Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.04.1987, Qupperneq 34

Ægir - 01.04.1987, Qupperneq 34
218 ÆGIR 4/87 þróa vélbúnað til söfnunar á þessum hrognum. Á Rannsókna- stofnuninni höfum við gert kavíar úr þessum hrognum sem eru svört á litin og mjög girnileg. 4.8. Skata Góður markaður er víða fyrir börð af tindaskötu og mun þegar vera nokkuð flutt út af þessari afurð. Skatan er yfirieitt seld roð- rifin, en það hefur reynst seinlegt og erfitt. Nú hefur náðst árangur með að leysa skrápinn af sköt- unni með því að nota ódýra ensímblöndu en þessi ensím eru svokölluð iðnaðarensím sem keypt eru erlendis frá. Þessi vinnsla er tiltölulega einföld og eru vinnslutilraunir að hefjast með að vinna skötu á þennan hátt í nokkrum mæli. Á ári hverju mun vera hent u.þ.b. 2.000 tonnum af tindaskötu sem kemur sem aukaafli en ekki er vitað hve mikið magn er hægt að veiða sé gert út á þennan fisk sérstaklega. Þessi fiskur er mikið lostæti, gómsætur og vafalaust hægt að vinna hann á ýmsa vegu. 5. Lokaorð Á Rannsóknastofnun fiskiðn- aðarins starfa um 50 manns. Við rekum útibú á Isafirði, Akureyri og Neskaupstað auk þess sem við önnumst daglegan rekstur útibús fiskvinnslufyrirtækjanna í Vest- mannaeyjum. Á stofnuninni starfa efnafræðingar, matvæla- fræðingar, örverufræðingar, verk- og tæknifræðingar, viðskiptafræð- ingur auk vel þjálfaðs rannsókna- fólks. Stofnunin hefur yfir margvís- legum tækjabúnaði að ráða sem hentar til vöruþróunar og tilrauna- vinnslu. Sumt afþessumtækjumer unntað leigja úttil fyrirtækjanna. Tilraunaeldhús er starfrækt þar sem unnið er að nýjum afurðum. Við leggjum áherslu á vöruþró- unarverkefni í samvinnu við ein- staklinga eða fyrirtæki. Þannig verkefni eru unnin samkvæmt fyrirfram gerðum samningum og farið er með niðurstöður sem trúnaðarmál. Stofnunin getur boðið fyrirtækjum eða einstak- lingum upp á aðstöðu og aðstoð við eigin tilraunaframleiðslu í rúmgóðum vinnslusal. Menn verða hins vegar hér eftir sem hingað til að bera sig eftir björg- inni. Ég hef í þessu erindi leitast við að sýna fram á að þróunarmögu- leikar í fiskvinnslu og sjávarút- vegi okkar eru enn þá langt fra því að vera fullnýttir. Með góðri samvinnu sölusamtaka, fram- leiðslufyrirtækja og rannsókna- stofnana getum við færst nær þvl marki. í þessu erindi hefur verið stuðst við ýmsar skýrslur starfsmanna Rf, einkum Sigurjóns Arasonaú Guðmundar Þóroddssonar, Hannesar Árnasonar, Björns Guðmundssonar og Guðmundar Stefánssonar. Höfundur er forstöðumaður Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins. Tilraun meö skrápflettingu á skötuböröum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.