Ægir

Árgangur

Ægir - 01.03.1993, Síða 24

Ægir - 01.03.1993, Síða 24
Lmurenna Kristins Kristjánssonar frá Nýhöfn Úr handriti Kristins: Það mun hafa verið árið 1920 að við vorunr þrír á ferð inn yfir Hafn- arskörð. (Leiðin milli Leirhafnar og Kópaskers.) Við vorum gangandi og þá þótti löngum gott að hafa eitthvað til að tala um, til þess að stytta tím- ann, en þetta er 15 km leið. Félagar mínir voru frá Raufarhöfn og fengust dálítið við línuveiði. Umtalsefnið var Kristinn Kristjónsson. það, hvað mikla þýðingu það hefði, ef unnt væri að finna aðferð til þess að sigla út línuna fulla ferð, þannig að hver öngull rektist örugglega greiður í sjóinn. Var talað um speldi á hjörum, sem legðist yfir hvert lag beitunnar, en við sáurn fljótt að þetta var útilokað í stömpum, sem þá ný- verið höfðu rutt bjóðunum, en í þeim hefði þetta ef til vill verið til- tækilegt. Um veturinn, ég held eftir hátíðar, sá ég frétt í blaði um það, að maður hefði farist með þeim hætti, að öng- ull kræktist í hann, þegar hann var að kasta línu á mótorbát. Þetta var ekki nýtt tilfelli, aðeins eitt af mörgurn. En þetta varð til þess að rifja upp fyr- ir nrér umtalið á Skörðunum. Fór ég þá fyrir alvöru að velta þessu spurs- máli fyrir mér. Þetta var ekkert smá- munamál, þetta mátti að vissu leyti teljast lífsspursmál fyrir þessa sjó- menn og jafnvel fyrir hag þjóðarinn- ar. Mér fannst eins og þessir menn hrópuðu úr djúpunum: „Svona var Höfundur þessarar greinar, Kristinn Kristjánsson, vélsmiður og bóndi í Nýhöfn á Melrakka- sléttu, var fæddur í Leirhöfn í sömu sveit þann 17. ágúst 1885- Kristinn varð snemma þekkt- ur fyrir járnsmíðar og vélavið- gerðir hvers konar. Auk smíða og viðgerða var Kristinn sífellt að vinna að nýj- um hugmyndum með það að markmiði að auðvelda vinnu- brögð og þar með að tæknivæða íslenskt þjóðfélag. Kunnastur er Kristinn fyrir uppgötvun sína línurennuna. Þegar eftir að línurennan hafði verið kynnt tóku öll fiski- skip sem línuveiðar stunduðu hana til notkunar og hefur svo verið síðan. Fyrir uppfinningu sína á línurennunni var Kristinn sæmdur styrk frá Alþingi. Kristinn skráði sögu línurenn- unnar og er hún hér birt eins hann færði hana í letur. Kristinn andaðist 7. ágúst 1971. aðstaðan okkar að standa á sleipu111 þiljum við örlágan rimlavara og kasta línunni með báðum höndum, þegar bátskelin veltist í sjónum“. Þá var það ekki neitt smámunahagræði, takast mætti að láta línuna renna ur fullri ferð, fara þá með helming1 lengri línu á ef til vill sama tíma með helmingi meiri von um veiði. Það lá fljótt í augum uppi, að það þurfti ekki annað en að búa um stampinn undir stól, sent tæki línum1 126 ÆGIR 3. TBL. 1993

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.