Ægir - 01.08.1990, Blaðsíða 10
406
ÆGIR
8/90
SJÁVARÚTVEGSSÝNING í LAUGARDALSHÖLL
19. - 23. September 1990
SÉRHÆHNG í SJÁVARÚTVEGI
eykur fjölbreytni í íslensku atvinnulífí
í september, nánar til tekið 19,-
23. september nk. verður haldin
sýning í Laugardalnum í Reykja-
vík. Á sýningunni, sem kallast:
„Islenska sjávarútvegssýningin
1990", sýnir fjöldi stoðfyrirtækja
sjávarútvegsins tæki og búnað til
fiskveiða og fiskvinnslu og kynna
aðra þjónustu sína við sjávarút-
veginn. Þessi sýning er þriðja
sinnar tegundar sem haldinn hefur
verið hér á landi. Sú fyrsta var
1983 og önnur var svo árið 1987.
Sýningunum hefur verið afar vel
tekið af íslenskum og erlendum
fyrirtækjum og þær hafa sótt fjöldi
gesta. Raunar hefur svo verið að
bæði fyrirtækjum, sem kynna vöru
sína og þjónustu, og gestum sem
sækja sýningarnar, hefur fjölgað
með hverri nýrri sýningu.
Þjónustugreinar sjávarútvegsins
mynda þriðja og sennilega stærsta
þáttinn í þeim þríþætta vef sem í
heild kallast íslenskur sjávarútveg-
ur. Vaxandi hluti þeirrar starfsemi
sem lýtur að því að ná fiskinum úr
sjó og koma honum í besta ástandi
til neytenda, flokkast undir þjón-
ustustarfsemi. Fiskimaðurinn eða
starfsmaðurinn í fiskvinnslunni
næði litlum árangri við vinnu sína
ef ekki fylgdi sjávarútveginum fjöl-
þætt þjónustustarfsemi. Sú vinna
sem unnin er, allt frá smíði veiði-
skipsins til þeirrar starfsemi sem
fram fer til að koma fullfrágeng-
inni afurð á markað og innheimta
greiðslur fyrir hana, af þessari
starfsemi mætti flokka 40 - 50%
undir hugtakið þjónusta, innlend
og erlend. (Reyndar er mikið af
þessari starfsemi í daglegu tali
nefnd iðnaðarframleiðsla, eins og
skipasmíðar og tækjaframleiðsla
af ýmsu tagi. í þessari grein er
hugtakið þjónusta túlkað mjög
rúmt).
Fullkomið fiskleitartæki, spar-
neytin vél eða nýtt veiðarfæri,
kemur engum að notum ef vit-
neskju um tilveru nýjungana er
ekki komið á framfæri. Upplýs-
ingastreymi milli aðila er einnig
þjónusta. Blöð eins og Ægir, Fiski-
fréttir eða Víkingur, hafa meðal
annarra með þessa þjónustu að
gera. Sjón er þó sögu ríkari og
koma þar til sjávarútvegssýningar
af því tagi sem nú á að fara halda
í Laugardalnum. Verður á næstu
blaðsíðum fjallað um þessa sýn-
ingu og nokkur fyrirtæki sem þar
kynna vöru og þjónustu sína. Fyrst
verður þó fjallað lauslega um
þann mikla og fjölbreytta atvinnu-
veg, þjónustustarfsemina, sem
stendur við bakið á þeim aðilum
sem starfa beint að veiðum og
vinnslu. Hér er um að ræða stóran
atvinnuveg sem við látum okkur
að jafnaði í léttu rúmi liggja, hvort
heldur við erum blaðamenn, fisk-
verkendur eða sjómenn. Hvort
sem við teljum okkur menn frjáls-
hyggju eða félagshyggju, þá
að
■itthvað
blundar í öllum sú hugsun
grunnframleiðslan sé ei
hreinni og betri starfsemi, en
verslun og þjónusta. Virðist
hugsunarháttur í litlu breytast, Þ°
nú hrynji niður stórveldi af þeirn
sökum að slíkar hugmyndir vorý
hafðar í öndvegi. T.d. hefur þ'n
verið haldið á lofti í urnræðum a
undanförnu að gera ætti eitthva
til að bjarga fiskvinnslunni, þar
sem hún væri að ganga af sja'
sér dauðri með því að spenna sv°
upp hráefnisverð, sem raunin er-
Hvenær hefur heyrst að hlaupa
eigi upp til handa og fóta til a
bjarga fyrirtækjum sem selja ve a
í skip, eða fyrirtækjum sem hanna
skip og öðrum svipuðum h'r,(
tækjum sem verða augljósleg3
fyrir mestum skaða af hagkvaemar'
stjórnun fiskveiða? Fiskvinnslan
þjónustufyrirtæki sjávarútvegsinS
eru rekin í mikilli samkeppni og
grunnatriðum er enginn munur
rekstri þeirra. Ekki þarf að gera
neinar aðrar ráðstafanir af hánu
ríkisvaldsins en að jafna aðstö u
þessara fyrirtækja gagnvar
erlendri samkeppni, ef erlent ríkis
vald styður samkeppnisaðila me
styrkjum af einhverju tagi-
Sbr-
t.d. gjafalán til uppbyggin8ar
í fiskvinnslu í Evrópu og stuðninS
ríkja við skipasmíðastöðvar.
öðru leyti eiga afskipti hins opi_n
bera af samkeppnisstöðu fyr'r
tækja að vera sem minnst. Islen -