Ægir - 01.07.1989, Qupperneq 18
358
ÆGIR
7/89
er þó flóknara en þetta. Líklegt er
að til skamms tíma sé útgerðar-
mönnum meiri akkur í að leigja
sér kvóta ef skipin eru ekki
fullnýtt:
Ps = Fú*i/(1-r+)
Ps = Leiguverð kvóta
r = Fastur kostnaður
200 milljónir*0.05/0.8=12.5
milljónir króna, eða leiguverð
kvóta 9.40 kr/kg. Útgerðarmaður
getur því á virkum kvótamarkaði
lagt skipum sínum og leigt út
kvóta á 9.40 kr/kg, eða haldið
áfram veiðum og tekið á leigu
kvóta. Kostirnir ættu að vera jafnir
fyrir meðaljóninn, sem þýðir að
þeir sem betur eru hæfir til að reka
útgerð myndu hagnast á að taka á
leigu kvóta og hinir lakari hagnast
á að leigja út kvóta. („Betur hæfir"
er þó varla rétta orðið, um getur
verið að ræða góða vetrarvertíð
sunnanlands sem gerði t.a.m.
Vestmanneyingum kleift að ná
afla á ódýrari hátt en öðrum væri
mögulegt).
Rétt er að taka fram að mikil-
vægar stærðir í þessu einfalda
dæmi eru ekki mælanlegar í raun.
T.a.m. verður stærð æskilegs
veiðiflota aldrei nema ágiskun.
Hér er reiknað með 15% minni
flota, en nefndar hafa verið mun
hærri hlutfallstölur. Fastur kostn-
aður upp á 20% er önnur stærð
sem er mjög mismunandi eftir
gerð og aldri skipa og erfitt að
henda reiður á „réttri" tölu.
Til lengri tíma litið er sala á
kvóta jafngild leigu hans þar sem
sú eign sem í kvótanum liggur er
jafngild uppsöfnuðum leigu-
tekjum að teknu tilliti til vaxta. Og
kvótakaup lúta sömu lögmálum
og leiga kvóta, þannig að menn
eru því líklegri til að sjá sér hag í
að selja skip og þar með kvóta,
sem skip þeirra og möguleikar til
að nýta sér kvótann með veiðum
eru lakari. Hagur þjóðarbúsins í
heild mundi þannig batna, þar
sem veiðarnar væru reknar með
ódýrari hætti.
Forsendur og gögn
Áður en farið er út í að rekja
hvernig viðskipti með kvóta milli
landshluta hafa verið, er rétt að
gera frekari grein fyrir forsendum
og gögnum sem athugunin byggir
á. Cögnin eru: skipaskrá Fiskifé-
lags íslands, grunnaflamark allra
skipa og reiknistuðlar þorskígiIdis
útreiknings. Síðasttöldu gögnin
eru gefin út af sjávarútvegsráðu-
neyti fyrir hvert ár.
Aflamark skipa er reiknað til
þorskígilda og einungis sá kvóti
talinn sem heyrir undir kvótakerfi
fyrir botnfisk, og djúprækju árið
1988. Skip sem hafa sérveiðiheim-
ildir eru því mæld með lægra afla-
marki en í raun er. Síðasta atriðið
hefur þó sennilega ekki áhrif á
hlutföll milli landshluta, þar sem
kaup og sala skipa milli landshluta
virðist vera óháð þeim sérveiði-
heimildum sem skipið hefur og
kemur það heim og saman við
athuganir sem benda til að leigu-
markaður kvóta sé mjög öflugur.
Hverju skipi er síðan úthlutaður
kvóti eins og grunnaflamark þess
er á því ári sem viðskiptin eiga sér
stað. Þannig að sóknarmarks-
skipum er úthlutaður kvóti eins og
grunnaflamark þeirra segir til um á
því ári sem skipið er selt.
Þorskurinn er yfirgnæfandi að
magni í aflamarkinu og í breyt-
ingum á veittu aflamarki vegur %
breyting í þorski að jafnaði 6 a
móti 4 á móti sömu % breytingu
hinna tegundanna. Taka skal fram
að mikil aukning kvóta 1988 er
vegna djúprækju sem féll undir
kvóta á árinu með nýjum lögum-
Skipa- og kvótatilfærslur 1984
Á árinu 1984 voru skipasölur 64
og meðalkvóti í sölu var 226 þorsk-
ígildistonn, dreifing kvóta var eins
og lesa má í töflu 2. í töflu 2 og
þeim töflum öðrum sem settar eru
upp og sýna kvótatilfærslur með
skipasölum gegnum öll ár kvótans,
geta lesendur reiknað út hver netto-
breyting hefur orðið á kvótaeig11
hvers landshluta með því að taka
viðkomandi samtölu úr línu lárétt
sem sýnir hve mikill kvóti hefur
verið seldur frá landshlutanum á
árinu og dregið frá samtölu í ló&'
réttum dálki merktum „TIL". Sem
dæmi úr töflu 2: nettótiIfærsl^
kvóta til Austfjarða 1984: 3.796
tn-1.999 tn = 1.797 þorskígildis:
tonn, sem er það magn sem kvoti
Austfirðinga hefur aukist um 3
árinu. c
Alls er verslað með 3.3%
heildarkvótanum. Langmestu vi
skiptin eiga sér stað á Reykjanesu
einungis tilflutningar inna
Tafla 2
Kvótatilfærslur milli landshluta með skipasölum 1984
SL RN VL VF NV NE Austf. TIL
SUÐURL. 0 295 86 0 0 440 930 1751
REYKJAN. 0 2105 0 423 248 636 0 824
VESTURL. 307 112 0 405 0 0 0 1 ?S6
VESTF. 227 805 0 97 84 23 0 1824
NORÐ-V. 288 542 0 0 0 0 994
NORÐ-E. 1140 86 425 0 0 0 0 ■37 96
AUSTF. 513 3034 60 0 0 114 75 14494
FRÁ: 2475 6979 571 925 332 1213 1999