Ægir - 01.06.1986, Side 38
BÓKAFREGN
Jónas Guðmundsson:
Saltar sögur
Bókaútgáfa Menningarsjóðs 1985.170 bls.
SALTAR
SOGUR
Óþarft er að kynna Jónas
Guðmundsson stýrimann, list-
málara, rithöfund og blaðamann
fyrir lesendum Ægis. Hann var
afkastamikill listamaður um tæp-
lega aldarfjórðungs skeið og á
tuttugu og þriggja ára tímabili,
1962—1985, gaf hann út samtals
21 bók, ýmist frumsamin rit eða
safnrit með efni margra höfunda.
Var hann fjölhæfur höfundur,
samdi skáldsögur og smásögur,
leikrit og Ijóð og ritaði ævisögur
auk ótölulegs fjölda blaðagreina.
Saltar sögur hefur að geyma
fimmtán smásögurjónasarogeru
þær teknar úr ýmsum ritum hans
og dágott sýnishorn af rithöfund-
arferli hans. í flestum þeirra er
hafið og samskipti mannaviðþað
viðfangsefnið, án þess þó að alltaf
sé fjallað um sjómennsku eða
sjómannalíf í þrengsta skilningi.
Jónas Guðmundsson var lengi
sjómaður og eins og flestum mun
kunnugt festist starfsheitið stýri-
maður við hann. Hann unni haf-
inu og þekkti ofurmátt þess og
duttlunga betur en margir aðrir,
og þaðereinmitthafið, semoftast
varð honum að yrkisefni: Barátta
manna við það, þrá sjómanna
eftir því, smæð mannsins gagn-
vart ofurefli þess.
Ekki ætla ég mér þá dul að
reyna að leggja dóm á gæði ein-
stakra sagna í þessu hefti. hær eru
allar skemmtilegar aflestrar og
margar þeirra bregða upp lifandi
svipmyndum af aldarfari og lífs-
baráttu þjóðarinnar. Þar þykja
mér þó sögurnar Axíufélagiö,
Aflakóngur, Draumur meö lotiö
stefni og koparskrúfu og Elsa
skera sig nokkuð úr að því leyti að
þær endurspegla alla bestu eigin-
leika höfundarins. Einu hrein-
ræktuðu sjómannasögurnar í
bókinni eru: Káeta. Herbergi í
skipi og 6/7 milli augna, en sagan
um rakarann gamla lýsir breyttum
þjóðtelagsháttum og mannlegum
örlögum á sérstæðan hátt. Enn
má nefna sérstaklega söguna
Framavonir, en hún segir frá tog-
arasjómanni, sem kominn er í
land, orðinn ritari að sögn kon-
unnar, en finnur ekki hjá sér hvöt
til að pota sér áfram í samfélagi
landkrabbanna. Hann langaraftur
á sjóinn, togarinn er hans líf, þótt
lesendum verði Ijóst í sögulok, að
hann fari aldrei aftur á sjó.
Jón Þ. Þór
EimSalt Ífc
Hvaleyrarbraut ■ Hafnarfirði • Sími 52166
Eins og áður sagði var Jóna'
Guðmundsson fjölhæfur höfun ^
ur, ágætlega ritfær og marg^.
sögur hans bera þess glögg
að hann var málari ekki síður _
rithöfundur. Margar lýsinga han
eru myndrænar í besta laS1 _
þótt víða megi greina merki þ)°
félagsádeilu er aldrei djúpt á se
stæðu skopskyni Jónasar. «
Helgi Sæmundsson hefurva
sögurnar til birtingar og apn
um útgáfuna, auk þess sem han^
ritar eftirmála. Val sagnann^
hefur tekist vel og allur frága11?1
bókarinnar er vandaður.
354 -ÆGIR