælingar gerðar þegar búnaður þessi er í gangi. Á fiskiskipum skal einnig taka tillit til hávaða frá veiðar- færum og meðferð þeirra. Við mælingar skal loftræstikerfi vera í gangi og við full afköst. Hurðir og annar búnaður, ætlaður til að draga úr hávaða, skal vera eins og eðlilegt má teljast. Framkvæma skal hávaðamælingar á eftirtöldum stöðum: a) í brú eða stýrishúsi. Mælingu skal gera í námunda _______ við stjórntæki skipsins. ^ternalional electro technical commission. b) í svefnklefum og í matsal. Þegar um er að ræða fjölda samliggjandi klefa, er ekki þörf á að mæla há- vaða í öllum klefum. Skal mælingamaður meta hverju sinni hvar skuli mælt. c) Á starfsvettvangi áhafnar þ.e.a.s. á vinnsluþiIfari, viðstjórntæki spilaogannars staðar, sem þörf þykir. d) í vélarúmi. Sé skip búið þar til gerðum stjórnklefa í vélarúmi eða sérstökum verkstæðum, skal mæla hávaða í þeim rýmum sérstaklega. e) Á öðrum þeim stöðum samkvæmt mati mælinga- manns, þar sem áhöfn helst við í lengri tíma, og þar sem ástæða er til að ætla, að hávaði sé sérstaklega mikill. 2.5. Við hljóðmælingar í vistarverum skal staðsetja hljóð- nema í miðju herbergi í ca. 1.5 m hæðyfir gólfi. Halda skal hljóðnemanum í lóðréttri stöðu og snúa honum rólegaeinn hringum lóðréttanás, þ.e. í láréttum fleti. 2.6. Við mælingu í vélarúmi skal mæla hávaða á þeim stöðum, þar sem vélstjórar eru að jafnaði að störfum. Hljóðnemi skal þó ekki vera nær hávaðagjafa en 1.0 m. Að öðru leyti skal fara eftir þeim leiðbeiningum, sem gefnareru í grein 2.5. 2.7. Mælingu hávaða skal að öðru leyti haga þannig, að niðurstöður gefi nákvæma og greinagóða mynd af þeim hávaða, sem áhöfn skipsins býr við. 2.8. Við mælingu skal lesa af mælitæki í dB (A). í mælitæki skal við mælingu stillt á „Kvik viðbrögð" (fast re- sponse). Mæling skal standa yfir í minnst 10 sek. og skal skrá áætlað meðalgildi mælisútslaga. Sé munur hæstu og lægstu gilda vegna síbreytilegs hávaða rneiri en 10 dB (A), skal mælitæki stillt á „hæg viðbrögð" (slow response). 2.9. Þar sem hávaði er mikill eða meiri en æskilegt má telj- astogannars staðar, þarsem tilefni gefst til, skal til við- bótar framkvæma áttundabandsmælingar. 2.10. Stjórnenda hávaðamælinga ber að gæta þess að áhrif frá ytra umhverfi og mælingamönnum sjálfum hafi ekki áhrif á niðurstöður mælinganna. Mælingar utan dyra skal aðeins framkvæma, þegar veður er stillt, og skal við þær nota vindskerm á hljóðnemann. 3. SKÝRSLUGERÐ. 3.1. Að lokinni mælingu skal mælingamaður gera skýrslu er greini frá framkvæmd og niðurstöðum mælinganna. Skal við skýrslugerðina notast við eða hafa hliðsjón af eyðublöðum, sem Siglingamálastofnun ríkisins hefur útbúið í þessu skyni. Skýrsluna skal senda til stofnunar- innar í 2 eintökum. Eftirfarandi upplýsingar skulu koma fram í skýrslunni: 3.1.1. Nafn skips og skipaskrárnúmer. 3.1.2. Dagsetning, mælingastaður og nöfn þeirra er stóðu að mælingunni. 3.1.3. Gerð og tegund mælitækis og hljóðnema. 3.1.4. Veðurskilyrði. ÆGIR-605

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.