Ægir

Árgangur

Ægir - 01.08.1986, Síða 14

Ægir - 01.08.1986, Síða 14
Danskar húkkortur, slík þilskip gerði konungsútgerð út frá Hafnarfirði árin 1 776-1 787. reist íbúðarhús fyrir skipstjóra útgerðarinnar, og geymsluhús fyrir veiðarfæri, áhöld og slíkt. Á Langeyri norðanmegin fjarðarins var aflinn lagður á land. Þar voru byggðir fiskigarðar til verkunar aflans og vöruhús. Skúturnar stunduðu handfæra- veiðar á sumrin og var aflinn salt- aður. Á veturna var jöktunum lagt upp í Hvaleyrartjörn, en húkkort- urnar lágu við festar á firðinum, eða voru látnar sigla niður til Kaupmannahafnar með vörur á haustin. Yfirmenn á skútunum voru allir danskir, og einnig hluti háset- anna. Síðan var hugmyndin að ráða íslendinga sem háseta við þorskveiðarnar yfir sumarið. Reyndist erfitt að manna skipin til fulls, því landsmenn reyndust ekki áfjáðir í að reyna sig á þessum nýju skipum. Þilskipunum var haldið úti ár hvert frá 1776 til 1786. Fyrsta árið fóru 10 skip á veiðar, en flest voru þau árið 1780, 42 að tölu. Átíu áratímabili 1 777—1786fóru á veiðar að meðaltali 19 húkkort- ur og 6 jaktir á ári. Aflinn varð samtals 648.309 fiskar sem gerði 4386V2 tunnu af saltfiski og 4324 tunnur af hertum fiski til útflutn- ings. Aflinn var ekki mikill, miðað við fjölda skipanna og varð sífelldur halli á útgerðinni, þráttfyrir að hún nyti árlegs styrks frá stjórnvöldum upp á rúma 10 þúsund ríkisdali. Þegar konungsverslun var lögð niður 1787 og íslendingar hlutu takmarkað verslunarfrelsi, lagðist útgerðin niður um leið. Þegnum Danakonungs bauðst nú að kaupa hús, þilskip og aðrareignir verslunarinnar. Heimildir eru litlar um afdrif skipanna, en eitt virðist Ijóst að íslendingar sot ekki eftir þeim. Landsmenn^ ekki enn undir það búnir að b sjávarútveginn á nýtt stig- ^ vegar hefur þessi mikla tllr ^ konungsverslunarinnar ^ óbein áhrif, því að vitneskjan^. reynslan sem til varð hér a ‘ ^ glataðist ekki. Þess ,var*\.efiiar langt að bíða að íslend'^^i, tækju að feta sig inn í aukiö v * unarfrelsi og nýjungar í ut& 3 armálum. Og þar var byg^j sama grunni, því enn einú var Hafnarfjörður vagga n^s. ævintýra í atvinnumálum la manna. Heimildir: 0n Saga Hafnarfjarðar, e. Siguro-’K ^ e■ Einokunarverslun Dana á JónJ.Aðals , ,0p. Skútuöldin I., e. Cils Cuðmun ^gí. íslensk miðaldasaga, e. B)örn steinsson. ■ er tímarit þeirra, sem vilja fylgjast með því helsta, sem er að gerast í sjávarútvegh 458 -ÆGlR

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.