Ægir - 01.07.1989, Síða 22
362
ÆGIR
7/89
mælir „rétt" jaðarverð auðlindar-
innar á hverjum tíma, ef markaður
leigðra kvóta er virkur og öflugur.
Þannig að ef vel aflast t.d. á vertíð-
arsvæðinu þá taka útgerðarmenn
á því svæði kvóta á leigu og öfugt.
Hvernig var svo þróun leigu-
markaðarins og hve virkur er leigu-
markaður kvóta og hvert fer
kvótinn? Einungis verður farið
lauslega í að kanna þessa flutn-
inga, þar sem tilgangurinn er að
draga fram tilfærslur milli lands-
hluta. A Iínuriti 2, sést hverjir nettó-
flutningar voru milli landshluta á
árinu 1984.
Á fyrsta ári kvótakerfisins virðist
hreyfing leigðra kvóta vera í sömu
átt og tilfærsla skipa gegnum við-
skipti með skip (sjá töflu 3.) Lands-
hlutarnir Reykjanes og Suðurland
leigja út meiri kvóta en þeir taka á
leigu.
Brúttó viðskiptin voru 46.331
þorskígildistonn eða um 11% af
heildaraflamarki, sem verður að
teljast ótrúlega mikið þegar tekið
er tillit til þess að fyrirkomulagið
er ekki aðeins nýjung heldur er
einnig hluti af flotanum á sóknar-
marki og hafði ekki möguleika á,
að leigja kvóta.
Leigumarkaður aflakvóta 1985
Eins og getið er í annarri grein i
blaðinu, þá var öllum skipum veitt
heimild til að velja milli aflamarks
og sóknarmarks á árinu 1985. A
árinu 1984 völdu 100 skip meðal-
aflamark eða sóknarmark, en
þessi skip höfðu ekki heimild til að
leigja kvóta. Öll afkastamestu
skipin voru á aflamarki. Á árinu
1985 nýttu 185 skip sóknarmarks-
heimildina, þar af 29 togarar.
Sóknarmarkið leiddi því til eðlis-
breytingar, þannig að mögulegut
kvótamarkaður dróst saman. A
línuriti 3, sjáum við nettótilfaerslur
milli landshluta.
Reykjanes ber næstum allan
halla viðskiptana og Vestfirðir og
Norðurland eystra taka á leign
kvóta. Öndvert samband var miH'
skipakaupa og þar með kaupa a
kvóta og leigu kvóta á Reykjanesi,
Vesturlandi og á Austfjörðum, en
jákvætt samband milli þessara
viðskipta á Norðurlandi. Suður
land gerir hvorttveggja að leigja ut
meiri kvóta en það tekur á leigu
selur meiri kvóta með skipum en
það eignast.
Heildarútleiga kvóta 1985 var
50.990 þorskígildistonn e°a
11.5% af heildaraflamarki, þannig
að þrátt fyrir fleiri skip á sóknar
marki jókst leiga kvóta sem hlu
fall af heildaraflamarki.
Leigumarkaður aflakvóta 1988
Á árunum 1984 og 1985 va^
mikill og vaxandi leigumarka u
aflakvóta, staðan snerist við ári ^
1986. Með nýjum lögum Sa^
sóknarkvóti möguleika til aLJ '
aflamarks. Skipum sem vö
sóknarmark fjölgaði í 365, Þa,in
að nú var svo komið að rí e!
helmingur skipa sem höfðu ve'^
leyfi, voru á sóknarmarki. A
togurum voru 80 á sóknarma
Alls voru 663 skip sem ,
veiðileyfi 1986. Á Ifnuriti
Tonn
4000
Línurit 2
Netto framsal botnfiskkvóta milli kjördæma 1984
2706
3037
411
i i i
VL
VF NV
Landshlutar
NE
AF
Tonn
Línurit 3
Netto íramsal botnfiskkvóta milli kjördæma 1985