Ægir - 01.03.1993, Síða 33
Þá veiddust allmargar fisktegundir
sem til skamms tíma hafa verið taldar
s)aldséðar en eru það varla lengur.
Meðal þessara tegunda má nefna:
fhslaháf, Apristurus laurussonii, jen-
sensháf, Galeus murinus, svartháf,
Centroscyllium fabricii, gljáháf, Cen-
’toscymnus coelolepis, þorsteinsháf,
^entroscymnus crepidater, flatnef,
b^eania calceus, dökkháf, Etmopterus
princeps, loðháf, Etmopterus spinax,
skjóttu skötu, Raja (Amblyraja)
hperborea, pólskötu, Raja (Rajella)
fyllae, berhaus, Alepocephalus
agassizii, gjölni, Alepocephalus bair-
dii, slóans gelgju, Chauliodus sloani,
u88a' Scopelosaurus lepidus, digra
getrsíli, Magnisudis atlantica, stóra
getrsíli, Paralepis coregonoides,
trj°nuál, Serrivomer beani, álsnípu,
^emichthys scolopaceus (reyndar
veiddist ein slík í september SA af
Grímsey í rækjuvörpu á 275 m dýpi
°§ mun hún ekki hafa fengist oft
þatna á norðurslóð þótt algeng sé
V|ða djúpt undan SV landi), búrfisk-
ur, Hoplostethus atlanticus, bjúg-
tanni, Anoplogaster cornuta, urrari,
Eutrigla gunardus o.fl. tegundir eins
og flestar mjórategundirnar (Lycodes).
Nokkra fiska er eftir að greina ná-
kvæmlega til tegundar m.a. vegna
skemmda, þar á meðal eru sogfiskar
og mjórar.
Geta má þess að nokkur lengdar-
met voru sett árið 1992. Lengsta blá-
góma sem veiðst hefur hér við land
fékkst á grálúðuslóð vestur af Víkurál
í júníbyrjun. Var hún 124 cm. Þá
veiddist 142 cm langur hlýri á Papa-
grunni í mars. Var hann 32 kg slægð-
ur. I maí veiddist 44 cm sandkoli við
Vestmannaeyjar og gæti það jafnvel
verið heimsmet. Loks fékkst 122 cm
löng grálúða vestan Víkuráls í maí.
Af öðrum sérkennilegheitum má
nefna geirnyt sem veiddist út af
Berufjarðarál í maí og var með annað
augað tvískipt og virtist því vera þrí-
eygð.
Lýsingar á öllum þessum fiskteg-
undum, lífsháttum þeirra, útbreiðsiu
o.s.frv. er að finna í bókinni „íslensk-
ir fiskar“ 2. útg. 1992.
Eftirfarandi skip og bátar veiddu
ofangreinda fiska:
Arney KE, Árbakur EA, Bjarni
Sæmundsson RE, Danski-Pétur VE,
Engey RE, Gestur SU, Gissur ÁR,
Helga RE, Hersir HF, Hoffell SU,
Hrafn Sveinbjarnarson GK, Hrísey
SF, Hvanney SF, Höfðavík AK, Jó-
hann Gíslason ÁR, Jón Vídalín ÁR,
Júlíus Geirmundsson ÍS, Ljósafell
SU, Ljósfari GK, Már SH, Oddeyri
EA, Rauðinúpur ÞH, Sjóli HF,
Skálafell ÁR, Stefnir ST, Sturlaugur
Böðvarsson AK, Sunnutindur SU,
Sæbjörn IS, Víðir Trausti EA, Þinga-
nes SF, Þórsnes SH og Ymir HF.
Sérstakar þakkir eru færðar þeim
Aðalsteini Aðalsteinssyni, Árna Jóni
Konráðssyni Engey RE, Eyþóri Þórð-
arsyni Hrafni Sveinbjarnarsyni GK
og Magnúsi Þorsteinssyni Ymi HF.
Eigendur skipa og báta, skipstjórar
SIGLINGAMÁLASTOFNUN RÍKISINS vill aö gefnu tilefni minna skipstjóra og eigendur
skipa og báta á aö samkvæmt lögum er skylt aö láta skoöa árlega öll skip og báta stærri
en 6 metra aö lengd.
Ennfremur viljum viö benda kaupendum skipa og báta á að ganga ætíö úr skugga um að
iögbundnar skoðanir hafi farið fram, svo og skuldaskil, og tilheyrandi búnaöur fylgi viö
eignaskipti. Siglingamálastjóri
3. TBL.1993 ÆGIR 135