Ægir

Volume

Ægir - 01.07.1993, Page 42

Ægir - 01.07.1993, Page 42
Mynciin á síöunni hér á móti er úr tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofhunar í Grindavík. Lúða er alin þar í útikerum. Lúðan er mjöggœf og tekur jafnvel fœðu úr hendi manns eins og sést á myndinni. Ljósm.: Bjöm Bjömsson. tveggja næstu áratuga. Þar kemur einnig fram hlutdeild íslendinga í heildarframboði neyslufisks. Fram kemur að hlutfall eldis hefur vaxið mikið og gerir spáin ráð fyrir að 80% af auknu framboði neyslufisks eftir 15 til 20 ár komi úr fiskeldi. Á sama tíma munu veiðar á neyslufiski nánast standa í stað vegna tímabundinnar eða viðvarandi ofveiði helstu nytja- stofna. Eins og sjá má á töflunni hefur hlutfall íslendinga í framboði á neyslufiski farið minnkandi, eða úr 1,75% árið 1970 í 1,01% árið 1990. Spáin gerir ráð fyrir að hlutfall íslend- inga muni halda áfram að minnka og verði komið niður í 0,77% árið 2010. Háft hlutfall eldisrœkju og skeldýra Tafla 2 sýnir veiðar og eldisfram- leiðslu í heiminum á einstökum flokk- um sjávarafurða. Athygli vekur hve hlutfall eldisafurða er orðið hátt, sér- staklega á rækju- og skeldýraafurðunt- Þannig er hlutfall skeldýra farið að slaga í helming framboðsins og eldis- rækja nálgast fjórðung af allri rækju a markaði í heiminum. Hlutfall eldis- fisks er 12%. Verðmœti eldis allt aö 64% Tafla 3 sýnir veiðar og eldi 1 nokkrum OECD-ríkjum á árinu 1989 og hlutfall eldisafurða í magni og verðmætum. Þarna kemur fram að verðmæti eldisafurða í mörgum OECD-ríkjanna er umtalsvert, eöa 1 mörgum tilvikum frá 15% og allt aö 50% af verðmæti sjávaraflans. I Finn- landi er þetta hlutfall 64%. ísland sker sig úr ríkjunum á töflunni. Þar efU bæði framleiðsla og verðmæti eldisaf- urða miklu minni en annars staðat- Tafla 2 Eldi og veiðar árið 1989 -(allur heimurinn) Fiskur Rækja Skeldýr Eldi, milljón tonn 7,3 0,6 3,0 Veiðar, milljón tonn 53,6 2,0 4,0 Hlutfall eldisframleiöslu 12% 23% 43% Tafla 3 Eldi og veiðar í nokkrum OECD löndum árið 1989 Veiðar Eldi Hlutfall úr eldi,' Land þús. tonn þús. tonn Magn Verðmæti Finnland 111,0 19,0 17,0 64,0 Bretlandseyjar 823,0 51,0 6,0 46,0 320 ÆGIR JÚLÍ1993

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.