Ægir - 01.08.1990, Side 34
430
ÆGIR
8/90
Hve stór verður Grænlandsgangan?
Nú er svo komið að fiski-
fræðingar á Hafrannsóknastofnun
geta nánast fullyrt að Grænlands-
þorskur gangi á íslandsmið á
þessu ári og því næsta. Spurningin
er frekar hve gangan verður stór.
Ægi barst nýlega kanadískt rit
frá stofnun sem heitir Northwest
Atlantic Fisheries Organization.
Rit þetta inniheldur úttekt tveggja
þýskra fiskifræðinga á stærð ár-
ganga í þroskstofninum við Græn-
land á árunum 1977-1987. Niður-
stöður þýsku sérfræðingana eru
sláandi, nærri 90% af fjölda þorska
í veiðistofninum við Grænland
árið 1987 er af árganginum frá
1984.
Eins og sést af meðfylgjandi línu-
riti vex stofnstærð (óbrotna línan)
þorsks við Grænland úr u.þ.b.
40.000 tonnum 1985, í 480.000
tonn árið 1987. Hér er rétt að hafa
í huga að árið 1987 er 1984 ár-
gangurinn aðeins orðinn þriggja
ára. Þýsku fiskifræðingarnir draga
aðra línu (brotna línan) sem segir
til um fjölda einstaklinga í veiðan-
lega hluta stofnsins. Talið er að
1984-árgangurinn við Grænland
hafi verið um sex hundruð millj-
ónir einstaklinga af þriggja ára
þorski árið 1987. Láta mun nærri
að þetta sé þreföld meðalnýliðun
á íslandsmiðum, þannig að ef hver
þorskur hefði álíka gott viðurværi
á Grænlandsmiðum og hann hefur
við ísland og þetta væri meðalár-
gangur, þá stæði slík nýliðun undir
milljón tonna árlegum þorskafla.
Hins vegar er Ijóst að einstaklingar
í þessum árgangi af Grænlands-
þorski er allmiklu léttari en jafn-
gamall þorskur við ísland. Talið er
að meðalþyngd þorsks af 1984
árgangi sé innan við heimingur af
þyngd jafngamals fisks við suður-
strönd íslands. Það verður áhuga-
vert að sá hvort möguleiki sé á því
að Grænlandsþorskurinn geti étið
sig upp í „eðlilega" þyngd eftir að
hann er kominn á áturíkara svæði
við ísland.
Til að lesendur hafi nokkurn
samanburð til að meta stærð ár-
gangs þorsks frá 1984, þá var
fjöldi þriggja ára nýliða við Græn-
land metinn u.þ.b. 600 milljón
þorskar og við ísland var sama
nýliðun árið 1987, 300 milljón
þorskar. Ómögulegt er að spá um
hve stórt hlutfall af hrygningarfiski
gengur frá Grænlandi á íslands-
mið, en af aflatölum undanfarin ár
á Grænlandsmiðum virðist óhæ11
að draga þá ályktun að ekki hafl
verið gengið umtalsvert á stofninn-
Það verður að álasa íslenskum
yfirvöldum fyrir hve illa þau hata
staðið að rannsóknum á frarn-
vindu mála við Grænland síðustu
árin. T.a.m. er þannig talað um
göngu Grænlandsþorsks á miðm
eftir áramót, að efnahagur á I5'
landi standi eða falli með því hvort
Grænlandsganga kemur eða ekki
og hagvöxtur hér á landi á naestu
árum ráðist af stærð göngunnar.
Þrátt fyrir mikill áhrif GrænlandS'
gangna á íslenskt efnahagsm
vitum við varla nokkurn skapaðan
hlut um hvað ræður þessum göng'
um, hvernig þær haga sér eða hve
stórar þær verða. Síðasta ganga fra
Framhald á bls. 420
Vestur-Grænlandsþorskur. Stofnstærð og fjöldi fiska.