Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1989, Page 28

Ægir - 01.07.1989, Page 28
368 ÆGIR 7/89 færði íslendinga í hóp efnaðri þjóða að stíga sín bernskuspor. í reikningum Samábyrgðar er hægt að lesa söguna til dagsins í dag. Milli stærri fiskiskipaflota og meiri velmegunar þjóðarinnar hefur gegnum tíðina verið náið sam- hengi. Arið 1953 voru verðmæti þau, sem skip tryggðu fyrir hjá Sam- ábyrgð 237 milljónir króna. Árið 1968 550 skip að vátrygginga- verðmæti 1.850 milljónir kr. og á árinu 1988 660 skip, þar af 10 frumtryggð og 650 endurtryggð að verðmæti 11.762 milljónir króna. Skipum hefur á þessum áttatíu árum ekki einungis fjölgað gríðar- lega mikið, heldur hefur og verð- mæti þeirra sífellt orðið meira vegna aukins tækjabúnaðar. Öll skip, 100 rúmlestir að stærð og minni, eru tryggð hjá fyrirtæk- inu, sömuleiðs eru skip Skipaút- gerðar ríkisins og Hafrannsókna- stofnunartryggð hjá Samábyrgðinni. Innan vébanda Samábyrgðar- innar eru nú 6 bátaábyrgðarfélög: Vélbátaábyrgðafélagið Grótta, Bátatrygging Breiðafjarðar, Vél- bátaábyrgðafélag ísfirðinga, Vél- bátatrygging Eyjafjarðar, Skipa- trygging Austfjarða og Vélbáta- trygging Reykjaness. Með lögum frá 29. apríl 1958 var stofnuð deild innan Sam- ábyrgðarinnar, Bráðafúadeild, sem annaðist vátryggingar allra tréfiskiskipa gegn tjónum af völdum bráðafúa. Bráðafúa- deildin starfaði þar til 1. júlí 1987 að Aldurslagasjóður fiskiskipa var stofnaður og yfirtók allar eignir og skuldbindingar deildarinnar. Til- gangur Aldurslagasjóðs er aðal- lega að greiða fyrir því með bóta- greiðslum að gömul og óhentug fiskiskip verði tekin úr notkun og þeim eytt og aflar sjóðurinn tekna með árgjöldum frá fiskiskipa- flotanum. Frá árinu 1970 hefur Sam- ábyrgðin annast slysatryggingar sjómanna, ábyrgðatryggingar útgerðarmanna og farangurstrygg- ingar skipshafna. Eins og flestir vita er starfsemi Samábyrgðarinnar til húsa að Lág- múla 9, sem sést á mynd í grein- inni. En Samábyrgðin keypti árið 1967 eina hæð í húsi sem Bræð- urnir Ormsson höfðu látið reisa. Jón Gunnarsson var fyrsti for- stjóri Samábyrgðarinnar eins og fyrr var rakið og gegndi hann því starfi til ársins 1935, en þá tók við sem forstjóri Carl Finsen og stjórn- aði hann Samábyrgðinni til 1940. Sigurður Kristjánsson alþingis- maður Reykvíkinga var síðan for- stjóri næstu 16 ár, eða til ársins 1956, en þá tók sonur hans og núverandi forstjóri við starfinu og hefur stjórnað Samábyrgðinni á farsælan hátt síðan. Með lögum frá 28. aprfl 1967 var stjórn Samábyrgðarinnar breytt á þann veg að í stjórninni sitja fimm menn og jafnmargir til vara. Ráðherra skipar þrjá menn í stjórn, tvo eftir tilnefningu Lands- sambands íslenskra útgerðar- manna og einn án tilnefningar og á sama hátt þrjá í varastjórn. Báta- ábyrgðafélögin, þau sem Sam- ábyrgðin endurtryggir fyrir, kjósa tvo stjórnarmenn og tvo til vara. Eftir lagabreytinguna 1967 hafa eftirtaldir menn verið stjórnarfor- menn Samábyrgðarinnar: Matthías Bjarnason fv. ráð- herra, Jón Árnason alþingismaður, Ágúst Flygering útgerðarmaður, Birgir Finnsson fv. alþingismaður, og Sveinn Hjörtur Hjartarson hag- fræðingur. Stjórn Samábyrgðarinnar hefur jafnan að mestum hluta verið skipuð útgerðarmönnum eða mönnum í nánum tengslum við útveginn á hverjum tíma. Núver- andi stjórn Samábyrgðarinnar er skipuð þessum mönnum: Sveinn Hjörtur Hjartason hag- fræðingur, formaður, Ásgrímur Halldórsson framkvæmdastj- varaformaður, Finnur Jónsson útgerðarmaður, Egill Þorfinnsson framkvæmdastjóri, og Hjálmar Styrkársson framkvæmdastjóri. Að lokum vill Ægir og Fiskifélag íslands óska Samábyrgðinni vel- farnaðar á þessum tímamótum/ um leið og við þökkum ánægju' legt samstarf um langt árabi I.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.