Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1989, Page 60

Ægir - 01.07.1989, Page 60
400 ÆGIR 7/89 tekið í heild, þá sé um talsverðan hagnað að ræða. Hér er fremur lagst á þá sveif að Landsvirkjun hafi nokkurn hagnað af við- skiptunum. Hitt hefur verið greini- legt gegnum árin að afkoma Landsvirkjunar er fasttengd geng- inu þar sem vextir af erlendum skuldum er helsti gjaldaþáttur fyrirtækisins. Til að skýra betur þann vöxt sem hefur verið í sjávarútvegi á síðustu tuttugu árum og sérstak- lega í kjölfar farsællar lausnar landhelgisdeilunnar, þá er sett fram á línuriti vöxtur fiskveiða síð- ustu 14 ára. Auk þess er á línurit- inu það magn í þorskígildum sem aflaðist á fengsælasta árinu fyrir þann tíma, eða árið 1965. Taka skal fram að þróun afurðaverðs sjávarafurða hefur verið á þann veg að íslendingar fá sífellt meiri vörur fyrir hvert þorskígildistonn. Hér kemur margt til, en nefna má stöðugt betri meðferð aflans, nýjar afurðir, greiðari flutningar milli landa o.m.fl. Hitt skiptir þó mestu að aukin eftirspurn eftir fiski vegna jákvæðrar umræðu um gildi neyslu hans sem heilsugjafa hefur valdið mikilli verðhækkun. Ekki má heldur láta sér skjótast yfir þau verðáhrif sem hafa orðið vegna mikillar efnahagslegrar velgegni mestu fiskneysluþjóðar heims. Áhrif Japana á heimsmarkaðsverð á sjávarafurðum vaxa í sama mæli og áhrif þeirra á efnahagslíf heims- ins. Þegar til lengri tíma er litið hefur hefðbundið neyslumunstur þeirrar þjóðar sem forystu hefur náð í alþjóðaviðskiptum, orðið útflutningsvara. Hvort fiskréttir Japana nái alþjóðavinsældum í stíl við enskan morgunverð eða amer- íska hamborgara skal ósagt látið. Á línuritinu eru því þorskígild- istonn ársins 1965 ekki fyllilega sambærileg við þorskígildistonn 1 988. Án þess að gerð sé á því sér- stök athugun verður ekki Ijóst hve mikill munur er á raunvirði þorsk- ígiIdistonns í dag og fyrir tuttugu árum en ekki virðist ólíklegt að láta muni nærri að raunverð per kg af þorski upp úr sjó hafi tvöfald- ast á þessum árum. Við lauslegan samanburð á verði á nokkrum innfluttum vörutegundum áranna 1965 og 1988, og verði á út- fluttum frystum þorskflökum sömu ár, fékkst eftirfarandi breyting verðhlutfalla: Fryst þorskflök/ Korn Tóbak ... Timbur Kaffi .... Olía Verðhlutföll .... 2.6 .... 1.1 .... 2.2 .... 1.6 .... 0.9 Þannig að af nokkrum vöruteg- undum völdum af handahófi, er olían sú eina sem hefur hækkað í verði miðað við fisk og stafar sú hækkun að nokkru leyti af breyttri samsetningu innfluttra eldsneytis- tegunda, töluvert hærra hlutfall bensíns í innflutningi 1988, en var á árinu 1965. Líklegt er að ítarlegri úttekt gefi mjög svipaða mynd af verðþróun, það er engin tilviljun að bifreiðainnflutningur hefur þrefaldast á þessum tuttugu árum og ferðalög íslendinga til sólar- landa margfaldast. Af þessum tölum og af þróun aflaverðmætis sem lesa má út úr línuritinu getum við séð í stórum dráttum að hve miklu leyti sjávarútvegur stendur undir hagvexti síðustu tveggja ára- tuga. Það er kaldhæðnisleg stað- reynd, í Ijósi almennrar umræðu þessa dagana, að sennilega þarf ekki annað til þess að íslenskur landbúnaður spjari sig án niður- greiðslna, en að einn kjarnorku- kafbátur farist suður á Reykjanes- hrygg. í dag er grunnur þjóðarhags ennþá frekar en áður reistur á einni öflugri atvinnugrein, sjávar- útveginum. Þessvegna eiga stjórn- völd að kosta kapps um að hlúa að atvinnugreininni og enga áhaettu að taka sem gæti valdið hruni í greininni. Fólk í landinu og sér í lagi þeir fjölmiðlamenn sem matreiða fréttir í okkur, ættu að hafa í huga að afkoma starfsmanna og fyrir". tækja í sjávarútvegi ráðast at fjórum meginstærðum. í fyrsta lag1 af ástandi fiskstofna, í öðru lagi a verði á erlendum markaði, þriðja lagi af hagræðingu innan fyrir' tækja í sjávarútvegi og fjórða og síðasta lagi af skráðu gengi krón- unnar. Þjóðin getur, hvernig seni að rekstrinum er staðið og v'ð bestu náttúruleg skilyrði og haesta verð á erlendum markaði, blóð- mjólkað atvinnugreinina. Það er grátlegt að lesa greinar eftir ve' þenkjandi menn sem halda þvl fram að sjávarútvegur sem sé rekm með styrkjum af almannafé °S hallarekstri við hámarksverð og hámarksafla sé lýsandi dæmi um skort á rekstrarhagræðingu. Máli er einfalt, þjóð flytur þá vöru u sem hún stendur h I utfal IsleS3 fremst í framleiðslu á. íslendingar flytja út sjávarafurðir vegna þeSS að sú vara er framleidd með hag kvæmustum hætti í landinu. E,n bestu fiskimið heimsins eru grunn auðlindin, en margar aðrar þj° , eiga góð fiskimið án þess að na viðlíka árangri. Hvaða ályktn getum við dregið af þeirri sta reynd? a.a.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.