Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1987, Síða 28

Ægir - 01.04.1987, Síða 28
212 ÆGIR 4/87 góðar afurðir úr smáum fiski t.d. kolmunna. Mikil vinna er lögð í rannsóknir sem miða að því að vinna feitan smáfisk í blokkir en til þess þarf að skilja roð og bein frá fiskholdinu og einnig fituna. Norðmenn hafa þegar náð nokkr- um árangri við að framleiða þess konar afurð úr loðnu. Á hinn bóginn verða unnar nátt- úrulegar gæðavörur úr fiski, flök og flakahluta. Engin aukefni verða notuð við þessa fram- leiðslu. Þettaer lúxusvara semfer á þá markaði sem greiða hæst verð. Þarna ætti okkar styrkur að liggja. Þótt vera kunni að nægt framboð verði á fiski í framtíðinni þá er tiltölulega lítill hluti sem getur lent í þessum gæðaflokki. Ástæður eru einkum þrjár: 1. Eðliseiginleikar fisksins. ís- lenskur þorskur þykirt.d. hafa ýmislegt fram yfir þorsk sem veiddur er í Eystrasalti eða við strendur Kanada, einkum vegna þess að hann er stinnari og holdfyllri. Þá höfum við dæmi um það að bragðgæði fisks af íslandsmiðum þyki meiri en samkeppnisland- anna t.d. hvað varðar frysta loðnu fyrir Japansmarkað. 2. Mengun \ heiminum fer vax- andi, ekki hvað síst í höfun- um. Æfleiri eru sérmeðvitaðir um þýðingu þess að borða ómengaða náttúrufæðu. Flestir muna eftir nýlegum fréttum um mengun í Eystra- salti og sýktum fiski af hennar völdum. Mengun í hafinu umhverfis ísland er lítil og getum við vafalaust nýtt okkur (aað í auknum mæli til mark- aðsfærslu á fiskafurðum okkar. 3. Stærðardreifing bolfisks á íslandsmiðum er mjög hag- stæð og ætti að gera það kleift að ná bestu mörkuðunum a.m.k. fyrirflök og heilan fisk. Mér hefur alltaf þótt íslensk bolfiskflök of góð til að vinna þau í blokk í þeim mæli sem við gerum. Til þess að geta unnið meira í flök þurfum við hins vegar að bæta meðferðina á fiskinum enn frekar, stytta útivistartíma skipanna og jafnvel að forðast að veiða fiskinn á þeim tíma þegar mest los er í honum. 2. Tenging markaðs- starfsemi og vöruþróunar Kjarninn í þeirri umræðu sem átt hefur sér stað um framþróun í sjávarútvegi að undanförnu snýst um vöruþróun, markaðsmál og gæðastýringu. Við þurfum að leggja áherslu á að vera markaðs- sinnuð, geta svarað þeim kröfum sem markaðurinn gerir. Til þess þurfum við aðgang að góðum upplýsingum um markaðinn. Þessi þekking þarf að nátil vinnslu- stöðvanna sjálfra því taka þarf ákvarðanir um framleiðsluna á grundvelli þessara upplýsinga. Eftir því sem kröfur markaðarins verða fjölbreytilegri þarf meiri mannafla til að sinna þeim málum. Enginn einn aðili getur haft þar fullkomna yfirsýn. Mark- aðsupplýsingar hafa sennilega aldrei verið eins aðgengilegar og nú og eiga eftir að batna. Nú þegar getur hver sem er tengst tölvukerfum sem gefa nýjasta verð á ferskum fiski í Evrópu. Globefish heitir alþjóðlegt tölvu- vætt upplýsinganet sem unnið er að á vegum Sameinuðu þjóð- anna. Þessi kerfi þjóna þeim til- gangi að gefa upplýsingar um verðþróun og birgðastöðu á mörkuðum. Hér á landi er hafinn undirbúningur að tölvuvæddum fiskmarkaði og á ég þar við þá leið sem Akureyringar hafa ákveðið að fara varðandi fersk- fiskmarkað. Rætt hefur verið um þann möguleika að þróa upplýsinganet um allt land þar sem framleið' endur geta sett inn gögn um teg- undir og magn eigin afurða^ Útflytjendur geta síðan fengi aðgang að þessum upplýsingulTI og gert tilboð í vöruflokkana- Með tölvutækninni er í raun unnt að skapa einn uppboðsfisk' markað á landsvísu. Á sama hátt gætu útflytjendur sent boð inn a tölvunetið um það hvaða afurðit vantar á markaðinn. í mínuni huga er ekki spurning um það hvort upplýsingakerfi af þessu tagi komist í gagnið, aðeins hvenær. Með því væri lagður grunnur að nýrri framsókn fyr,r' tækjanna í vöruþróun. Vöruþróun spannar vítt svið- Hún getur falist í því að vinnn nýja tegund af pakkningu á hefð- bundinn markað eða að þróa ttt' tölulega flókna vinnslu t.d. a ýmsum lagmetisafurðum sem krefjast flókinnar vinnslu. Fynr' tækin sjálf eða samtök þeirra geta staðið fyrir verulegri vöruþróun' arstarfsemi með lágmarks að- stöðu. Staðreyndin er hins vegar sú að nýjar afurðir verða ekk' þróaðar nema með tengingu v>ö markaðsstarfsemina. Til daem15 er hæpið að rannsóknastofnamr einar og sér geti stundað vörU' þróun að einhverju gagni. Þegar hafa sum sölufyrirtæki komið ser upp ágætri aðstöðu til vöruþr°' unarogerSölusamband íslenskra fiskframleiðenda sennilega Þar lengst komið. 3. Nýjar og vaxandi vinnslugreinar Við verðum að líta svo á, 3 nánast allt sem lifir og hræris11 sjónum sé einhvers staðar mar aðsvara. Langlúra er nýjasta dæmið um fisk sem ávallt hetu verið hent en hefur nú tekist a selja með góðum árangri. ^|ð‘ innfjarða finnast ýmsir flatfiskar sem ekki eru nýttir. Mér finnst a

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.